Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 151. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is EINHJÓLAÆÐI? EKKI Á ALLRA FÆRI EN Á KANNSKI EFTIR AÐ SLÁ Í GEGN >> 19 SINFÓNÍAN OG PINK FLOYD VEGGURINN DÚNDURFRÉTTIR >> 36 FRÉTTASKÝRING Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is SKORTUR á leguplássum og mannekla á Landspítala – háskólasjúkrahúsi á hvoru- tveggja þátt í því að gripið er til gangainn- lagna á sjúkrahúsinu. Meira en tugur manna, að meðaltali, liggur dag hvern á göngum LSH að sögn Jóhannesar Gunn- arssonar, lækningaforstjóra LSH. Lækna- ráð ályktaði nýverið um málið og sagði for- maður þess í Morgunblaðinu að málið snerist um einkalíf sjúklinga og öryggismál LSH. Jóhannes segir að verst sé þegar fólk tefjist dægrum saman á bráðamóttöku án þess að vera lagt inn á sjúkrahúsið. Stefnan er að sjúklingar liggi ekki lengur á bráða- deild en fjórar klukkustundir en sú er ekki raunin í reynd. „Það eru alveg dæmi um að fólk hafi verið þarna hálfu og heilu sólar- hringana á göngunum hjá okkur þegar verst er,“ segir Ófeigur Tryggvi Þorgeirs- son, yfirlæknir deildarinnar. Starfsfólk þurfi að forgangsraða eftir veikindum þess fólks sem á deildina kemur og í þetta fari mikil orka og vinna. Mest sé álagið þó á sjúklingana sjálfa og aðstandendur þeirra. Skapa smithættu Aukin smithætta er einn fylgifiska þess að hafa veikt fólk liggjandi á göngum, en það getur einnig verið bagalegt ef rýma þarf húsnæðið í skyndi. Það er líka ljóst að friðhelgi einkalífs sjúklinga sem liggja á göngum LSH er takmörkuð. Lög um réttindi sjúklinga tóku gildi árið 1997. Í 17. grein laganna segir m.a. að koma skuli fram við sjúklinga af virðingu og að heilbrigðisstarfsmaður skuli gæta þess að framkvæma nauðsynlega meðferð með þeim hætti að utanaðkomandi aðilar sjái ekki til. Jóhannes kveðst taka undir það að gangainnlagnir séu ekki sæmandi. „Einkalíf fólks er fótum troðið,“ segir Jóhannes. Að- spurður segist hann telja gangainnlagnir brot á lögum um réttindi sjúklinga. Um lausnir á málinu segir Jóhannes að slíkt verði að vinna til lengri tíma. Skort hafi ýmsar mótvægisaðgerðir sem þyrftu að vera mun öflugri. Nefnir hann göngudeildir sérfræðinga við spítalann, sjúkrahótel í ná- grenni hans, aukna heimaþjónustu og bætt- an félagslegan stuðning. Á göngum Meira er um gangainnlagnir á hjartadeild en á öðrum deildum LSH. Einkalíf fótum troðið Yfir 10 sjúklingar á göngum LSH daglega Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is HELMINGI fleiri íslenskar konur á fimmtugs- aldri greinast með langvinna lungnateppu en karlar í sama aldursflokki. Þetta er niðurstaða nýrrar íslenskrar rannsóknar sem kynnt er í Læknablaðinu í dag. Rannsóknina unnu Bryndís Benediktsdóttir heimilislæknir, Gunnar Guðmundsson, sérfræð- ingur í lyflækningum, lungna- og gjörgæslu- lækningum, Kristín Bára Jörundsdóttir hjúkr- unarfræðingur, William Vollmer tölfræðingur, og Þórarinn Gíslason lungnasérfræðingur. Lungnateppa er samheiti yfir teppusjúkdóma í lungum, s.s. langvinna berkjubólgu, lungna- þembu og lokastig astma. Sígarettureykingar eru algengasta orsök sjúkdómsins og til þeirra má rekja 80-90% allra þekktra tilfella. Í samtali við Morgunblaðið bendir Þórarinn á að í flestum löndum sé staðan sú að karlmenn fái frekar sjúkdóminn en konur. Ástæðuna megi rekja til þess að karlar reyki þar meira og starfi á stöð- um þar sem meiri mengun sé til staðar. Hann telur líklegast að miklar reykingar íslenskra kvenna séu aðalorsakavaldur þegar kemur að mikilli tíðni lungnateppu meðal kvenna. „Konur reykja minna en karlar en þær reykja jafn oft. Þær virðast hins vegar þola tóbaksreykinn verr en karlarnir.“ Búist er við því að lungnateppa verði þriðja algengasta dánarorsök í heiminum árið 2020. | 4 Íslenskar konur frá frek- ar lungnateppu en karlar Miklar reykingar íslenskra kvenna taldar aðalorsök lungnateppu hjá þeim Í HNOTSKURN »18% þátttakenda í rannsókninnireyndust með landvinna lungna- teppu. »8,1% kvenna á milli fertugs og fimm-tugs reyndist með langvinna lungna- teppu en 4,8% karla á sama aldri. „ÉG vona bara að þeir komist heilu og höldnu þarna suður eft- ir. Þá geta þeir farið í slipp og gert við það sem er eftir að gera við. Þeir verða tvo eða þrjá mán- uði að gera við botninn. Þá getur þetta orðið bærilegasta skip aft- ur,“ sagði Guðmundur Ásgeirs- son, fyrrum útgerðarmaður Wil- son Muuga, í þann mund sem skipið skreið út úr Hafnarfjarð- arhöfn um klukkan sex í gær. Tæplega hálft ár er liðið frá því það strandaði við Hvalsnes. Að sögn Guðmundar ætlaði líbanski skipstjórinn að prufu- keyra vélarnar í 6-8 klukku- stundir og ef ekkert amaði að hugðist hann taka stefnuna bein- ustu leið til Trípólí í Líbanon. Skipið sem nú ber nafnið Kar- im fékk takmarkað siglingaleyfi í gærmorgun og gildir það ein- ungis til siglingar til Trípólí, að sögn Guðmundar.Morgunblaðið/Golli Getur orð- ið bærilegt Eftir Friðrik Ársælsson og Grétar Júníus Guðmundsson TILRAUNIR Seðlabankans til að hafa hemil á verðbólgu með vaxta- hækkunum hafa sýnt að þetta tæki bankans dugir skammt. Þetta er mat Samtaka atvinnulífsins. Framkvæmdastjórn SA átti fund með forsætis- og utanríkisráðherra í gær og lagði þar áherslu á að rík- isstjórnin tæki á þeirri sjálfheldu sem stjórn peningamála og hag- stjórnin hefðu ratað í að mati sam- takanna. Telja þau að aðgerðir Seðlabankans hafi skaðað atvinnu- lífið án þess að skila árangri á móti. Atvinnulífið geti ekki þolað þá skertu sam- keppnisstöðu sem of há verðbólga, viðvarandi háir vextir og óhófleg- ar gengissveiflur hafi skapað. „Niðurstaða okkar er sú að það stjórntæki sem Seðlabankinn býr yfir, vextirnir, hefur alls ekki dugað og þessar gengissveiflur eru mjög skaðlegar. Þetta er bara eitthvað sem atvinnulífið getur alls ekki búið við,“ segir Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri SA. Áhrif á gengi og hagvöxt Krónan veiktist um rúm 2% í gær í kjölfar skýrslu Hafrann- sóknastofnunar, sem kynnt var um síðustu helgi. Greiningar- deildir viðskiptabankanna spá veikingu krónunnar og minni hagvexti verði farið að tillögum Hafró, að hluta eða að öllu leyti. Stjórn peningamála komin í sjálfheldu Vilhjálmur Egilsson ÖKUMAÐUR sem lögreglan á Sel- fossi stöðvaði á 148 km hraða á Suð- urlandsvegi við Ingólfshvol hafði neytt amfetamíns og kannabisefna, að því er þvagsýni sem maðurinn var látinn gefa leiddi í ljós. Að sögn lögreglu vaknaði grunur hjá lögreglumanninum sem stöðvaði ökumanninn um að hann kynni að vera undir áhrifum og var hann því færður á lögreglustöð. Í kjölfarið var gerð húsleit á heimili hans og fannst þar lítilræði af fíkniefnum í neyslu- skömmtum auk þess sem hald var lagt á skotvopn. Í gær lá ekki fyrir hvort maðurinn hefur leyfi fyrir því. Þvagsýnið veitir bráðabirgðanið- urstöðu og því var blóðsýni einnig tekið og sent til rannsóknar. Amfetamín og ofsaakstur  Spá veikingu | 13  Samtök | 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.