Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 41
dægradvöl
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3
Bg7 5. cxd5 Rxd5 6. e4 Rxc3 7. bxc3
O-O 8. Be2 b6 9. O-O Bb7 10. Dd3 e6
11. Bg5 De8 12. De3 Rd7 13. Hfe1
Hc8 14. a4 a5 15. Bb5 f6 16. Bh4 Kh8
17. Had1 g5 18. Bg3 h6 19. h4 c6 20.
Bd3 g4 21. Rd2 Dh5 22. Rc4 Ba6
Staðan kom upp á brasilíska
meistaramótinu sem lauk fyrir
skömmu. Brasilíski stórmeistarinn
Gilberto Milos (2563) hafði hvítt
gegn Jefferson Pelikan (2385). 23.
Rxb6! Rxb6 24. Bxa6 Rxa4 25. Bxc8
Hxc8 26. e5 hvítur hefur nú létt-
unnið tafl. 26...f5 27. Hb1 c5 28. d5
exd5 29. Hb7 Dg6 30. e6 d4 31. cxd4
cxd4 32. Df4 Rc3 33. Hb8 De8 34.
Hxc8 Dxc8 35. e7 De8 36. Db8 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Vit fyrir makker.
Norður
♠D7
♥D96
♦K8754
♣D52
Vestur Austur
♠8642 ♠109
♥105 ♥G73
♦ÁG1092 ♦D6
♣98 ♣ÁKG1073
Suður
♠ÁKG53
♥ÁK842
♦3
♣64
Suður spilar 4♥ Útspil er laufnía.
Það er vandaverk að taka fjögur
hjörtu niður: Austur þarf að spila tígli í
öðrum slag, sem vestur tekur og skipt-
ir aftur yfir í lauf. Þriðja laufið tryggir
vörninni úrslitaslaginn á tromp með
uppfærslu. Er þetta hægt við borðið?
Það fer eftir sögnum, en gefum okkur
að suður hafi sýnt 5-5 í hálitunum og
austur meldað lauf. Eftir útspilið veit
austur að sagnhafi er með tvö lauf. En
frá bæjardyrum vesturs gæti suður al-
veg eins átt tvo tígla og eitt lauf, svo
helsta gildran í vörninni er sú að vestur
spili tígli áfram og reyni að gefa makk-
er sínum stungu. Þá erum við komin að
kjarna málsins: austur fyrirbyggir
slíka vitleysu með því að taka á LAUF-
KÓNG í fyrsta slag og „sanna“ þannig
gosann í suður!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 kvöldmessu, 8
landræk, 9 nothæfan, 10
elska, 11 eldstæði, 13
hagnaður, 15 dýr, 18
nægtir, 21 leðja, 22 borg-
uðu, 23 klampinn, 24 eft-
irtekja.
Lóðrétt | 2 hérað, 3 smá-
aldan, 4 hugsa um, 5
veiðarfærið, 6 kubba
sundur, 7 snjór, 12 tangi,
14 leturtákn, 15 tónverk,
16 skjall, 17 kurf, 18
korgur, 19 stirðu, 20
þyngdareining.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 grett, 4 fálát, 7 rífur, 8 risum, 9 næm, 11 aurs,
13 eðla, 14 ósinn, 15 hjal, 17 næpa, 20 ugg, 22 pólar, 23
ritin, 24 romsa, 25 tánum.
Lóðrétt: 1 gorta, 2 erfir, 3 turn, 4 form, 5 lasið, 6 tomma,
10 æsing, 12 sól, 13 enn, 15 hopar, 16 aulum, 18 æstan,
19 afnem, 20 urta, 21 grút.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Veðráttan undanfarið hefur vald-ið miklum uppblæstri sunn-
anlands. Hver er landgræðslustjóri?
2 Ísólfur Gylfi Pálmason sveit-arstjóri ætlar ekki að bjóða sig
fram til þings að nýju. Hvar er hann
sveitarstjóri?
3 Sannað þykir að Díana prins-essa hafi látist af slysförum.
Hver er talin orsök slysins?
4 Helen Mirren er tilnefnd tilþrennra Golden Globe-
verðlauna fyrir leik sinn, þar á meðal
á tveimur drottningum. Hverjar eru
þær?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Keflavíkurflugvöllur hefur nú tekið yfir
ýmis verkefni sem áður voru hjá varnarlið-
inu. Hver er flugvallarstjóri í Keflavík?
Svar: Björn Ingi Knútsson. 2. Icelandic er
að loka annarri fiskréttaverksmiðju sinni í
Bandaríkjunum. Í hvaða ríki? Svar: Í Mary-
land. 3. Ung stúlka, Hulda Jónsdóttir, lék
einleik með Sinfóníuhljómsveitinni í sl.
viku. Á hvaða hljóðfæri lék hún? Svar:
Fiðlu. 4. Bónus sakar ASÍ um að hafa brot-
ið eigin vinnureglur í verðkönnun á bókum
í liðinni viku. Hver er framkvæmdastjóri
Bónuss? Svar: Guðmundur Marteinsson.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
KRISTINN Níelsson er maður tón-
mennta, starfaði um hríð sem skóla-
stjóri Tónlistarskóla Bolungarvíkur
og var formaður Tónlistarfélags Ís-
firðinga um hríð. Gönguferð á sandi
er að hluta til óður til Vestfjarðanna,
en Kristinn hefur nú söðlað um í
starfi og stýrir nú tónlistarskólanum
í Vík í Mýrdal.
Þessi plata Kristins er á köflum
nokkuð einkennileg, bæði með tilliti
til lagasmíða og því hvernig valið
hefur verið á plötuna. Því innan um
oftast fínar lagasmíðar Kristins eru
skringilegir skollar. Dæmi er
„Árshátíðin“, sem stingur óþægilega
í stúf, ódýr og kauðsk ballsveifla
sungin af Stefáni nokkrum Jónssyni.
Lagið „Staðreynd“ fellur og í þenn-
an flokk, en er ólíkt skemmtilegra
(það lag á Kristinn reyndar ekki).
Söngvarinn, Björgvin Hjörvarsson,
er ekki raddsterkur en tónlistin er
einhvers konar endursamning á því
grúvi sem Spilverkið setti á lag Meg-
asar, „Við sem heima sitjum“.
Annað er uppi á teningnum þegar
Kristinn einbeitir sér að sínu. Lág-
stemmd og þægileg tónlist, stundum
í letilegum latin-djasstakti. Stundum
er áferðin melankólísk, stundum
björt og einatt eru skiptingar og
taktbreytingar með nokkuð furðu-
legum hætti. Þetta er plötunni til
tekna og gerir að verkum að maður
sperrir frekar upp eyrun. Söngrödd
Kristins er ekkert sérstök en hún
truflar þó alls ekki.
„Sólskinsdagur“ er prýðilegt
dæmi um þann bjarta latin-djass
sem Kristinn leggur sig eftir, og
„Rigningin“ er vel heppnað sortalag
(titlarnir segja reyndar allt sem þarf
að segja). Þá verður að geta lagsins
„Hughreysting“, ein besta smíðin
hér, afar vel sungið af Telmu Björg
Kristinsdóttur og það hefði í sumum
tilfellum verið ráð hjá Kristni að fá
gestasöngvara, í stað þess að
„tækla“ þetta sjálfur. Hljómur plöt-
unnar hæfir innihaldinu, mjúkur og
hlýr og sömu sögu er að segja af fal-
legu umslaginu. Gönguferð á sandi
er þegar allt er saman tekið lítil og
notaleg plata, þar sem kostirnir eru
til muna fleiri en áðurtaldir gallar.
Af borði skólastjórans
TÓNLIST
Geisladiskur
Lög eru flest eftir Kristinn Níelsson en
Björgvin Hjörvarsson og Jón Elíasson
leggja einnig í það púkk. Harpa Jóns-
dóttir á megnið af textunum en Kristinn á
nokkra og Björgvin einn. Hljóðfæraleik-
arar og söngvarar eru Kristinn sjálfur
(gítar, söngur, fiðla), Kristinn Gauti Ein-
arsson (trommur), Valdimar Olgeirsson
(bassi), Telma Björg Kristinsdóttir (söng-
ur), Stefán Jónsson (söngur, píanó), Ön-
undur Hafsteinn Pálsson (trommur,
bassi), Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir
(harmonikka), Hermann Ási Falsson (pí-
anó), Benedikt Sigurðsson (söngur) og
Jón Elíasson (gítar). Önundur Hafsteinn
Pálsson hljóðritaði og hljóðblandaði.
Kristinn gefur sjálfur út.
Kristinn Níelsson – Gönguferð á sandi
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Skólastjórinn Að mati gagnrýnanda er Gönguferð á sandi lítil og notaleg
plata, þar sem kostirnir eru fleiri en gallarnir.