Morgunblaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 43
menning
Í TENGSLUM við útgáfu skop-
myndabókarinnar 2006 í grófum
dráttum eftir Halldór Baldursson
var ákveðið að útnefna mann ársins
2006 í grófum dráttum. Viðurkenn-
inguna hlýtur sá sem oftast kemur
fyrir í bókinni, en að þessu sinni var
það Geir Haarde forsætisráðherra.
Geir tók á móti viðurkenningu frá
Halldóri Baldurssyni skopmynda-
teiknara á útgáfuhátíð bókarinnar,
en þangað var öllum boðið sem
teiknaðir eru í bókinni ásamt vinum,
vandamönnum og velunnurum.
Í ritdómi Morgunblaðsins á laug-
ardag er bókin 2006 í grófum drátt-
um kölluð „Fyndnasta bók ársins“.
Hún inniheldur hundruð skopmynda
sem Halldór hefur teiknað fyrir
Blaðið og Viðskiptablaðið með for-
mála eftir Egil Helgason. Stefnt er
að því að gefa út sams konar bók að
ári og verður maður ársins 2007 í
grófum dráttum þá útnefndur á ný,
eftir sömu reglum.
Þau sem komu næst á eftir Geir í
valinu á manni árins voru Halldór
Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, Davíð Oddsson, Björn
Bjarnason, Steingrímur J. Sigfús-
son, Sigurður Einarsson, Bjarni Ár-
mannsson, Sigurjón Árnason og
Guðni Ágústsson.
Morgunblaðið/Golli
Viðurkenning Geir H. Haarde tek-
ur við viðurkenningarskjali úr
höndum Halldórs Baldurssonar
skopmyndateiknara.
Geir maður
ársins í
grófum
dráttum
LÍKLEGA tengja flestir nafn
Kristínar Steinsdóttur við barna-
bækur og leikritaskrif en fyrir
tveimur árum sendi hún frá sér sína
fyrstu bók fyrir fullorðna lesendur,
Sólin sest að morgni. Þar var um að
ræða afar fallegt og áhrifaríkt
sjálfsævisögulegt verk þar sem
móðurminning er í miðdepli frá-
sagnarinnar. Sagan sem Kristín
sendir frá sér núna er hins vegar
„hreinræktuð“ skáldsaga en hér
segir frá Sigþrúði, ekkju í Reykja-
vík sem komin er á efri ár og hefur
fjárhagslega ekki úr miklu að spila
en er þess útsjónarsamari þegar
kemur að því að njóta tilverunnar.
Bókinni mætti lýsa í heild sem per-
sónulýsingu; það er Sigþrúður sem
er í miðju frásagnarinnar frá upp-
hafi til enda og sjónarhornið er ætíð
bundið við hana þótt frásögnin sé í
þriðju persónu. Sagan stendur því
og fellur með því að persóna Sig-
þrúðar nái að vekja áhuga hjá les-
endum og það gerði hún svo sann-
arlega hjá undirritaðri.
Sigþrúður býr í Norðurmýrinni
og starfar sem blaðberi og lifir því á
fátæktarmörkum en hún kann þá
list að skemmta sér án mikils til-
kostnaðar. Hún hefur vakandi auga
fyrir því sem gera má ókeypis í höf-
uðborginni, fer á opnanir á myndlist-
arsýningum, á tónleika og söfn og
síðast en ekki síst sækir hún jarð-
arfarir af kappi og meðfylgjandi erfi-
drykkjur og einnig bregður hún
gjarnan undir sig betri fætinum þeg-
ar fasteignasölurnar auglýsa opið
hús. Lýsingarnar á jarðarfar-
arferðum Sigþrúðar eru víða kostu-
legar, hún nýtur þess að syngja
sálmana og lætur ekki augngotur
annarra kirkju-
gesta trufla sig;
hún nýtur veit-
inganna í erfi-
drykkjunum,
spjallar við aðra
gesti um veðrið
og lætur sig síðan
hverfa í þann
mund er nánustu
aðstandendur
hins láta koma í
hús.
Meginþráður frásagnarinnar ger-
ist í Reykjavík nútímans en í end-
urliti er sagt frá æsku Sigþrúðar og
manndómsárum. Hún er fædd norð-
ur í landi og alin upp hjá ljósu sinni,
Hallfríði, sem tók hana að sér þegar
móðirin lést í kjölfar fæðingarinnar.
Móðirin var ógift vinnukona og af
föður sínum hafði Sigþrúður ekkert
að segja annað en að frá honum erfði
hún rautt hár og freknur sem –
ásamt vanskapaðri hendi – ollu
henni ýmsum vandkvæðum í æsku
og stuðluðu að því að hún verður ein-
ræn og sérsinna. Fóstra Sigþrúðar
deyr þegar hún er unglingur og eftir
það er hún á eigin vegum og plumar
sig ágætlega, þrátt fyrir einmana-
leika og sorg sem komið er til skila á
lágstemmdan en oft áhrifaríkan hátt.
Kristín Steinsdóttir fléttar hin tvö
tímasvið frásagnarinnar, nútíðina og
fortíðina, mjög haganlega saman og
tekst með knöppum stíl og mikilli
samþjöppun (skáldsagan öll telur
136 blaðsíður) að draga upp mynd af
ævi konu sem hefur lifað marg-
breytilegri tilveru þrátt fyrir að hún
láti einhvern veginn mjög lítið yfir
sér. Sigþrúður hefur lifað tímana
tvenna, í sveit og í borg, hún er kona
sem hefur verið „trú yfir litlu“, eins
og það er gjarnan orðað í eft-
irmælum og ekki gert miklar kröfur
sjálfri sér til handa. En hún hefur þó
alltaf átt sér draum sem tengist
sögusögnum um franskt faðerni
móður hennar og í sögulok er hún á
leiðinni til útlanda í fyrsta sinn á æv-
inni, frjáls og „á eigin vegum“. Ein-
um þræði er saga Sigþrúðar saga
„óþekktu verkakonunnar“ sem öðl-
ast kannski fyrst frelsið þegar á full-
orðinsár er komið og allar skyldur að
baki. Enda blómstar Sigþrúður í
ekkjustandinu og er frásögnin einna
mest lifandi þegar sagt er frá því
hvernig hún eyðir tómstundum sín-
um, eins og minnst var á hér að ofan,
þar nýtur húmor Kristínar sín til
fulls.
Bráðskemmtileg
persónulýsing
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Kristínu Steinsdóttur. Vaka-
Helgafell 2006, 136 bls.
Á eigin vegum
Kristín
Steinsdóttir.
Soffía Auður Birgisdóttir