Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 19
Viltu
gefins
herferð
fyrir gott málefni?
AUGA – góðgerðarsjóður auglýsingaiðnaðarins
S
ÍA
–S
am
b
an
d
ís
le
ns
kr
a
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
Aðstandendur AUGA
Auglýsingar eru mikilvægur þáttur samfélagsins, með þeim er
miðlað upplýsingum um allt milli himins og jarðar; frá bókum til
bíla, stjórnmálastefnuskrám til nýjustu bíómyndanna. Ástæðan fyrir
hversu margir nýta sér auglýsingar til að koma sínum málum
á framfæri er fyrst og fremst sú að þær hafa áhrif.
Auglýsingar, afl til góðra verka
AUGA – góðgerðarsjóður auglýsingaiðnaðarins, var stofnaður af
stærstu samtökum auglýsingaiðnaðarins og fjölmiðlum til að gera
samtökum með mikilvægan boðskap en lítið fé mögulegt að nýta
sér afl auglýsinga til að koma sínu málefni í sviðsljósið, samfélag-
inu til heilla. AUGA velur eitt gott mál árlega sem fær hannaða og
birta auglýsingaherferð endurgjaldslaust. Fyrsta verkefni AUGA var
herferð um bætta netnotkun barna og unglinga sem tókst afar vel.
Ný umsókn
AUGA leitar nýrra umsókna til að velja úr verkefni næsta árs. Eitt
brýnt málefni verður valið af stjórn AUGA úr innsendum umsókn-
um. Umsóknum skal skilað á netinu, slóðin er www.sia.is/auga/.
Fyrsta verkefni
AUGA
– herferð um
bætta netnotkun
Umsækjandi var SAFT
sem er hluti af samtök-
unum Heimili og skóli.
Auglýsingastofur innan
SÍA, sambands íslenskra
auglýsingastofa, unnu
herferðina í samstarfi við
SAGA FILM. Herferðin
var birt í öllum fjölmiðlum
landsins með tilstyrk
Vodafone. Capacent
Gallup vann forrannsóknir
og mælingar árangurs.
Markaðsverð herferðar-
innar var u.þ.b. 20
milljónir.
Árangur af herferðinni var
góður. Hún vakti mikla
athygli og hratt af stað
víðtækri umræðu um
netnotkun í samfélaginu.
Mælingar Capacent sýna
að hún hafði jákvæð áhrif
á afstöðu ungs fólks til
netnotkunar.
„Niðurstaðan var faglega
unnin herferð sem skilaði
góðum árangri og er
öllum til sóma er að henni
komu.“
Guðberg K. Jónsson
Verkefnastjóri SAFT