Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 39 TVEIR stórir stjórnmálaflokkar héldu landsfundi sína helgina 18.–20. apríl sl. Ég fylgdist með umræðum fundanna í gegnum fjölmiðla eins og svo margir aðrir. Margt áhugavert kom fram og mörg fög- ur fyrirheit hjá báðum flokkum. Mikið er rætt um umhverfismál í að- draganda kosninga og má segja að það „að vera grænn“ sé í tísku. Það sem kemur mér mest á óvart er hversu lítið er rætt um heil- brigðismálin. Á lands- fundi sjálfstæðismanna var gefin út yfirlýsing um að þeir vilji fá heil- brigðisráðneytið undir sinn hatt ef þeir ná því að vera áfram í rík- isstjórn, en hvað svo? Þau 16 ár sem ég hef starfað sem hjúkrunarfræðingur man ég ekki eft- ir öðru en ráðamenn þessa lands hafi fyrirskipað niðurskurð í heilbrigð- iskerfinu. Framsóknarmenn hafa stjórnað heilbrigðismálunum sl. 12 ár, og þau hafa verið á niðurleið þessi ár, bæði heilbrigðismálin og Framsókn. Hvað ætla stjórnmálaflokkarnir að gera eftir komandi kosningar í vor varðandi þá manneklu sem nú blasir við í heilbrigðisþjónustunni. Skortur á hjúkrunarfræðingum er alvarlegt vandamál hér á landi og fer versn- andi. Ég er hrædd um að stjórnendur þessa lands séu að sofna á verðinum. Þeir virðast ekki átta sig á ástandinu og er það kannski vegna þess að þeir fá sjálfir bómullarmeðferð þegar þeir þurfa að nýta sér heilbrigðiþjón- ustuna: Fara í forgang, fá einbýli með nettengingu og einkasjónvarpi, og tala síðan um það opinberlega hversu góð þjónustan er. Sú meðferð sem ráðamenn þjóðarinnar fá gefur ekki rétta mynd af raun- veruleikanum. Ef sú mannekla heldur fram sem horfir verður að manna hjúkr- unarstöður sjúkrahús- anna að miklu leyti með erlendu vinnuafli og jafnvel fólki sem ekki hefur tilskilin leyfi. Það kallar á mikið óöryggi fyrir skjólstæðinga heil- brigðisþjónustunnar, og aukin hætta verður á mistökum. Öryggi skjólstæðinga er grund- vallaratriði til að tryggja gæði þjónustunnar. Mennt- un, reynsla og þekking hjúkr- unarfræðinga er mikilvægur þáttur til að tryggja þessi gæði. Nýlega var gerð greining á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi á stöðu hjúkrunarmönnunar sem sýnir að það vantar á annað hundrað stöðu- gildi hjúkrunarfræðinga til að sinna verkefnum sjúkrahússins og til að mæta fjarvistum vegna orlofs og veikinda. Einnig ber að hafa í huga að á næsta áratug fara 40% starfandi hjúkrunarfræðinga á eftirlaun. Landlæknisembættið hefur látið þetta mál sig varða í ljósi þess að slík- ur skortur ógnar gæðum heilbrigð- isþjónustu og öryggi sjúklinga. Alþingi samþykkti nýlega fjárveit- ingu sem gerir Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri kleift að auka nemendafjölda í hjúkrun frá og með þessu ári. Það er ekki nóg að fjölga útskrifuðum hjúkrunarfræð- ingum, þeir verða líka að skila sér út á vinnumarkaðinn, þ.e. í heilbrigð- isþjónustuna. Einnig er mikilvægt að missa ekki þá hjúkrunarfræðinga sem fyrir eru til annarra starfa en það er að gerast vegna lágra launa og mikils vinnuálags. Kæru stjórnmálamenn, það er ekki nóg að gefa fögur fyrirheit um að auka lífsgæði aldraða og sjúkra með því að byggja ný hjúkrunarheimili og fjölga hjúkrunarrýmum eða leyfa öldruðum að dvelja lengur heima með aðstoð heimahjúkrunar ef ekki fæst hjúkrunarfólk í þessi störf. Ég veit að staðan er þannig í dag að það eru til laus pláss á einhverjum dval- arheimilum en ekki er hægt að nýta þau pláss vegna manneklu. Ég auglýsi hér með eftir stjórn- málaflokki sem ætlar að beita sér í þessum málum, þann flokk kýs ég. Fleiri hjúkrunarrými – en hvaða starfsfólk? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar um manneklu í heilbrigðisþjónustunni »Hvað ætla stjórn-málaflokkarnir að gera eftir komandi kosningar í vor varðandi þá manneklu sem nú blasir við í heilbrigð- isþjónustunni. Guðrún I. Gunnlaugsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur. mbl.is ókeypis smáauglýsingar >> www.khi.is P IP A R • S ÍA • 7 0 7 8 1 Við Kennaraháskóla Íslands eru nemendur búnir undir leiðtoga- og stjórnunarstörf Nám við Kennaraháskólann veitir starfsréttindi á sviði kennslu, uppeldis og umönnunar og er einnig góður undirbúningur fyrir margvísleg önnur störf Kennaraháskólinn er leiðandi á sviði fjarkennslu og um helmingur nemenda stundar fjarnám Í námi við Kennaraháskóla Íslands er lögð áhersla á tengsl við væntanlegan starfsvettvang, rannsóknir, sköpun og miðlun Umsóknarfrestur um grunnnám er til 18. maí B.Ed. nám í grunnskólakennarafræði B.Ed. nám í leikskólakennarafræði B.Ed. nám í íþróttafræði B.S. nám í íþróttafræði B.A. nám í þroskaþjálfafræði B.A. nám í tómstunda- og félagsmálafræði >> Kennaraháskóli Íslands sími 563 3800 > www.khi.is Mótaðu framtíð Íslands > > > > LAUGARDAGINN 5. MAÍ KL 10.00 – 17.00 Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINUM FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Grillaðar SS pylsur og Appelsín SKIPULÖGÐ DAGSKRÁ FRÁ KL. 13.00 - 15.00. Trúðarnir Búri og Bína Sonny skemmtir sér og krökkunum Andlitsmálning og blöðrur Skoppa og Skrýtla Ratleikur Óperuídívurnar Davíð og Stefán Allir velkomnir! FRÍR A ÐGAN GUR FRÍTT Í ÖLL TÆK I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.