Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heldur liðunum liðugum! Í Lið-Aktín Extra eru 666 mg af Glúkósamíni sem tryggir líkamanum upptöku á a.m.k. 500 mg. Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn K R A FT A V ER K Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is S töðugt berast fréttir af láti fólks í umferðinni á Íslandi. Minna fer fyr- ir fregnum af þeim sem komast lífs af í bíl- slysum, margir við illan leik. Sum- ir þeirra eiga aldrei eftir að ná sér. Útlitið er ekki bjart hjá Jó- hanni Frey Jóhannssyni eftir að hafa lent í bílslysi ásamt konu sinni, dóttur og ófæddum syni, en þrátt fyrir mótlætið eru þau já- kvæð og þakka fyrir að ekki fór verr. Mikið hefur gengið á hjá ungu fjölskyldunni í Kópavoginum á liðnum mánuðum. Jóhann Freyr Jóhannsson útskrifaðist sem húsasmíðameistari skömmu fyrir jól í fyrra. Hrönn Veronika Run- ólfsdóttir útskrifaðist sem við- skiptafræðingur í vor. Þau gengu í hjónaband og fluttu í nýtt hús- næði í maí. Um mitt sumar, nánar tiltekið föstudaginn 21. júlí, rann langþráð helgi upp. Hrönn var komin sjö mánuði á leið og hjónin ásamt 18 mánaða dótturinni Veroniku voru á leið í sumarbú- staðinn til foreldra Hrannar, sem biðu eftir þeim með heitan mat. Sú máltíð varð aldrei að veruleika og á nokkrum sekúndubrotum breyttust öll framtíðaráform ungu hjónanna. Ökumaður bifreiðar sem kom á móti þeim á Suður- landsvegi við Hólmsá dottaði við stýrið, ók yfir á rangan veg- arhelming og á hinn bílinn. Mæðgurnar sluppu ótrúlega vel og Hrönn fæddi heilbrigðan son- inn Grétar Jóhann 7. október. Jó- hann slasaðist hins vegar alvar- lega og allt útlit er fyrir að hann geti ekki í framtíðinni starfað við það sem hann lærði. Hann gerir ráð fyrir að þurfa að fara í annað nám, byrja upp á nýtt. Jafnvel í byggingarfræði í Danmörku. Breytt líf „Það er ómögulegt að segja til um hvernig þetta fer,“ segir Jó- hann. Hann getur ekki enn rétt úr vinstri handleggnum, en olnbog- inn brotnaði mjög illa í slysinu. Hjónin segjast hugsa um slysið á hverjum degi. „Þegar við kom- um upp að beygjunni við Hólmsá kom bíll yfir á okkar vegarhelm- ing og ég reyndi að sveigja frá,“ segir Jóhann. „Í stað þess að fá hann beint framan á okkur kom hann í hliðina mín megin og það bjargaði okkur öllum.“ „Ég sá hinn bílinn koma á móti okkur og svo kom hvellurinn,“ bætir Hrönn við. „Síðan velt- urnar. Þetta gerðist allt svo hratt. Eftir að bíllinn stöðvaðist á hvolfi sá ég Veroniku hágrátandi hang- andi í öryggisbeltunum. Hún virt- ist vera í lagi og það kom á dag- inn, hún hafði bara bitið í tunguna og marist eftir öryggisbeltin. Ég vissi ekkert um ófædda barnið en fann að ég hafði ekki fengið þungt högg á bumbuna. Ég náði að losa mig úr beltinu og fólk hjálpaði okkur mæðgunum út en Jóhann var fastur í bílnum í einn og hálf- an tíma. Ég var hrædd um hann, sérstaklega eftir að ég sá opna beinbrotið, og biðin var erfið.“ Jóhann segir að biðin í bílnum hafi verið skelfileg og á tímabili hafi hann talið að þetta væri búið. „Ég náði að losa mig úr beltinu en var samt illa fastur á hvolfi. Ég fann strax að olnboginn var ekki í lagi en það leið nær klukkutími þar til ég fann að vinstri fóturinn var líka út og suður.“ Foreldrar Hrannar eiga sum- arbústað í Grímsnesinu og fyrir slysið höfðu ungu hjónin margoft ekið Suðurlandsveginn. Þau segj- ast ekki hafa litið á veginn sem slysagildru fyrr en þau upplifðu það sjálf. „Þetta var eins og í bíó- mynd,“ segir Hrönn. „Þetta var fyrsta sólarhelgin í sumar. Jó- hann hætti fyrr í vinnunni þennan dag enda helgarferðin löngu ákveðin. Við fórum og keyptum nesti, lögðum af stað allt að því syngjandi og allt í einu bang.“ „Það var bara kippt undan okk- ur fótunum á svipstundu,“ heldur Jóhann áfram, „og sú tilfinning er frekar slæm. Ég hafði lagt mikla vinnu og tíma í að mennta mig og það er mjög líklegt að ég geti aldrei unnið við þetta framar. Ég er óvinnufær með öllu og verð það örugglega fram á næsta sumar.“ Tvöfaldur vegur eina leiðin Slysið hefur haft mikil áhrif á hjónin. Þau segjast vera mjög bíl- hrædd og hafi ekki treyst sér út úr bænum síðan ekið var á þau. „Ég treysti engum í umferðinni,“ segir Hrönn og Jóhann tekur í sama streng. „Það var greinilega einhver verndarengill yfir okkur. Við vorum ótrúlega heppin og við erum fegin að ekki fór verr. Hins vegar er ekki spurning að þetta slys hefði ekki orðið á tvöföldum vegi og ljóst er að það verður að tvöfalda alla vegi út frá höf- uðborgarsvæðinu. Framtak Ey- þórs Arnalds með áskorun þess efnis er því mjög þörf til að vekja athygli á mikilvægi málsins. Tvö- faldur vegur er eina leiðin til að koma í veg fyrir svona slys.“ Hjónin segja erfitt að heyra stöðugt um alvarleg slys á þjóð- vegunum. „Það er alltaf talað um þá sem deyja en ekki um alla þá sem lifa af en jafnvel sem ör- yrkjar,“ segir Hrönn. „Við erum mjög þakklát fyrir að ekki fór verr í okkar tilviki og við hugsum stöðugt um það við fréttir af öllum þessum slysum. Við höfum gengið í gegnum mjög erfitt tímabil en verið jákvæð og fengið góða og ómetanlega aðstoð frá fjölskyldu og vinum. Fyrir það viljum við þakka.“ „Greinilega einhver verndarengill yfir okkur“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Á svipstundu „Það var bara kippt undan okkur fótunum á svip- stundu, og sú tilfinning er frekar slæm,“ segir Jóhann F. Jóhannsson. Ung fjölskylda þakkar fyrir að ekki fór verr í slysi á Suðurlandsvegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Hræðilegt slys Aðkoman að slysinu sem fjölskyldan lenti í var hræði- leg og Jóhann sat fastur í bílnum í um eina og hálfa klukkustund. Í HÉRAÐSDÓMI Reykjavíkur í gær var þess krafist að ríkislög- reglustjóri og yfirmaður efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra gæfu skýrslu fyrir dómi vegna orða sem höfð eru eftir þeim opinberlega um rannsókn embættisins á meint- um skattalagabrotum fimm einstak- linga sem tengjast Baugi Group ehf. Því höfnuðu þeir og verður málið tekið fyrir í dag. Framlagning gagna fór fram í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóhannesar Jónssonar, Kristínar Jó- hannesdóttur, Tryggva Jónssonar og Stefáns Hilmarssonar gegn emb- ætti ríkislögreglustjóra en þau hafa krafist þess að Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra, Jóni H.B. Snorrasyni, yfirmanni efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra, og öllum starfsmönnum embættisins verði skylt að víkja sæti við rann- sókn á meintum skattalagabrotum þeirra. Rökstuðningur þeirra er m.a. að brotið hafi verið gegn reglu um að sakborningar teljist saklausir þar til sekt er sönnuð – vegna yfirlýsinga yfirmanna embættis ríkislögreglu- stjóra opinberlega séu þeir því van- hæfir til að fara með málið. Jón lagði fram greinargerð vegna kærunnar en þar kemur fram að orð sem höfð voru eftir Haraldi í Blaðinu 12. október 2005 séu ekki hans. Þar segir m.a.: „Ríkislögreglustjóri bendir á að framsetning blaðamanns Blaðsins á því sem fram fór á um- ræddum fréttamannafundi og það hvernig hann túlkar það sem þar fór fram er á hans ábyrgð og hans upp- lifun á því sem fram fór.“ Einnig kemur fram að orð Jóns H.B. í Blaðinu 14. nóvember sl. séu tekin úr samhengi en þar segir Jón m.a.: „Ef einhver brýtur af sér á þessu sviði þá lendir hann hjá okkur til rannsóknar.“ Segir í greinargerð- inni að þegar orðin séu skoðuð í sam- hengi við greinina í heild sinni sé ekki verið taka afstöðu til sektar. Verjendur fimmmenninganna fóru fram á að Haraldur, Jón H.B. og Andrés Magnússon, blaðamaður á Blaðinu, gæfu skýrslu fyrir dómi vegna málsins. Eftir að hafa ráðfært sig við ríkislögreglustjóra neitaði Jón að yfirmenn embættisins myndu gefa skýrslu. Sagði hann ekki eðli- legt að handhafar ákæruvalds í Baugsmálinu bæru vitni á meðan málið er enn rekið fyrir dómi. Gestur Jónsson hrl., verjandi Jóns Ásgeirs, sagðist hins vegar telja að þeim bæri skylda til að mæta fyrir dóm. Bera yfirmenn embættis ríkislögreglustjóra vitni? Tekist á um vanhæfi vegna ummæla yfirmanna í fjölmiðlum Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is VEGAGERÐIN hefur lagt í töluverðan kostn- að við undirbúning á breikkun Suðurlandsveg- ar í 2+1-veg með aðskildum akstursstefnum. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri sagðist ekki vera með nákvæma upphæð sem eytt hefði verið í verkið, en það hlypi á tugum millj- óna króna. Ekkert hefur ver- ið unnið í undirbúningi fyrir tvöfaldan veg, 2+2-útfærslu, hjá Vegagerðinni nema á þeim hluta sem liggur milli Vesturlandsvegar og Hólms- ár. Nú virðast flestir komnir á þá skoðun að tvöfalda eigi Suðurlandsveginn, og því í raun beðið eftir grænu ljósi fyrir Vegagerðina í endurskoðaðri samgönguáætlun sem lögð verður fram í jan- úar. Jón bendir á að þótt lagt hafi verið í kostnað við útfærslu á 2+1-vegi sé sá kostnaður hverf- andi þegar litið sé til heildarkostnaðar við verkefni eins og breikkun Suðurlandsvegar svo ekki megi horfa of mikið í það. Hann segir þó að hluti þess undirbúnings sem unninn hafi verið geti nýst. „Það má segja að kaflinn hérna næst borginni, frá Vestur- landsvegi upp að Hólmsá, geti nýst, við höfum alltaf gert ráð fyrir því að hann yrði 2+2. Þar er um að ræða skipulagsmál vegna þess að það þarf að fækka tengingum og gatnamótum og það á í raun við alveg upp að Lækjarbotnum.“ Mikilvægast fyrir öryggi á vegunum er að aðskilja akstursstefnur og bendir Jón á að ekki náist miklu meiri árangur við að tvöfalda en við að leggja 2+1-veg með vegriði á milli. Kostn- aðurinn við að leggja tvöfaldan veg sé um 70% meiri en við 2+1-veg. Slysatíðnin lækki ekki í neinu hlutfalli við þá auknu fjárfestingu. Þarf að breikka og styrkja vegi Kominn er tími til að breikka og styrkja marga af þjóðvegum landsins, sem sumir hverj- ir eru aðeins 6,5 metrar á breidd, samanborið við vegi sem lagðir eru í dag sem eru að lág- marki 8,5 metrar, segir Jón. Þetta á t.d. við kafla á veginum milli Reykjavíkur og Akureyr- ar. Ráðist var í miklar vegaframkvæmdir á átt- unda áratugnum og nú er að koma tími á alla þá vegi sem þá voru lagðir. Jón staðfestir að burðarlag veganna þurfi að styrkja á um tveggja áratuga fresti. Þá þarf annaðhvort að fræsa upp vegina, bæta í burðarlagið og leggja slitlag ofan á það eða bæta burðarlagi ofan á veginn og hækka hann sem því nemur. Kostn- aður við slíka endurnýjun er um tvöfalt hærri en kostnaður við endurnýjun á slitlaginu einu. Tugmilljóna kostnaður vegna 2+1 Jón Rögnvaldsson Vegagerðin hefur ekki hafið undirbúning fyrir tvöföldun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.