Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 19 ERLENT ÞESSI jólasveinn var í góðum fé- lagsskap fallegra fiska þegar ljós- myndara bar að garði á vinsælum köfunarstað í Islamorada á Flórída í gær. Gestir og gangandi þurfa að greiða fé í sérstakan barnasjóð fyr- ir að fá að herma eftir jólasvein- inum og kafa niður í undirdjúpin þar sem litríkir fiskar kæra sig kollótta um jólaundirbúninginn. Reuters Sveinki á kafi í búningnum Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is BRESK stjórnvöld, með David Mili- band umhverfisráðherra í broddi fylk- ingar, tilkynntu á mánudag áætlun um byggingu risaraforkubús á sjó á siglingaleiðinni að London, um 20 km undan ströndum Kent og Essex. Um- hverfisverndarsinnar hafa fagnað tíð- indunum en sjófarendur gagnrýnt staðsetningu búsins harðlega. Alls nemur kostnaðurinn vegna verkefnisins, sem ber heitið „The London Array windfarm“, um 1,5 milljörðum punda, eða sem svarar 200 milljörðum íslenskra króna, og hefur stjórnin lýst því sem tímamótaskrefi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og losun gróðurhúsalofttegunda. Stjórn Tonys Blairs forsætisráð- herra hefur legið undir ámæli fyrir frammistöðu sína í þessum málaflokki og vona ráðgjafar stjórnarinnar, að svo mikil fjárfesting í alls 341 vind- myllu sem verða 174 metrar á hæð, muni gefa henni það „græna“ yf- irbragð sem David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokkins, hefur reynt að ljá flokki sínum að undanförnu. Á hinn bóginn bendir breska dag- blaðið Independent á að vinna hafi enn ekki hafist við byggingu 10 af þeim 17 vindorkubúum á sjó sem heimild hafi verið gefin fyrir. Kemur þar einnig fram að stuðn- ingsmenn notkunar slíkrar orku telji að útbreiðsla hennar sé eina færa leið- in fyrir stjórnina til að ná fram því markmiði sínu að fimmtungur raf- orkuframleiðslunnar komi frá end- urnýjanlegri orku árið 2020, miðað við um fjögur prósent í dag. Það stærsta í heiminum Ekki eru þó allir jafn hrifnir og segja talsmenn sjófarenda og sjó- manna að búið muni ógna öryggi yfir 100 skipa sem muni sigla hjá því dag- lega og jafnframt spilla fyrir veiðum. Fullbúið árið 2008 mun vind- orkubúið framleiða 1.000 megawött af orku, sem talið er að muni fullnægja orkuþörf 750.000 heimila. Það verður langstærsta orkuver sinnar tegundar á Bretlandseyjum og raunar það stærsta í heiminum á sjó. Mun minna að umfangi verður vindorkubúið „The Thanet wind- farm“, sem stjórnin samþykkti einnig í fyrradag. Það verður ekki langt frá hinu en um 100 vindmyllur þess munu standa skammt undan ströndum Kent. Samanlagt munu þau geta séð milljón heimilum fyrir orku eða þriðja hverju heimili í London. Talið er að stærra búið muni draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um sem nemur 1,9 milljónum tonna á ári hverju en undir það fara um 230 fer- kílómetrar af haffletinum. Alls munu búin framleiða 1,3 gíga- wött af orku en til samanburðar er stefnt að því að ársframleiðsla Hellis- heiðarvirkjunar verði um 300 mega- wött árið 2010. Risavindorkubú vekur upp deilur Yfir 340 vindmyllur munu sjá fjórða hverju heimili í London fyrir rafmagniDublin. AFP. | Írsk stjórnvöld hleyptu í gær af stokkunum tuttugu ára verkefni er miðar að því að írska – öðru nafni gelíska – standi jafnfætis ensku og írskt samfélag verði þannig tvítyngt. Í stjórnarskránni frá 1937 er sagt að gelíska sé opinbert tungu- mál númer eitt en langflestir Írar nota þó enskuna fremur en gelísk- una. Gelíska var enn tunga þorra Íra fram á 16. öld en eftir að landið komst að fullu undir stjórn Bret- lands varð enskan stjórnsýslumálið og náði fljótt yfirhöndinni í borgun- um. Þetta er í fyrsta sinn í rúm 40 ár sem mörkuð er afgerandi stefna varðandi framtíð gelískunnar, og sagði Bertie Ahern forsætisráðherra að um væri að ræða „mikilvæga þró- un“ í stefnumótun þjóðarinnar. Ahern sagði að það væri nú ætlun stjórnvalda að leggja áherslu á að gera samfélagið tvítyngt og að eins margir og mögulegt væri gætu talað jöfnum höndum írsku og ensku. Í fyrra var írska gerð að 21. opinbera tungumáli Evrópusambandsins frá og með næstu áramótum en þá bæt- ast einnig við tvö önnur tungumál, rúmenska og búlgarska. Írsk stjórnvöld segja að fram hafi komið í manntali að 1,6 milljónir Íra – sem alls eru 4,3 milljónir – segðust geta talað írsku. Þar af sögðust 155.000 tala hana á hverjum degi, en 430.000 sögðust aldrei tala hana þótt þeir kynnu hana. Flestir sem töluðu hana á hverjum degi voru börn sem nota hana í skólanum. Írar ætla að efla gelísku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.