Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ  ÍR vann fyrstu opinberu körfu- knattleikskeppni sem fram fór hér á landi og hlaut silfurbikar að launum. Mótið fór fram á Kefla- víkurflugvelli með þátttöku fimm liða helgina 28.–29. apríl 1951. Það var haldið að tilstuðlan Lockheed Aircraft Overseas Corporation og afhenti aðstoðarforstjóri fyrirtæk- isins ÍR sigurlaunin.  ÍR-ingar léku einir íslenskra liða við fyrsta ameríska körfu- boltaliðið sem kom til landsins. Var það háskólaliðið „Eagles“ frá American University í Wash- ington sem kom á vegum varn- arliðsins um áramótin 1951–’52. Leikurinn fór fram á Hálogalandi 4. janúar 1952. Var um að ræða mjög þekkt lið í Bandaríkjunum er unnið hafði marga stórkeppn- ina.  ÍR-ingurinn Einar Eyfells var í hópi fimm skautahlaupara sem fyrstir fengu viðurkennd Íslands- met í skautahlaupi. Fékk hann heiðursmerki fyrir metið í afmæl- ishófi ÍSÍ 28. jan. 1951.  ÍR-ingurinn Örn Clausen setti Norðurlandamet í tugþraut, 7.452 stig, í spennandi einvígi við Frakkann Heinrich á Melavelli 29. og 30. júlí 1951. Sigraði Heinrich með 23 stigum. Var árangur Arn- ar þriðja besta afrekið í heiminum og stóð Norðurlandametið lengi.  ÍR átti annan mann í mark, Em- il Jónsson, í fyrsta landsmóti í hjólreiðum sem fram fór á Akra- nesi 1951. Vegalengdin var 33 km og hjólað kringum Akrafjall rang- sælis. Emil hjólaði á 1:15.56,6 klst. Þórarinn Magnússon skósmiður [faðir Guðmundar frjálsíþrótta- þjálfara] var yfirdómari.  ÍR-mót í sundi í nóvember 1954 komst í fréttir sakir þess að þar var froskköfun sýnd í fyrsta sinn hér á landi en hún var að ryðja sér mjög til rúms í heiminum. Gamall sundmaður ÍR, Guðmundur Guð- jónsson, nam þessa aðferð fyrstur Íslendinga úti í Kaupmannahöfn og var að byrja feril sinn sem kaf- ari hér á landi með þessari aðferð.  ÍR-ingur vann til fyrstu ólymp- íuverðlauna Íslendinga, en þar er að sjálfsögðu átt við silfurverðlaun Vilhjálms Einarssonar í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu 1956. Vilhjálmur stökk 16,26 metra sem var Norðurlanda- met og jafnframt ólympíumet um stund.  ÍR-ingurinn Valdimar Örnólfs- son gerði sér lítið fyrir og sigraði í svigi á alþjóðlegu skíðamóti stúd- enta sem fram fór í franska alpa- bænum Alped’Huez 2. og 3. febr- úar 1957. Þessi árangur Valdimars mun vera fyrsti sigur skíðamanns á erlendri grund.  ÍR-ingurinn Hrafnhildur Guð- mundsdóttir varð 14 ára gömul yngsta konan sem setur Íslands- met fullorðinna í sundi. Það gerði hún á alþjóðlegu sundmóti ÍR í Sundhöllinni í apríl 1958. Það var hennar fyrsta met, en tugir meta fylgdu í kjölfarið.  ÍR-sundgarpurinn Guðmundur Gíslason varð annar íþróttamað- urinn á eftir Finnbirni til að setja tíu met á ári. Það lék hann eftir ár- ið 1958 og einnig 1959. Guðmund- ur er fremsti sundmaður Íslend- inga fyrr og síðar, varð 92 sinnum Íslandsmeistari og setti 152 Ís- landsmet og eru boðsundsmet þá ekki meðtalin. Þá setti Guðmund- ur 37 drengjamet árið 1957 eitt og sér.  ÍR-ingurinn Vilhjálmur Ein- arsson jafnaði gildandi heimsmet í þrístökki á Laugardalsvelli 1960 er hann stökk 16,70 metra. Eng- inn stökkvari hefur komist í tæri við það síðan og er afrek Vilhjálms langelsta núgildandi Íslandsmetið.  ÍR-ingurinn Gunnlaugur Hjálmarsson var á sínum tíma meðal bestu handknattleiksmanna heims. Hann varð þriðji marka- hæsti maður HM 1961 og var val- inn í heimslið eftir þá keppni, fyrstur Íslendinga. Gunnlaugur lék 24 ár í meistaraflokki ÍR á ár- unum 1954–77. Eftir Sigmundur Ó. Steinarsson sos@mbl.is ÍR-ingar tryggðu sér fyrst Íslands- meistaratitilinn 1954 og aftur 1955 og 1957. Þess má til gamans geta að frjálsíþróttakappinn Finnbjörn Þor- valdsson lék með meistaraliði ÍR 1954. Þessi fjölhæfi íþróttamaður var einnig í Íslandsmeistaraliði ÍR í handknattleik 1946 – í eina skiptið sem ÍR hefur orðið meistari. Hann skoraði þá sigurmarkið í úrslitaleik gegn Haukum, 20:19. Fyrra gulltímabil ÍR-inga, er þeir urðu meistarar fimm ár í röð, hófst undir stjórn Helga, sem var leik- maður og þjálfari, 1960. Með liðinu þá leikmenn eins og Helgi sjálfur – sem var frægur fyrir sveifluskot sín, Einar, Guðmundur Þorsteinsson, Hólmsteinn Sigurðsson, Þorsteinn Hallgrímsson, sem hafði árið áður leikið sinn fyrsta landsleik, 16 ára, og kornungur leikmaður, Einar Bollason, sem átti síðan eftir að vera lykilmaður hjá KR. ÍR-liðið var byggt upp á leikmönnum úr vest- urbæ Reykjavíkur og var æft í ÍR- húsinu við Túngötu. Agnar og „fjölin“ Agnar Friðriksson hóf að leika með ÍR 1962. Hann var skytta góð og stórhættulegur þegar hann „fann fjölina sína“ – þá geigaði ekki skot utan af hægri kantinum. Einn besti leikmaður Evrópu Þorsteinn Hallgrímsson vakti mikla athygli á Norðurlandamótinu, Polar Cup, í Finnlandi í apríl 1964. Hann var langstigahæsti leikmaður mótsins og var Þorsteinn talinn einn besti leikmaður Norðurlanda og blaðamenn sem fjölluðu um mótið, töldu hann tvímælalaust einn af bestu leikmönnum Evrópu. Var alltaf í sigurliði Guðmundur Þorsteinsson, sem er að margra mati einn allra besti mið- herji sem Ísland hefur átt, þurfti að leggja skóna á hilluna vegna veik- inda, aðeins 22 ára að aldri, 1964. Hann vann það til frægðar að tapa aldrei leik í móti á Íslandi með ÍR. „Ég mundi vilja fá Guðmund í skólalið mitt,“ sagði bandaríski þjálfarinn Clarence Hodgers Wyatt, sem var hér á landi um tíma hausið 1961 á vegum Körfuknattleikssam- bands Íslands. 47 sigurleikir í röð Einar Ólafsson var orðinn þjálfari ÍR-liðsins ásamt Helga 1962 og þá komu ungir leikmenn fram í sjón- arsviðið, sem Einar hafði kennt galdra körfuknattleiksins í Lang- holtsskólanum, eins og Anton Bjarnason, Jón Jónasson og Birgir Jakobsson, sem styrktu liðið mikið. Birgir var öflugur varnarmaður og skytta góð. Einstefnuakstur ÍR-inga var mikill. Leikskipulag liðsins undir stjórn þeirra Helga og Einars var geysilegt. Það var ekki fyrr en 1965 sem sig- urganga ÍR var stöðvuð óvænt af KR-ingum. ÍR-liðið hafði þá leikið 32 leiki í röð á Íslandsmóti án taps og 47 sigurleiki í röð gegn íslenskum liðum. Þorsteinn meistari í Danmörku Þorsteinn fór í verkfræðinám til Danmerkur og varð Danmerkur- meistari með SISU 1966 og 1967. Gulllið Íslandsmeistarar Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR 1962. Frá vinstri: Haukur Hannesson, Einar Ólafsson, Agnar Friðriksson, Hólmsteinn Sigurðsson, Guðmundur Þorsteinsson, Helgi Jóhannsson, Sigurður P. Gíslason, Þorsteinn Hallgrímsson, Tómas Zoëga og Steindór Guðjónsson. Kóngarnir Helgi Jóhannsson og Einar Ólafsson stjórnuðu sigursælum ÍR-ingum, sem urðu Íslandsmeistarar í körfuknattleik 15 sinnum á 23 árum Fimm prinsar á ferð á gullárum ÍR Morgunblaðið/G.Rúnar Meistarinn Kristinn Jörundsson, fyrrverandi fyrirliði ÍR. ÞAÐ er á engan hallað – af fjölmörgum afreksmönnum sem Íþróttafélag Reykjavíkur, ÍR, hefur átt í 100 ár, þegar sagt er að flaggskip ÍR-inga sé og hafi verið körfuknattleikslið ÍR í karlaflokki, sem varð fimmtán sinnum Ís- landsmeistari á aðeins 23 árum – 1954 til 1977. Þá réðu ríkjum kóngarnir tveir, Helgi Jóhannsson og Einar Ólafsson, þjálfarar á tveimur fimm ára gulltímabilum og prinsarnir fimm – Þorsteinn Hallgrímsson, Guðmundur Þorsteinsson, Agnar Friðriksson, Birgir Jakobsson og Kristinn Jörunds- son, sem voru afar fjölhæfir leikmenn í hæsta gæðaflokki. Kvennalið ÍR lét einnig að sér kveða og varð Íslandsmeistari ellefu sinnum á 19 árum. „ÍR-ingar voru afar heppnir að hafa þjálfara eins og Helga Jó- hannsson og Einar Ólafsson í herbúðum sínum. Þeir voru báð- ir ávallt yfirvegaðir og rólegir, eða eins og þegar þeir léku með meistaraliði ÍR-inga – höfðu ekki hátt, heldur menn sem létu verkin tala. Báðir tveir voru frá- bærir persónuleikar,“ sagði Kristinn Jörundsson um þá þjálfara sem réðu ríkjum á gull- aldartímabili ÍR-inga í körfu- knattleik. „Ég var aðeins átta ára þegar ég hóf að æfa körfuknattleik undir stjórn Einars í Langholt- skólanum, sem var kallaður út- ungunarvél leikmanna ÍR- liðsins. Einar var afar farsæll þjálf- ari, sem þjálfaði á mjög fagleg- an hátt. Undirbjó leikmenn sína vel fyrir leiki, var skipulagður, vel lesinn og fylgdist vel með öllum nýjungum. Hann vann ekki starf sitt með hrópum og látum, heldur yfirvegun. Það var mjög gott að æfa og leika undir hans stjórn. Einar lét okk- ur endurtaka ýmsar æfingar aft- ur og aftur. Við æfðum mikið að vera undir pressu, sem kom okkur afar vel þegar út í leiki var komið. Við vorum yfirleitt miklu sterkari undir körfunni – í látum og hraða, en andstæð- ingar okkar,“ sagði Kristinn. Þess má geta Helgi og Einar urðu báðir landsliðsþjálfarar. „Þeir létu verkin tala“ KRISTINN Jörundsson, einn af prinsunum fimm á gullald- artímabili ÍR-liðsins í körfuknatt- leik – varð Íslandsmeistari sjö sinn- um á aðeins níu árum̧ 1969–1973, 1975 og 1977. Hann var afar fjöl- hæfur leikmaður; sterkur bæði í sókn og vörn. Kristinn varð ekki aðeins Íslandsmeistari með ÍR á þessum árum – hann var Íslands- meistari í tveimur íþróttagreinum 1972. Með ÍR-liðinu í körfuknattleik og Fram í knattspyrnu, en þá skor- aði hann sjö mörk fyrir Fram í 1. deildarkeppninni. Kristinn var einnig hetja Fram- liðsins 1970 á Melavellinum er hann skoraði bæði mörk liðsins í úrslita- leik Bikarkeppni KSÍ gegn ÍBV, 2:1. Stuttu eftir þann leik átti hann hvað mestan þátt í að ÍR varð Reykjavíkurmeistari, einu sinni sem oftar á gullaldarárunum – varð stigahæsti maður mótsins og besta vítaskyttan. Meistari Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.