Morgunblaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 349. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is MANNLEGUR ERAGON ER EKKI OFURHETJA OG HONUM LÍÐUR OFT ILLA >> LESBÓK 1 dagur til jóla FLÓÐIÐ í Hvítá hefur mikið rénað en hún er þó hvergi nærri horfin í sinn hefðbundna farveg. Þegar ljósmyndari Morg- unblaðsins flaug yfir flóðasvæðið í gær var engu líkara en hrósa húsráðanda fyrir að hafa valið sér gott bæjarstæði, a.m.k. það besta í nágrenninu. Fært var orðið á alla bæi í gær og fóru margir strax af stað í innkaupaleiðangur. | 30–31 sumir bæirnir væru byggðir á eyjum í risastóru stöðuvatni. Ljóst má vera að vatnið mátti ekki hækka miklu meira við bæ- inn Útverk á Skeiðum, sem sést á myndinni, og víst verður að Morgunblaðið/RAX Heilu sveitirnar eins og stöðuvatn yfir að líta Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Í SJÓPRÓFUM vegna strands Wilson Muuga sem fram fóru í gær kom fram að það var ekki aðeins sjálfstýring skipsins sem bilaði heldur einnig svo- nefndur gírókompás, sem gaf til kynna að stefnan var nánast í hásuður eins og til var ætlast, jafnvel þótt skipið hefði hrakist af leið vegna hliðarvinds á stjórnborða. Vegna þessa stefndi skipið á miklu vél- arafli og á allt að 13,4 sjómílna hraða til lands án þess að áhöfnina grunaði að stefnan væri röng fyrr en alltof seint. Fram kom að gírókompásinn var bilaður fyrr í þessum mánuði og fór fram viðgerð 6. desember. Yfirstýrimaðurinn, sem var við stjórnvölinn þegar skipið strandaði, vissi ekki af viðgerðinni en sagði við sjóprófin að vitaskuld hefði hann sýnt meiri ár- vekni hefði hann vitað af biluninni. Um samskiptin við danska varðskipið Triton sagði Valeri Semjakov skipstjóri að áhöfnin hefði að beiðni Tritons gert klárt fyrir uppgöngu varðskipsliða sem sendir voru á gúmbát. Áhöfnin hefði sagt Triton-mönnum að ill- mögulegt væri að komast um borð í síversnandi öldugangi. Hann hefði ekki verið látinn vita af því að bátur hefði verið sendur af stað frá varðskipinu. „Við gátum einvörðungu skoðað það sem var í kringum okkur. Eftir 20–30 mínútur sáum við gúm- bát á bakstafni en óljóst var með fjölda bátsmanna. Hvort þeir voru sex eða sjö vissi ég ekki en báturinn var í ákveðinni fjarlægð frá skipinu, fór fram fyrir það og sneri síðan við. Við fylgdumst með en vorum ekki í sambandi við mennina og síðan hvarf bát- urinn út í myrkrið.“ Áttaviti sýndi rétta stefnu Sjópróf leiða í ljós að yfirstýrimaður vissi ekki af bilanasögu áttavita Í HNOTSKURN » Ekki aðeins sjálfstýringin í WilsonMuuga var biluð heldur einnig svo- nefndur gírókompás og gaf hann til kynna að skipið stefndi í hásuður eins og til var ætlast. » Kompásinn var bilaður fyrr í þessummánuði og fór fram viðgerð í Englandi 6. desember sl.  Sá með eigin augum | 10 ÓVENJUHLÝIR vetur síðustu árin hafa orðið til þess að birnir á Norð- ur-Spáni eru hættir að leggjast í híði, að sögn spænska dagblaðsins El País. Vitað er um 130 birni sem hafa ekki lagst í vetrardvala. Birnirnir leggjast yfirleitt í híði í október, nóvember eða desember eftir að hafa étið sig feita. Þeir vakna síðan í mars, apríl eða maí og eru þá orðnir 40 kílóum léttari. Birnirnir geta ekki lagst í dvala ef hitinn er of mikill og þeir gætu átt mjög erfitt uppdráttar síðar í vetur ef þeir fá ekki næga fæðu. „Spurn- ingin er hvort fitubirgðir þeirra end- ist allan veturinn ef fæðuna í nátt- úrunni þrýtur,“ hafði danska dagblaðið Politiken eftir Knud Erik Heller, líffræðiprófessor við Kaup- mannahafnarháskóla. Leggjast ekki í híði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.