Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 41 ✝ Þorsteinn Ein-arsson fæddist þann 22. ágúst 1944 að Syðri Hlíð á Húsavík. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri þann 12. desember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Einar M. Jóhann- esson, f. 21.6. 1913, d. 15.7. 1990, og Sólveig Bergþóra Þorsteinsdóttir, f. 31.7. 1915, d. 15.5. 1998. Systkini hans eru: Hanna S. Hofsdal, f. 10.4. 1931, maki Magn- ús L. Sveinsson. Sædís Birna, f. 17.09. 1938, d. 18.11. 1940. Einar Georg, f. 19.06. 1941, maki Pálína Skúladóttir. Þórdís Steinunn, f. 14.06. 1943, maki Birgir Magn- ússon. Jóhannes Geir, f. 29.01. seinna vann hann hjá Arnljóti Sigurjónssyni rafvirkjameistara og Hauki Ákasyni rafvirkjameist- ara á Húsavík. Hann vann sem rafvirki hjá Norðurverki h.f. sem var aðalverktaki við byggingu Laxárvirkjunar 3 en síðan lá leið hans til Kísiliðjunnar við Mývatn en þar vann hann til ársins 1979. Þá réðst hann sem verkstjóri til Rafveitu Húsavíkur og sinnti því starfi til ársins 2001. Þá var heilsu hans þannig komið að hann gat ekki sinnt því starfi lengur. Þó vann hann hluta úr degi, nú í sum- ar hjá Orkuveitu Húsavíkur. Eftir að foreldrar hans skildu árið 1971 hélt hann heimili með móður sinni, fyrst að Garðars- braut 32 en síðan að Ketilsbraut 18. Þá fluttu þau í þorpið í Reykjahlíð uns þau fluttu að Baughól 26, sem Þorsteinn hafði þá byggt, og var það heimili þeirra upp frá því. Útför Þorsteins verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. 1947, maki Vilborg Njálsdóttir. Baldur, f. 11.08. 1948, maki Kristjana J. Stefáns- dóttir. Þórhallur Valdimar, f . 22.12. 1953. Þorsteinn lauk hefðbundinni skóla- göngu á Húsavík. Hann fékk snemma áhuga á myndlist og þegar gagnfræða- skóla lauk var hann einn vetur í Mynd- lista- og handíðaskól- anum í Reykjavík. Myndlist stund- aði hann síðan alla ævi sem áhugamál. Síðar lauk hann raf- virkjunarnámi hjá rafvirkjameist- urunum Grími og Árna, samhliða rafvirkjanámi í Iðnskóla Húsavík- ur. Eftir námslok vann hann sem rafvirki hjá Grími og Árna, en Þegar ég settist niður til að minn- ast mágs míns og vinar, Þorsteins Einarssonar, sem við kveðjum hinstu kveðju í dag, kom mér í hug svar átta ára dótturdóttur minnar við spurningu, sem kennarinn lagði fyrir bekk hennar fyrir nokkrum dögum. Spurt var: Hvers myndir þú óska þér, ef þú mættir velja þér eina ósk? Svar hennar var: „að allir væru góðir“. Því miður er raunveruleikinn mjög fjarri þessari frómu ósk litlu stúlkunnar. En ég sé Þorstein fyrir mér sem mann sem uppfyllti ósk litlu frænku sinnar, með lífsgöngu sinni, sem öll einkenndist af góðvild og virðingu fyrir öllu sem hann um- gekkst. Þorsteinn var einn besti og heiðarlegasti maður sem ég hefi kynnst. Þorsteini, sem við kölluðum Steina, var tamt að sjá alltaf það já- kvæða við þá sem hann umgekkst eða ræddi um. Ég heyrði hann aldrei tala illa eða leggja illt til nokkurs manns. Auðvitað hafði hann misjafn- ar skoðanir á mönnum og málefnum, en hann tamdi sér að beina um- ræðunni að því sem var jákvætt í fari manna. Það geislaði frá honum já- kvæðum straumum hvar sem hann fór. Ég hygg að öllum sem kynntust Steina hafi þótt vænt um hann fyrir góðvild hans og mannkosti. Handtak hans var fast og traust og bar vitni um hans innri mann; gegnheilan heiðursmann í orðsins fyllstu merk- ingu. Ég minnist kærleika Steina og vináttu við börn okkar hjónanna. Allt frá því að þau voru ungbörn um- gekkst hann þau eins og hann ætti í þeim hvert bein. Hann var einstakur vinur þeirra og átti stórt pláss í hjarta þeirra alla tíð. Það var alltaf jafn gaman þegar Steini kom í heim- sókn, hann var stóri vinurinn þeirra, sem þau dáðu. Steini hélt mikla tryggð við öll systkinabörn sín og voru þau mjög hænd að honum. Hann fylgdist vel með þroska þeirra og lífsgöngu og bar hag þeirra mjög fyrir brjósti og var ætíð reiðubúinn að rétta þeim hjálparhönd, ef með þurfti. Hann skreytti heimili sitt með fjölskrúð- ugum myndum af öllu þessu frænd- fólki sínu og mátti vel sjá hvernig hann ræktaði tengsl sín og hug til þeirra með myndasafninu. Í vinahópi var Steini jafnan léttur í lund og átti það til að gera góðlátlegt grín að sjálfum sér og hló þá oft glatt. Steini var mjög listrænn og skilur hann eftir sig mikið safn mynda sem hann málaði og teiknaði. Hann tók þátt í nokkrum samsýningum, m.a. sýningu sem haldin var á Húsavík, þar sem voru myndir af staðháttum og fólki á Húsavík, sem hafa að geyma sögulega heimild þaðan. Steini las mikið og lagði rækt við að afla upplýsinga og fræðast um frændfólk sitt og ættingja. Það urðu mikil kaflaskipti í lífi Steina þegar Sólveig móðir hans lést 1998. Þau höfðu haldið saman heimili eftir að foreldrar hans slitu samvist- um 1971, allt til 1993, er Sólveig lam- aðist og dvaldi á sjúkrahúsinu á Húsavík þar til hún lést. Þau voru mjög samrýnd og Steini auðsýndi móður sinni einstaka umhyggju alla tíð, ekki síst þann tíma sem hún dvaldi á sjúkrahúsinu. Þá heimsótti hann hana á hverjum degi og sat hjá henni langar kvöldstundir og hélt uppi samræðum við hana og strauk hendur hennar. Þannig stytti hann lamaðri móður sinni stundirnar. Eftir að móðir hans dó var eins og Steina fyndist tilgangurinn með líf- inu hafa brostið. Hið daglega líf hans hafði fram að því snúist um að hlúa að móður sinni, og gera allt sem í hans valdi stóð til að gera líf hennar sem bærilegast, allt annað varð að víkja og hafði ekki tilgang. Það var eins og Þorsteinn næði ekki áttum og ætti erfitt með að laga sig að þeirri breytingu sem varð við fráfall móður hans. Hann fann ekki lengur þá lífsfyllingu, sem hann naut við að annast og hlúa að móður sinni. Lífs- viljinn fann sér ekki þá rót, sem um- hyggja fyrir móður hans hafði gefið honum. Heilsu Þorsteins tók að hraka, hann gat ekki sinnt vinnunni eins og áður og varð loks öryrki. Hann var einn og lét lítið fara fyrir sér þessi síðustu ár. Hann fann helst skjól hjá Jóhannesi bróður sínum og Vilborgu konu hans. Ég vil þakka þeim fyrir þá umhyggju og hlýju sem þau auð- sýndu honum á erfiðri göngu hans, þegar halla tók undan fæti hjá hon- um. Ég og fjölskylda mín söknum góðs vinar og þökkum allar góðu stund- irnar sem hann gaf okkur á lífshlaup- inu, sem gott er að minnast. Magnús L. Sveinsson. Síminn hringir snemma á þriðju- dagsmorgni. Steini frændi hafði lát- ist þá um nóttina. Þó ég hafi fylgst með á síðustu dögum og verið var- aður við að svona gæti farið þá trúi ég því varla að þetta sé niðurstaðan. Eftir alla baráttuna síðustu árin við illvígan sjúkdóm, sjúkdóm sem oft beit sig svo fast í sálina, þá er meinið sem að lokum sigrar eitthvað allt annað. Eitthvað sem jafnvel færustu læknar vita ekki hvað er og réðu ekki við. Þorsteinn var móðurbróðir minn. En það lýsir varla nægilega vel hvaða hlutverki hann gegndi í fjöl- skyldunni. Hann var eiginlega bæði frændi og afi. Hann hélt alla tíð heimili með ömmu og þegar farið var í heimsókn til Húsavíkur þá var það alltaf til ömmu og Steina. Á meðan fullorðna fólkið gerði það sem full- orðið fólk gerir við slík tækifæri þá var það Steini sem sá til þess að smá- fólkinu leiddist ekki. Hann fór með okkur í bíltúra og gönguferðir, upp að Botnsvatni, niðrí bæ eða ofaní fjöru. Alltaf var myndavélin með í för. Í barnsminni mínu sýndi hann kærleika sinn með klappi á höfuðið eða stroku um kinn. Þegar ég kynnti mín eigin börn fyrir Steina frænda þá er framkoman við þau alveg sú sama. Steini átti aldrei sín eigin börn. Þess í stað gekk hann öllum systkinabörnum sínum, og seinna börnum þeirra, í afastað. Betri afa var ekki hægt að hugsa sér. Hjá Steina voru börn prinsar og prins- essur og komið fram við þau sem slík. Inní skáp dóttur minnar hangir bleikur pífukjóll með púffermum og kögri. Kjólinn valdi Steini og gaf 5 ára prinsessunni. Tilefnið það eitt að hann vildi gleðja hana. Sem ég skrifa þessar línur skotra ég augunum uppá mynd sem hangir á stofuveggnum. Myndin er eftir Steina og er af elsta syni mínum. Þetta er blýantsteikning með fínleg- um og nákvæmum línum. Myndina málar hann síðan með vatnslita- blýanti einsog hann gerði svo gjarn- an á síðustu árum. Fyrir aftan strák- inn teiknar hann síðan gamla fjósið í brekkunni. Lítinn torfkofa þar sem varla hefur verið pláss fyrir meira en eina kú. Þarna er líka heysáta og í bakgrunninn glittir í undirhlíðar Húsavíkurfjalls. Þetta var leikvöllur barnanna í Hlíð og þarna bjuggu amma og afi. Í myndinni tengir Steini saman 4 kynslóðir og sögu sem spannar næstum sjö áratugi. Fráfall Steina þýðir að heimilið sem amma bjó verður bráðum ekki lengur til. Að koma í heimsókn til Steina á síðustu árum var einsog að koma í heimsókn til ömmu. Þó hún hafi fallið frá fyrir átta árum þá var heimilið á Baughólnum svo nátengt minningu hennar og nærvera hennar svo sterk að það er eins og að stíga afturábak í tímann. Steini hugsaði um ömmu síðustu árin hennar með þeirri takmarka- lausu ást og virðingu sem honum ein- um var lagið. Árin síðan hún dó hafa verið honum erfið þó oft hafi einnig komið ánægjustundir. Í veikindum sínum hefur hann notið aðstoðar systkina sinna og systkinabarna sem hafa eftir megni reynt að vera hon- um stoð og stytta í harðri glímu. Það er á engan hallað þó minnst sé sér- staklega á þau Jóa og Villu og hafi þau þakkir fyrir. Magnús Birgisson og fjölskylda. Margar af mínum bestu minning- um á ég af félagsskap okkar Þor- steins Einarssonar eða Steina frænda eins og ég og fleiri systkina- börn hans kölluðum hann. Sem barn að aldri fór ég margar ferðir norður á Húsavík til ömmu og Steina. Sam- an fórum við frændurnir í fjölda eft- irminnilegra göngu- og bíltúra norð- ur á Tjörnes þar sem hann leiddi mig um ævintýraheima margbrotinnar og stórfenglegrar náttúru. Þar fræddi hann mig um það sem fyrir augu bar, sagði skemmtilegar sögur og af mikilli þolinmæði og nærgætni setti hann þarfir og langanir barns- ins í fyrirrúm. Ég man vel eftir því þegar ég var eitt sinn á leið heim frá skóla og sá úr fjarska blágræna Volvoinn hans Steina standa framan við heimili mitt. Ég tók undir mig stökk og hljóp eins hratt heim og fætur mínir og þol leyfðu. Þessi minning er lýs- andi fyrir þá eftirvæntingu sem ætíð fylgdi því að hitta hann. Vitandi það að ég var á fyrsta ári skólagöngu minnar gaf hann mér pennaveski með öllu tilheyrandi í. Þessi gjöf var bæði til þess að ég fengi skrifað það sem fyrir mig var lagt í skólanum en einnig fylgdi gjöfinni hvatning um að nota hana til myndlistariðkunar en því áhugamáli deildum við frænd- urnir. Hann bjó yfir ótrúlegri nátt- úrugáfu í þeirri list að draga upp myndir af fegurð þessa heims á lér- eft og ég komst ekki hjá því að líta upp til frænda míns hvað þann hæfi- leika varðar. Hæfni hans í þeim efn- um varð takmark mitt. Eftir heim- sókn okkar á sýningu á Kjarvalsstöðum kvaddi hann mig með þeim orðum að hann ætlaði sér að koma á sýningar á verkum mínum sem haldnar yrðu á Kjarvalsstöðum í framtíðinni. Yfirlætisleysinu, fyrir mína hönd, var ekki fyrir að fara. Hann reyndist hins vegar ekki sann- spár um þetta enda áttu leiðir mínar eftir að liggja um aðra vegu en myndlistarinnar. Eftir hann liggur fjöldi mynda sem frægustu lista- menn þessa heims gætu verið stoltir af. Það sem helst einkenndi Steina var fordómaleysi hans. Þessa gætti ekki síst þegar hann ræddi um breyskleika sinn og veikindi. Fráfall Sólveigar ömmu var Steina mikill harmur. Hann annaðist móður sína af svo mikilli alúð og umhyggju að með eindæmum þykir. Eftir andlát hennar þurfti hann að kljást við erf- iðan sjúkdóm sem fyrir margan manninn reynist erfitt að takast á við og viðurkenna, m.a. vegna út- breiddra fordóma. Steini talaði hins vegar um veikindi sín af fullkominni hreinskilni og sló með því á hleypi- dóma og ranghugmyndir manna. Hann hafði svo sannarlega kímni fyrir sjálfum sér og átti það m.a. til að segja sögur af klaufalegum sam- skiptum sínum við hitt kynið, til þess eins að menn hefðu gaman af. Nú leitar maður huggunar í því að þau séu loks saman á ný Steini og Sólveig amma. Líklega situr hann henni við hlið og strýkur hönd henn- ar líkt og hann gerði í heimsóknum sínum til hennar á spítalann á Húsa- vík. Ég veit að ég tala fyrir hönd allra þeirra sem hafa verið svo heppnir að kynnast Þorsteini Einarssyni þegar ég segi að minningarnar um hann eru geymdar í sæluríki huga okkar. Blessuð sé minning hans. Einar Magnús Magnússon. Þorsteinn Einarsson ✝ Almar Guð-laugur Jónsson fæddist á Dalvík 11. júní 1927. Hann lést á Dvalarheimilinu Dalbæ 14. desember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón Emil Ágústsson, f. 22.6. 1888, d. 4.4. 1947, og Jóhanna Sigurbjörg Hall- dórsdóttir, f. 3.10. 1891, d. 7.2. 1975. Systkini hans eru: Páll Sigurvin, lát- inn, Óli Arelíus, látinn, Halldór Ragnar, látinn, Ágúst Árni, lát- inn, Kristján Sigurberg, býr í Hafnarfirði, og Sigríður Margrét, býr á Dalvík. Árið 1955 kvæntist Almar Guð- rúnu Rut Danelíusdóttur frá Hell- issandi. Foreldrar hennar voru Danelíus Sigurðsson, f. 13.6. 1895, d. 24.10. 1961, og Sveindís Ingi- gerður Hansdóttir, f. 28.2. 1897, d. 13. 9. 1982. Börn Almars og Guðrúnar eru: 1) Alfreð, maki Helga Haraldsdóttir, þau eiga einn son og Helga á tvær dætur frá fyrra hjónabandi. 2) Halldór, maki Helena Jónasdóttir, þau eiga tvær dætur. 3) Sigfús, maki Sigrún Sigurðardóttir, þau eiga tvö börn. 4) Pálmi, maki Vilborg Sverrisdóttir, þau eiga þrjú börn. 5) Sveindís, maki Kjartan Snorra- son, þau eiga þrjú börn, Kjartan á son frá fyrra sambandi. 6) Vignir, maki Inga Yngvadóttir, þau eiga tvö börn, Vignir á son frá fyrra sambandi og Inga á son frá fyrra sambandi. 7) Dag- björt, sambýlis- maður Gunnar Gunnarsson, hún á tvær dætur frá fyrra hjónabandi. Fyrir átti Guðrún son, Danelíus Sig- urðsson, hans maki er Margrét Ellerts- dóttir, eiga þau þrjú börn, Margrét á dóttur frá fyrra sambandi. Almar og Guðrún skildu. Árið 1977 flutti Almar til Dalvíkur og hóf sambúð með Valrósu Árnadóttur, ekkju Jóhanns Ásgrímssonar Helgason- ar frá Siglufirði. Börn Valrósar og Jóhanns eru: 1) Friðbjörg, maki Ottó Gunnarsson, þau eiga þrjú börn. 2) Helga, maki Ævar Jónsson, þau eiga tvö börn. 3) Árni Steinar. 4) Óli Þór, maki Ing- unn Bragadóttir, þau eiga þrjá syni. Almar ólst upp í Holti á Dalvík. Eftir hefðbundna skólagöngu vann hann ýmis störf en mestan hluta starfsævi sinnar var hann kokkur til sjós fyrst á bátum frá Dalvík en í 17 ár á Skarðsvíkinni frá Rifi. Eftir að Almar flutti til Dalvíkur hóf hann störf hjá bygg- ingavörudeild KEA og vann þar þangað til hann lét af störfum vegna aldurs. Síðasta árið dvaldi Almar í góðu yfirlæti á Dvalar- heimilinu Dalbæ. Útför Almars verður gerð frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Þinn andi var sem undurblíður blær, sem bætti andrúmsloftið fólki í hag. Í kringum þig var kærleikurinn nær, þín kæra minning lifir sérhvern dag. Og þó að ríki sorg um sólarlag og söknuðurinn væti marga brá. Ég veit þú lifir fagran dýrðardag í dásemdum sem reyndar allir þrá. (Vilhj. S. V. Sigurj.) Aron, Daði og Freyja. Almar Guðlaugur Jónsson Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningar- greinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.