Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HEIMANMUNDURINN sem villt- ist af leið er nafn sýningarinnar sem verður í leikfimisalnum á Hvanneyri um helgina. Þar verða til sýnis verk Ragnheiðar Sigurðardóttur, en nán- ast alla ævi hefur hún eytt frítíma sínum í hannyrðir. Það er sama hvort um er að ræða hekl, prjón, útsaum, klippimyndir, silkiþrykk, postulíns- málun eða að lita svart-hvítar mynd- ir, allt sem liggur eftir hana er listi- lega gert. Hún er afar hógvær og vill sem minnst gera úr þessum afrek- um. Því sé mikilvægt að það komi fram að hún standi ekki að þessari sýningu heldur velunnarar – fimm konur sem eiga ættir að rekja til Borgarfjarðar. Segir hún þær hafa skipulagt sýn- inguna án þess að hún tæki nokkurn þátt í því. Hafi þær meðal annars sent öllum í símabókinni hennar póst. Hún segist ekki vilja mæta á sýn- inguna en þyki líklegt að skipuleggj- endurnir muni ræna henni á laug- ardagsmorgninum og fara með hana til Hvanneyrar. Aðspurð um aðdraganda sýning- arinnar segir Margrét Jónsdóttir, einn fyrrnefndra velunnara: „Allir halda að Ragnheiður sé alveg sér- stök aðeins í þeirra lífi en engan grunaði að vöggusettin væru orðin svona mörg og það sama er að segja með hnallana og klukkustrengina.“ Heimili Ragnheiðar er yfirfullt af verkum eftir hana. Í stofunni má finna handgerðar mottur og dúka, bróderuð listaverk hanga á veggjum og fagurlegur útsaumur skreytir stólana. Í eldhúsinu hangir m.a.s. út- saumur á einum veggnum sem líkir eftir munstrinu á postulíninu henn- ar. Þó er nokkuð sem óhjákvæmilega vekur nokkra athygli sem ekki er úr smiðju Ragnheiðar. Það eru fing- urbjargirnar sem hún safnar og eru í skápum víðsvegar um stofuna. Fólk er skyldugt til að kaupa fingurbjörg handa henni fari það til útlanda og reiknast henni svo til að safnið haldi hátt á fjórða þúsund fingurbjarga. Ragnheiður hefur tileinkað líf sitt að gefa gjafir öllum þeim sem tengj- ast henni. Hún heldur skrá yfir öll handverkin sem hún hefur gefið og eina talan sem hefur fengist upp úr henni er 234, og það er aðeins fyrir vöggusettin. Hún býr m.a.s. til kortin sem fylgja gjöfunum. Allt annað sem hún hefur gert er óteljandi. Ragnheiður hugsar einnig um 3-4 gamalmenni í bænum sem henni finnst eiga bágt, gefur þeim mat, hjúkrar þeim og þrífur undan þeim. Hún þykist þó ekki kannast við það og eyðir skjótt umræðuefninu. Fjöldi Borgfirðinga ætlar að lána sýningunni hluti sem Ragnheiður hefur gefið þeim í gegnum árin og magnið er slíkt að leigja þurfti heilan leikfimisal undir herlegheitin. Hefur tileinkað líf sitt því að gleðja með verkum sínum Í HNOTSKURN »Sýningin er hluti af Borg-firðingahátíð sem stendur yfir um helgina. »Ragnheiður hefur látiðsérsmíða fyrir sig yfir 200 hnalla, þann fyrsta fyrir 49 árum, sem hún bólstrar og fóðrar og gefur ferming- arbörnum. »Hún á ennþá flík sem húnprjónaði og klæddist á Þingvöllum árið 1944. » Í 47 ár hefur hún látið allagesti kvitta í gestabók heima hjá sér. Um helgina verða verk Ragnheiðar Sigurðar- dóttur til sýnis á Hvann- eyri. Ylfa K.K. Árna- dóttir spjallaði við hana og fékk að fræðast um hana og sýninguna. Handlagin Ragnheiður byrjaði að prjóna og hekla þegar hún var ung stelpa og hefur þreifað sig áfram með margs konar handlist síðan en hún segist vera alveg ómöguleg þegar kemur að bakstri. Hannyrðakona sem gleymir engu afmæli Morgunblaðið/Eyþór Fjölbreytni Ragnheiður býr til jafnt litla skó sem klukkustrengi. LEIKSKÓLARÁÐ Reykjavíkur- borgar samdi í fyrradag við Hjalla- stefnuna ehf. um að hún taki við rekstri leikskólans Laufásborgar. Samningurinn veitir skólanum heim- ild til að taka allt að 15% hærra dval- argjald en leikskólar borgarinnar. Fulltrúar Samfylkingar og VG voru samstiga og lögðu fram sam- eiginlega bókun á fundi ráðsins. Þeir telja heimildina ekki boðlega, enda eigi aðgengi að leikskólum ekki að vera háð efnahag. Þá telja þeir það stangast á við jafnræðisreglu að börn sem sitji hlið við hlið í skól- anum verði látin borga mishátt verð fyrir sömu þjónustu þar á komandi árum. Margrét Pála Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hjallastefnunnar, fagnar því að fá að halda utan um rekstur leikskóla í Reykjavík. Um téða heimild segir hún að í þeirra skólum hafi hingað til ekki þurft að nýta slíkar heimildir til fulls. „Til þess að Laufásborg fái áfram sama fjármagn og hún fékk áður þarf þessi 15% ofan á, en mark- mið okkar er að vinna að því með borginni á næstu 2-3 árum að þetta hverfi. Þeir sem eru þegar með börn á staðnum munu ekki þurfa að borga hærra gjald. Það verður ekki komið aftan að neinum,“ segir Margrét. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for- maður leikskólaráðs, tekur í sama streng og segir meirihlutann stefna að jöfnum tækifærum fyrir öll börn til að fara í hvaða leikskóla sem er, borgin sé smátt og smátt að jafna greiðslur til allra leikskóla en það taki einfaldlega tíma. Heimild til 15% meiri gjaldtöku MÁNAÐARLAUN bankastjóra Seðlabanka Íslands voru ákveðin hinn 1. maí sl. rúmar 1,3 milljónir króna samkvæmt ákvörðun banka- ráðs Seðlabankans. Frá 1. janúar 2008 hækka laun hans í rúmar 1,4 milljónir króna. Eins og undanfarin ár fær formað- ur bankastjórnar 8% álag á laun bankastjóra. Þá fá bankastjórar greidda bankaráðsþóknun eins og hún er ákveðin hverju sinni af for- sætisráðherra, nú 110 þúsund kr. Fær formaður bankastjórnar tvö- falda þóknun. Mánaðarlaun í 1,4 milljónir Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is FRÁ því að einkaleyfi í lyfsölu var afnumið árið 1996 hefur álagning í apótekum lækkað úr 61% niður fyrir 30%. Þetta segir Þorvaldur Árna- son, framkvæmdastjóri Lyfjavals. Hann segir að samkeppni á markaðinum sé hörð, en hann telur miklu skipta að það séu áfram fleiri á markaðinum en lyfjakeðjurnar tvær, Lyfja og Lyf og heilsa. Aðeins fimm smásöluaðilar eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu, fyrir utan stóru keðjurnar. Apótekum fækkaði hratt eftir að samkeppni var innleidd í smásölu lyfja. Það er hins vegar ljóst að Samkeppnisstofnun mun ekki leyfa frekari samruna á markaðinum. Á síðasta ári stöðvaði stofnunin samruna Lyfja og heilsu og Lyfjavers. Um ástæður þessarar ákvörðunar segir stofnunin: „Það er mat Samkeppniseft- irlitsins að sameiginleg markaðsráðandi staða Lyfja og heilsu og Lyfju eins og henni er lýst í ákvörðun eftirlitsins geri fyrirtækjunum kleift að samhæfa hegðun sína á markaðnum án þess að þurfa að taka tillit til keppinauta eða neyt- enda. Eru fyrirtækin þannig í stöðu til þess að takmarka samkeppni og hækka verð.“ Þorvaldur segist vera sammála þessu mati Samkeppnisstofnunar. „Keðjurnar eru ekki að keppa beint við hvor aðra, en þriðji aðili er illa séður í þeirra augum. Það kemur fram hjá Samkeppnisstofnun að reyni önnur keðjan að auka sinn hlut þá sér hin strax hvað er verið að gera og svarar því um leið. Þetta leiðir til þess að báðar keðjurnar tapa. Þetta byggist því á því að báðir hafa hag af því að láta hinn í friði. Ef hins vegar þriðji aðili, eins og ég, er til stað- ar á markaðinum þurfa keðjurnar að berjast við hann vegna þess að hann er að taka af báð- um,“ sagði Þorvaldur. Fimm sjálfstæðir smásalar eru eftir á markaði Fyrir utan Lyfju og Lyf og heilsu eru fimm sjálfstæðir aðilar á markaðinum, Garðsapótek, Laugarnesapótek, Rimaapótek, Árbæjarapó- tek og Lyfjaval, sem rekur þrjú apótek, í Mjódd, Álftamýri og bílaapótek í Kópavogi. Þegar Þorvaldur var að undirbúa opnun apóteks í Álftamýri keypti Lyf og heilsa Skip- holtsapótek og hefur rekið það síðan undir því nafni. Þorvaldur segir það nýjung að önnur stóra keðjan skuli reka apótek áfram undir gamla nafninu. Hann segist ekki velkjast í vafa um að kaupin á Skipholtsapóteki hafi verið hugsuð sér til höfuðs. Skipholtsapótek hafi t.d. boðið nikótínlyf nánast á heildsöluverði. Þorvaldur segir að lyfjabúðir fylgist vel með verðlagningu samkeppnisaðilanna. Hann segir starfsfólk reglulega gera verðkannanir líkt og stórmarkaðir gera og viðskiptavinir láti vita ef þeir eigi kost á hagstæðara verði annars stað- ar. „Þegar tekið er tillit til afslátta erum við að keyra á mjög svipaðri álagningu og dönsk apó- tek sem eru með þrisvar sinnum fleiri við- skiptavini en við. Álagningin lækkaði um 50% á þeim 10 árum sem liðin eru frá því núverandi kerfi var tekið upp. Ég var í lyfjagreiðslunefnd 1996 og á síðasta fundi var álagningin komin í 61%,“ segir Þorvaldur. Þorvaldur segir að rannsóknir sýni að verð á frumlyfjum á Íslandi sé nú sambærilegt við hin Norðurlöndin. Það sé í sjálfu sér merkilegur árangur þegar haft sé í huga að verð á flestum vörum sé mun hærra hér en á Norðurlönd- unum, sama hvort litið sé á verð á landbún- aðarvörum, dagblöðum eða brauði. Apótek Lyfjavals kom illa út í frétt í Rík- issjónvarpinu í fyrrakvöld, en hún byggðist á samanburði sem öryrki gerði á verði á lyfjum. Þorvaldur segir að upplýsingar um verðið sem birt var í fréttinni hafi verið rangar. Einhvers misskilnings hafi gætt í samskiptum starfs- manns Lyfjavals og konunnar því það verð sem fréttin byggðist á hafi aldrei verið til. Verðið sem birt var hafi verið allt að helmingi hærra en skráð hámarksverð skv. opinberri lyfja- verðskrá. Álagning á lyf hefur lækkað um 50%  Framkvæmdastjóri Lyfjavals segir lykilatriði varðandi samkeppni í smásölu lyfja að áfram verði til apótek sem standa utan stóru lyfjakeðjanna  Þær hafi ekki hag af því að keppa beint hvor við aðra Morgunblaðið/Þorkell Lyf Þorvaldur Árnason afgreiðir lyf úr bíla- apóteki Lyfjavals í Hæðarsmára í Kópavogi. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.