Morgunblaðið - 19.02.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.02.2007, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is „Ég hef verið að renna aðeins yfir leikinn í huganum og það er ekki leiðinlegt að eiga slíkar minningar. Það er gömul klisja að segja að maður geti ekki lýst því hvernig manni líður og ég held að það sé bara rétt,“ segir fyrirliðinn. ÍR- hjartað slær ört hjá Eiríki sem hef- ur alla sína tíð leikið með ÍR fyrir utan eitt tímabil með KR og eitt með Holbæk í Danmörku. „Ég var í KR veturinn 1998-1999 og kunni vel við mig þar og ég á góða vini úr KR frá þeim tíma. ÍR féll úr úrvalsdeild vorið 1998 og ég vildi ekki leika í 1. deild þá. Árið eftir fékk ég tækifæri til þess að leika með danska liðinu Holbæk. Það var góð reynsla en ég ákvað koma heim eftir eitt ár þar sem námið, sem ég ætlaði mér í, heillaði mig ekki.“ „Risinn er vaknaður“ er orðatil- tæki sem notað var þegar FH-ingar náðu að landa Íslandsmeistaratitl- inum í knattspyrnu í fyrsta sinn og segir Eiríkur það orðatiltæki geta vel átt við ÍR. „ÍR er og verður stórveldi sem hefur átt erfitt uppdráttar einfald- lega vegna þess að félagið hefur ekki átt sameiginlega aðstöðu fyrir deildirnar. Við höfum verið með körfuboltann í Seljaskóla, handbolt- inn er í Austurbergi, knattspyrnan er í Mjóddinni og frjálsíþróttirnar á fjórða staðnum. Við erum því á mörgum stöðum með starfið okkar í Breiðholtinu og það hefur háð fé- laginu að mínu mati. ÍR mun ekki verða „félag“ fyrr en starfið kemst allt á einn stað þar sem hjarta fé- lagsins mun slá. Svona er þetta hjá félögum sem hafa náð árangri á undanförnum árum og ég bind miklar vonir við að nýtt íþrótta- mannvirki í Mjóddinni muni efla fé- lagið enn frekar.“ Eiríkur hefur lengi verið á meðal fremstu leikmanna landsins, snjall bakvörður sem getur leikið sem skotbakvörður og leikstjórnandi. Hann verður 33 ára gamall á þessu ári og hefur hann hug á því að leika í eitt ár til viðbótar. „Ég er með fjögurra manna fjöl- skyldu, er í krefjandi starfi og það verður alltaf erfiðara og erfiðara að finna tíma til þess að æfa eins og ég vil æfa. Lyftingaæfingar og séræf- ingar eru nauðsynlegar fyrir alla körfuboltamenn og eftir því sem ég verð eldri, hef ég fundið að ég þarf að æfa meira til þess að vera á þeim stað sem ég vil vera. Ég reikna því með að ég hætti að leika vorið 2008. Það hvetur mann áfram að ná að vinna titil með ÍR, sá fyrsti var árið 2001. Það er enn ljúfara að vinna þessa titla sem leikmaður ÍR enda er það mitt félag. Mér hefur svo sem staðið til boða að leika með ýmsum félögum hér á landi en hef ekki talið rétt að taka þeim tilboð- um. Að mínu mati er það ekki alltaf rétta leiðin að elta betri samninga hjá öðrum liðum. Vonandi hef ég gefið gott fordæmi fyrir aðra leik- menn hjá ÍR og ungu strákarnir, sem eru kjarni liðsins, eiga að mínu mati framtíðina fyrir sér.“ Einstakur leikmannahópur Leikmannahópur ÍR er að mati Eiríks einstakur þar sem kraft- miklir einstaklingar ná vel saman innan sem utan vallar. „Það heldur manni ungum að umgangast ungu strákana í liðinu. Við erum miklir vinir utan vallar og gerum ýmislegt saman. Samheldnin er að mínu mati sterkasta vopn okkar og það sést í leikjum liðsins að við erum með eitt besta liðið í dag. Ekki endilega bestu einstaklingana en sem lið getum við unnið alla. Engin spurn- ing. Jón Arnar Ingvarsson á stóran þátt í þessum árangri. Hann tók við liðinu sem þjálfari í erfiðri stöðu en okkur hefur tekist að spyrna okkur frá botninum undir hans stjórn. Jón Arnar er mjög fær þjálfari og fáir hafa eins mikla þekkingu og hann.“ Meiri ábyrgð Talið berst að þeirri þróun sem hefur orðið á undanförnum árum þar sem erlendum leikmönnum hef- ur fjölgað. Eiríkur telur að íslensk- ir leikmenn þurfi að taka meiri ábyrgð hjá liðum sínum en þegar 2-3 erlendir leikmenn séu í hverju liði sé það oft erfitt. „Ef ég mætti ráða væri bara einn erlendur leikmaður í hverju liði en það verður aldrei að veruleika. Það er erfitt að finna meðalveginn í svona málum. Lið frá fámennum bæjum þurfa á liðsstyrk að halda og fá hann erlendis frá. Ég get al- veg skilið þau rök og við erum með bandarískan leikmann, Nate Brown, og Keith Vassell sem er með tvöfalt ríkisfang; íslenskt og kanadískt. Liðin bregðast við sam- keppninni með því að styrkja sig með erlendum leikmönnum og það er skiljanlegt. Ég vona bara að ís- lenskir leikmenn taki meiri ábyrgð og bíði ekki alltaf eftir því að er- lendu strákarnir taki af skarið. Í ÍR-liðinu er að mínu mati fínt jafn- vægi. Brown og Vassell eru hluti af liðsheildinni en eru ekki einu leik- mennirnir sem geta skorað eða tek- ið fráköst. Breiddin og samstaðan er okkar vopn og eftir sigurinn í bikarkeppninni höfum við eflst enn frekar og við vitum vel að ÍR er eitt besta lið landsins í dag. Við höfum allir trú á því að liðið geti orðið Ís- landsmeistari í vor,“ sagði Eiríkur Önundarson fyrirliði ÍR. Morgunblaðið/Eggert Bikarmeistararar Aftari röð frá vinstri: Ólafur Þórisson, Fannar Freyr Helgason frá Ósi, Ómar Sævarsson, Hreggviður Magnússon, Steinar Arason. Fremri röð frá vinstri: Sveinbjörn Claessen, Davíð Þór Fritzon, Ólafur J. Sigurðsson, Nate Brown, Eiríkur Önundarson og Trausti Stefánsson. Keith Vassell og þjálfarinn Jón Arnar Ingvarsson eru ekki á myndinni. „Vonandi hef ég gefið gott fordæmi fyrir aðra leikmenn hjá ÍR,“ segir fyrirliðinn Eiríkur Önundarson „ÍR er og verður stórveldi“ Röddin er ekki upp á það besta, ég notaði hana mikið í leiknum og á bekknum þegar þess þurfti og sig- urhátíð ÍR eftir leikinn var ekki til þess að bæta ástandið á raddbönd- unum. Það var yndislegt að njóta augnabliksins með leikmönnum, þjálfurum, stjórnarmönnum og stuðningsmönnum liðsins enda ger- ist það ekki á hverjum degi að við náum að landa titli í Breiðholtinu,“ sagði Eiríkur Önundarson, fyrirliði bikarmeistaraliðs ÍR, í gær en hann var þá óðum að jafna sig eftir leik- inn og hátíðina. Stoltur fyrirliði Eiríkur Önundarson lyftir bikarnum á loft í Laugardalshöll og fagnar innilega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.