Morgunblaðið - 19.05.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.05.2006, Blaðsíða 1
2006  FÖSTUDAGUR 19. MAÍ BLAÐ C SEXTÁN LIÐ KLÁR Í MEISTARADEILD EVRÓPU / C4 EVRÓPSKA knattspyrnusambandið, UEFA, ætlar ekki að refsa Thierry Henry framherja Arsenal eftir ummæli hans um norska dómarann Terje Hauge eftir leik Arsenal og Barcelona í fyrra- kvöld. Henry var vægast sagt reiður út í Hauge og sagði meðal annars við fjölmiðla að Hauge hefði viljað að Arsenal tapaði og hann hefði líklega verið í Barcelona-treyju undir dómaratreyjunni. Tals- maður UEFA sagði í gær að ekki yrði brugðist neitt við þessum ummælum fyrirliða Arsenal sem hefðu verið sögð í hita leiksins. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, mun eflaust gera at- hugasemdir við þessa ákvörðun. Hann var úr- skurðaður í tveggja leikja bann og sektaður af UEFA þegar hann sakaði sænska dómarann And- ers Frisk um að hafa rætt við Frank Rikjaard, þjálfara Barcelona, í leikhléi í leik leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni. Henry ekki refsað af UEFA B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A HENRIK Larsson, framherji Evrópumeistara Barcelona, er í guða tölu hjá stuðnings- mönnum Celtic eftir glæsi- legan feril með liðinu. Og ekki minnkaði hrifing Skotanna af Svíanum eftir sigur Barcelona á Arsenal í úrslitaleik Meist- aradeildarinnar í fyrrakvöld en Larsson lagði upp bæði mörkin. Celtic fær þátttöku- rétt í riðlakeppni Meistara- deildarinnar á næstu leiktíð eftir sigur Börsunga en Arsen- al þarf að spila í 3. umferð for- keppni Meistaradeildarinnar. Ef Arsenal hefði borið sigur úr býtum hefði Celtic þurft að spila í undankeppninni. Lars- son lék í sjö ár með Celtic og skoraði 242 mörk í 315 leikj- um með liðinu. Larsson enn hetja Celtic Vassell er öllum hnútum kunn-ugur hér á landi enda lék hann með KR-ingum frá árinu 1997 til 2000. Þá fór hann heim til Kanada en kom aftur til KR og lék með liðinu í tvö tímabil til við- bótar. Síðan lá leiðin í Hamar þar sem hann lék 2002-03 og þaðan fór hann til Finnlands og lék fyrst með KTP en síðan Poryoon Tarmo. Eftir að hann var hér á landi fór hann til Svíþjóðar þar sem hann lék með Jämtland en með kvennaliði félagsins lék Hild- ur Sigurðardóttir. Síðan lá leið hans til Portúgals þar sem hann lék með Belenenses í efstu deild á lokasprettinum. Síðasta vetur lék hann með Neuchatel í Sviss. Þar lék hann 22 leiki og skoraði 13,6 stig að meðaltali. Fjölnismenn ráða hann til sín fyrst og fremst sem þjálfara. „Ég á nú samt von á að hann taki skóna með sér,“ sagði Jón Oddur Davíðsson formaður körfuknatt- leiksdeildar Fjölnis í gær. „Hann mun sjá um meistaraflokkinn og einnig einhverja yngri flokka auk þess sem hann verður með í að móta úrvalshóp sem við erum með í körfunni,“ sagði Jón Oddur og sagði að Nemanja Sovic yrði áfram hjá félaginu og einnig vonaðist hann til að aðrir leikmenn yrðu einnig áfram. Vassell tekur við Fjölni KANADAMAÐURINN Keith Vassell, sem lék um tíma hér á landi með KR og Hamri, hefur verið ráðinn þjálfari hjá úrvalsdeildarliði Fjölnis í körfuknattleik og tekur hann við af Benedikt Guðmundssyni, sem réð sig á dögunum til KR. Svíar geta teflt fram öllum sínumsterkustu leikmönnum að því undanskildu að hornamaðurinn Jo- nas Källman, félagi Ólafs Stefáns- sonar hjá spænska liðinu Ciudad Real, er meiddur. Er þar svo sann- arlega skarð fyrir skildi ,,Íslendingar vita að þeir mæta mjög góðu liði sem ætlar sér að kom- ast á HM í Þýskalandi á næsta ári. Við vitum líka að Íslendingar eru alltaf öflugir mótherjar og því reikna ég með mjög spennandi leikjum. Það eru nokkir í íslenska liðinu í heimsk- lassa og fremstur þeirra er Ólafur Stefánsson sem við verðum að hafa góðar gætur á,“ sagði Linnell, þegar hann kynnti 18 manna landsliðshóp- inn á blaðamannafundi í Globen þar sem leikur þjóðanna verður. Linnell valdi fimm leikmenn frá þýska meistaraliðinu Kiel og þeirra á meðal er fyrirliðinn Stefan Lövgren, sem um árabil hefur verið talinn einn besti handknattleiksmaður heims, en hann hefur átt í töluverðum meiðslum undanfarin ár. Lövgren er 35 ára gamall en er ekki elstur sænsku leikmannanna. Aldurfor- setarnir í hópnum eru markverðirnir Tomas Svensson, sem er 38 ára gam- all og Peter Gentzel, sem er 37 ára. Gentzel sem farið hefur á kostum í þýsku deildinni í vetur kemur nú inn íliðið eftir nokkrut hlé. Landsliðshópur Svía skipaður eft- irtöldum leikmönnum. Markverðir: Peter Gentzel, Nordhorn Tomas Svensson, Portland Fredrik Ohlander, Kolding Útileikmenn: Matthias Franzén, Nordhorn Henirk Lundström, Kiel Marcus Ahlm, Kiel Pelle Linders, Kiel Erik Fritzon, Sävehof Jan Lennartsson, Sävehof Fredrik Lindahl, Redbergslid Jonas Larholm, Sävehof Martin Boquist, FCK Håndbold Stefan Lövgren, Kiel Ljubomir Vranjes, Nordhorn Dalir Doder, Aragon Kim Andersson, Kiel Kristian Svensson, FCK Håndbold Magnus Jernemyr, Torrevieja Öflugt lið Svía sem mætir Íslendingum INGIMAR Linnell, landsliðsþjálfari Svía í handknattleik, valdi í gær landsliðshópinn sem mætir Íslendingum í tveimur einvígisleikjum um sæti á HM í Þýskalandi á næsta ári. Fyrri leikurinn fer fram í Globen í Stokkhólmi 11. júní og síðari leikurinn í Laugardalshöll á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Reuters Evrópumeistarar Barcelona í knattspyrnu sýndu Evrópubikarinn á götum katalónsku borgarinn- ar í gær en liðið fór þar um í opnum vagni við gífurlegan fögnuð borgarbúa. Hér eru það Ronald- inho og Juliano Belletti sem slá trommur af miklum móð á leiðinni um borgina, en það var Belletti sem skoraði sigurmarkið gegn Arsenal á Stade de France í París, 2:1. Kári skoraði í bikarnum KÁRI Árnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði eitt marka sænsku meistaranna í Djurgården þegar þeir sigruðu 2. deildar liðið Hässleholm, 3:1, á útivelli í sænsku bikarkeppninni í gærkvöld. Djurg- ården lenti í miklu basli og staðan var lengi 1:1. Kári náði að skora um miðjan síðari hálfleik og þriðja markið kom undir lokin. Djurgården mætir úrvalsdeildarliðinu GAIS í þriðju umferð keppninnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.