Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK eeee DV eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeeeeJón Viðar – Ísafold eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið 5 Edduverðlaun besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison) eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL FRÁFÖLLNUHINIR - ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ - 23. nóv - 6. des. NATIVITY STORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16 ára BÖRN kl. 6 - 8 B.i.12.ára MÝRIN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára A SCANNER DARKLY ÓTEXTUÐ kl. 10:10 B.i. 16.ára FATE COME NOI (Gerið eins og við) kl. 5:50 IL POSTO DELL'ANIMA (Staður sálarinnar) kl. 8 L'UOMO IN PIÙ (Honum er ofaukið) kl. 10:10 Sýningartímar ROFIN PERSÓNUVERND kvikmyndir.is eeee H.J. Mbl. STÓRKOSTLEGASTA SAGA ALLRA TÍMA LIFNAR HÉR VIÐ Í STÓRBROTINNI MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF. UPPLIFIÐ HINA SÖNNU MERKINGU JÓLANNA 78.000 gestir! / KEFLAVÍK THE HOLIDAY kl. 8 LEYFÐ SANTA CLAUSE 3 kl. 8 LEYFÐ CASINO ROYALE kl. 10 B.I. 14 ADRIFT kl. 10:30 B.I. 16 / AKUREYRI STURTAÐ NIÐUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 8 - 10 LEYFÐ NATIVITY STORY kl. 6 B.I. 7 SANTA CLAUSE 3 kl. 8 - 10 LEYFÐ Ítalska kvikmyndahátíðin heldur áfram í nokkra daga (4.-6. des) vegna fjölda áskorana. Misstu ekki af því besta í Ítalskri kvikmyndagerð. HAGATORGI • S. 530 1919 WWW.HASKOLABIO.IS BÖRN Munið afs lá t t inn HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI árnað heilla ritstjorn@mbl.is Kærleikur HVERJIR hafa lifað best eftir kær- leiksboðskap Jesú Krists á síðustu 100–150 árum og breytt lífi manna til hins betra svo um munar? Hverjir hafa barist fyrir náungann og þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu? Kom- ið velferð alls almennings í það horf sem við best þekkjum í dag? Ég held að það fari ekki á millimála að hér er átt við verkalýðsfélögin sem staðið hafa við hlið Krists í þessu sköpunarferli. Kristur sagði: „Það sem þið gerið mínum minnstu gerið þið mér.“ Hér eru það verkalýðsfélögin sem staðið hafa vaktina með Kristi. Elskan til náungans er einkenni verkalýðsfélag- anna. Kristur sagði: „Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig. Ég og faðirinn erum eitt og öll eruð þið systkin mín“. Þannig erum við öll eitt með Guði og þannig berjast verka- lýðsfélögin fyrir jöfnum tækifærum til allra. Í raun var Kristur mesti sósí- alisti sem uppi hefur verið á jörðinni. Síðan verkalýðsbaráttan hófst fyrir 100–150 árum hafa orðið stórstígar framfarir, bæði í tækni sem á andlega sviðinu, og velferðin mest þar sem verkalýðsfélög eru hvað sterkust á Norðurlöndum og Vestur-Evrópu. Ef barátta verkalýðsmála hefði ekki komið til værum við enn á þrælastig- inu og tækni engin. Pétur Sigurðsson. Vinstri grænir MIG langar að vita hvernig staðið var að vali á lista vinstri grænna í Suður- kjördæmi. Var ekkert forval þar eins og var í kjördæmunum á suðvest- urhorninu? Hver valdi hvern í þessu vali á listann í Suðurkjördæmi? Vinstri grænir héldu fundi á Suður- landinu en gleymdu að halda fund í Vestmannaeyjum og enginn á lista vinstri grænna á Suðurlandi kemur frá Eyjum. Ég held að vinstri grænir hafi gert stór mistök með því að hunsa Vest- mannaeyinga í þessu máli og ég efast um að margir Eyjamenn kjósi vinstri græna eftir þetta val. Og annað, í 10 fyrstu sætunum eru 7 konur og 3 karlar. Hvernig ætla þeir nú að útfæra sína eigin reglu um svokallað fléttuval, það er að segja að listinn verði karl og kona til skiptis? Eitt annað að lokum, eftir forval vinstri grænna í Suðvesturkjördæm- unum kemur upp sú staða að Gestur Svavarsson á rétt á að skipa 2. sætið í einu af þessum 3 kjördæmum sam- kvæmt þessum fléttulista og þar með fellur Álfheiður Ingadóttir niður listann. En nú heyrist mér að þeir ætli að breyta sínum eigin reglum, sem þeir eru svo stoltir af, og ætla að setja Álfheiði ofar en Gest. Skrítið mál hjá vinstri grænum, sem ég studdi, en því miður fara þeir svo mikið út og suður í mörgum mál- um að ég er alveg búinn að fá nóg af þeim. Mér sýnist einhvern veginn að þessi flokkur sé að þróast í nýjan Kvennalista. Kjósandi. Bíllykill týndist BÍLLYKILL týndist á svæði 101 í Reykjavík 3.desember sl. Lykillinn er á lyklakippu sem er lítið tuskudýr. Finnandi er beðinn að koma honum til skila á lögreglustöðina í Reykjavík. velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 50ára af-mæli. Sunnudaginn 10. desember nk. er fimmtug Agnes Antons- dóttir, Öldu- bakka 25, Hvolsvelli (frá Hólmahjáleigu). Af því tilefni verður hún, og fjölskylda hennar, með opið hús í Hvoli á Hvolsvelli laugardag- inn 9. des. nk. frá kl. 20. Brúðkaup | Gefin voru saman í Ás- mundarsafni 22. júlí sl. þau Anna Magdalena Helgadóttir og Valdimar Kristjánsson. Víkverji fór umhelgina „í jóla- hlaðborð“ á virtum veitingastað í Reykja- vík. Veitingar þar voru að mestu leyti til fyrir- myndar, þótt nokkuð hafi verið um end- urtekningar frá fyrri árum, en sennilega er gestum ekkert sér- staklega í nöp við end- urtekninguna í þessu tilviki. Víkverja rak hins vegar í rogastans þegar hann fór í fata- hengið við komuna. Eftir að hafa afhent frakkann og tekið við miða með númeri þakkaði Víkverji fyrir sig. „Verði þér að góðu,“ svar- aði dyravörðurinn. Víkverji velti fyr- ir sér hvort þetta þýddi að hann ætti að borða miðann, en komst að þeirri niðurstöðu að tvennt mælti gegn því. Í fyrsta lagi var greinilega ekki ætl- ast til að miðinn væri borðaður. Í öðru lagi vildi Víkverji fá frakkann sinn aftur þegar hann hefði gætt sér á krásunum. x x x Víkverji er dagfarsprúður maðurog lætur lítilræði allajafna ekki koma sér úr jafnvægi. Ákveðnar ávarpsmyndir geta hins vegar farið mjög í taugar Víkverja og jafnvel gert hann snakillan. Dæmi um þetta er þeg- ar bláókunnugt fólk tekur upp á að segja „vinur minn“ í tíma og ótíma. Með þessum orðum hefur notandinn bæði gert vináttu úr engu og um leið eignað sér viðmælanda sinn rétt eins og ekkert sé sjálfsagðara. Víkverja finnst reyndar nóg um þegar ókunnugir nota annað hvort „vinur“ eða „minn“ en honum finnst keyra um þver- bak þegar orðin eru bæði notuð í einu. Vík- verji fer heldur ekki í grafgötur með að hann bregst þannig við þessu ávarpi að andrúmsloftið í samtalinu fer niður fyrir frostmark og viðmæl- andi hans þarf ekki að vera sérlega kulvís til að átta sig á að eitthvað hefur farið úrskeiðis. x x x Það eru víst að koma jól. KunningiVíkverja gerði sér grein fyrir þessu í kaffitímanum í gær og lýsti yfir: „Ég kaupi allar mínar jólagjafir á Þorláksmessu.“ Honum var svarað um hæl og af nokkurri vanþóknun: „Það er af því að þú veist að þá verð- ur konan þín búin að kaupa allar jólagjafirnar … nema eina.“ víkverji skrifar | vikverji@mbl.is      dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er miðvikudagur 6. desember, 340. dagur ársins 2006 Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni. (Mark. 10,52.) MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569–1100 eða sent á netfangið ritstjorn- @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Fyrrverandi bítilseiginkonanHeather Mills vill að leikkonan Sienna Miller leiki hana í kvikmynd sem verður kannski gerð um líf hennar. Kvikmyndafyrirtækið Working Title hefur nefnt þann möguleika við Mills að koma sögu hennar á hvíta tjaldið. Kvikmyndin myndi aðallega fjalla um hjónaband Mills og Paul McCartney og skiln- aðarbaráttu þeirra.    Í kvöld heldurÍvar Bjarkl- ind, sem var að gefa út fyrstu sólóplötu sína, Blóm eru smá, út- gáfutónleika í Þjóðleikhúskjall- aranum. Platan inni- heldur alíslensk popplög, matreidd af upptökustjóranum og tónlistar- manninum Orra Harðarsyni. Fimm manna hljómsveit skipuð þeim: Orra Harðarsyni á gítar, Ragnari Emilssyni á gítar, Georg Bjarnasyni á bassa, Heimi Frey Hlöðverssyni á píanó og Orra Ein- arssyni á trommur, mun aðstoða Ív- ar við flutning laga sinna. Áður en Ívar og félagar stíga á stokk mun dauðaköntrísveitin Svið- in jörð leika óð sinn til eymdarinnar, af plötunni Lög til að skjóta sig við. Það eru útvarpsmennirnir, Magn- ús R. Einarsson og Freyr Eyjólfsson er mynda þann tregafulla en jafn- framt kómíska dúett. Húsið opnað klukkan 21. Miðasala á síðari tónleika Sálar-innar og Gospelkórs Reykja- víkur, sem fram fara í Laugardals- höllinni laugardagskvöldið 30. desember, hefst í dag, miðvikudag- inn 6. desember, á vefsvæðinu www.miði.is. Það er vísast að hafa hraðar hend- ur því miðar fóru nokkuð hratt og þétt á fyrstu tón- leikana sem voru í haust og líklegt að sú verði raunin einnig nú. Áætlað er að bæta aðeins við efnisskrána á þessum seinni tón- leikum þannig að þeir verða fyrir vikið veglegri en þeir fyrri.    Þær Yoko Ono, ekkja Johns Len-nons, og May Pang, sem átti í ástarsambandi við Lennon yfir „helgina týndu“ hafa sæst eftir að Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.