Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hrafnkell Aðal-steins Jónsson fæddist á Vað- brekku í Hrafnkels- dal 3. febrúar 1948. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Egils- stöðum 29. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jón Jóns- son, bóndi í Klaust- urseli og síðar verkamaður á Egilsstöðum, f. 18. janúar 1912, d. 31. júlí 1992, og Guðrún Aðalsteinsdóttir, húsmæðrakenn- ari, húsfreyja í Klausturseli og ráðskona við Menntaskólann á Egilsstöðum, f. 25. maí 1923, d. 24. sept. 1999. Systkini Hrafnkels eru Aðalsteinn Ingi, bóndi í Klaust- urseli á Jökuldal, f. 12. okt. 1952, Jón Hávarður, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, f. 17. nóvember 1957, Rósa, hjúkrunarfræðingur í Hafnarfirði, f. 14. júní 1962, og Ingibjörg Jóhanna, kennari í Reykjavík, f. 10. ágúst 1964. Bróð- ir Hrafnkels, samfeðra, er Sig- urður bóndi á Víkingsstöðum á Völlum, f. 24. janúar 1947, d. 6. mars 2000. Móðir hans er Ingi- Hrafnkell stundaði nám við Al- þýðuskólann á Eiðum. Hann út- skrifaðist frá Bændaskólanum á Hólum 1969 og Endurmenntun Háskóla Íslands í opinberri stjórn- un og stjórnsýslu 2004. Hann var bóndi í Klausturseli á árunum 1969-1974 en flutti þá til Eski- fjarðar. Þar stundaði hann fyrst almenn verkamannastörf. Hann fór strax að taka þátt í starfi Verkalýðsfélagsins Árvakurs, var formaður þess um tuttugu ára skeið og starfaði að málefnum verkalýðsfélaga um áraraðir. Sat í bæjarstjórn á Eskifirði og var for- seti bæjarstjórnar og starfandi bæjarstjóri um tíma. Starfaði á vettvangi sveitarstjórnarmála um árabil á Austurlandi. Hann átti sæti á framboðslistum Sjálfstæðis- flokksins til Alþingis, varð vara- þingmaður og tók sæti á Alþingi sem slíkur. Hrafnkell flutti upp í Egilsstaði 1996 er hann tók við stöðu héraðsskjalavarðar og því starfi gegndi hann til dauðadags. Samhliða daglegum störfum sinnti hann sjálfstæðu fræðastarfi og liggur eftir hann mikið magn efnis bæði birt og óbirt. Árið 2006 stóð hann að stofnun Hreindýraseturs á Skjöldólfsstöðum ásamt fjöl- skyldu sinni. Hrafnkell verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. björg Sigurðardóttir ráðskona á Hallorms- stað, f. 15. sept. 1924. Hrafnkell kvæntist 8. júlí 1969 Sigríði M. Ingimarsdóttur frá Skriðufelli í Jökuls- árhlíð, f. 14. nóv. 1948. Foreldrar hennar eru Ingimar Jónsson, bóndi á Skriðufelli, f. 21. október 1922, d. 19. desember 1993, og Fjóla Kristjánsdóttir, húsfreyja á Skriðu- felli, f. 15. október 1923. Börn Hrafnkels og Sigríðar eru: 1) Bjartmar Tjörvi, hugbúnaðar- fræðingur hjá Hugur/Ax, f. 16. apríl 1969, maki Kristbjörg Jónas- dóttir frá Eskifirði, f. 14. febrúar 1971. Börn þeirra eru Embla Ósk, f. 14. apríl 1999, og Hrafnkell Ísar, f. 17. september 2002. Dóttir Kristbjargar og Halldórs A. Hall- dórssonar er Tara Ösp, f. 20. des- ember 1989. 2) Fjóla Margrét fjár- málafulltrúi hjá ESS á Reyðar- firði, f. 16. nóvember 1972. Dóttir hennar og Þráins Ragnarssonar er Þorgerður Sigga, f. 28. júní 2004. Elsku pabbi minn Þeir eru búnir að vera skrýtnir hjá okkur síðustu mánuðir. Alveg síðan þú veiktist þann 5. september höfum við barist saman fjölskyldan og stað- ið saman í gegnum þetta allt saman. Þú okkar sterkastur, lengst af alveg ákveðinn í því að láta ekki þennan ill- víga sjúkdóm buga þig. Alveg eins og með allt annað sem þú tókst þér fyrir hendur. Mottóið þitt lifir svo sannarlega: ,,Það eru ekki til vanda- mál heldur aðeins verkefni, og þau eru til þess að leysa þau.“ Þú barðist svo sannarlega til hinstu stundar og oftast nær með húmorinn í lagi. Þú hefur alltaf verið hetjan mín, verið mín fyrirmynd í flestöllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Ég upplifði okkur alltaf sem svo mikið „team“. Ég stóð með þér, hvað sem mér svo sem fannst um það sem þú varst að gera, og þú stóðst svo sannarlega með mér. Allt sem mér hefur dottið í hug að gera, hversu ógáfulegt sem það var, það gastu réttlætt. Auðvitað leiddir þú mig alltaf aftur yfir á „beinu“ brautina, þ.e. brautina sem þér fannst að ég ætti að fara. Við vorum auðvitað oft búin að deila um fólk og málefni en aldrei urðum við ósátt. Við vorum bestu vinir, alltaf 100% trú hvort öðru. Þú tókst föð- urhlutverkið að þér fyrir hana Þor- gerði Siggu. Það sem hún hefur allt- af verið ánægð með hann afa sinn. Ég kem til með að viðhalda minning- unni um þig í huga hennar og hjarta. Hún veit að afi er núna í hjartanu hennar og Jesús passar þig. Pabbi minn, þú og mamma hafið gefið mér svo ótrúlega gott líf. Þið hafið bæði verið mér máttarstólpar og alltaf hef ég komið til ykkar aftur og aftur því hvergi er eins gott að vera eins og hjá ykkur. Ég á eftir að sakna þín mikið en ég veit að þú kemur til með að vaka yfir okkur alla tíð. Elsku pabbi. Hvíl í friði. Þín dóttir, Fjóla. Það er mikill skaði að fráfalli Hrafnkels A. Jónssonar frá Klaust- urseli. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til Hrafnkels frænda míns er sú sterka réttlæt- iskennd sem lá eins og rauður þráð- ur í gegnum allt hans líf. Hann var heiðarlegur maður með kjark til þess að segja skoðanir sínar og jafn- framt nógu leitandi til þess að skipta um skoðun ef réttlætiskennd hans sagði honum að gera það. Slíkir menn skipta stundum um viðhlæj- endur en ekki vini. Hrafnkell vildi samferðamönnum sínum vel og fyndist honum sér verða það á að brjóta á einhverjum, féll honum það þungt. Hrafnkell tók mikinn þátt í stjórn- málum, bæði í verkalýðshreyfingu, sveitarstjórnarmálum og landsmál- um. Hann varð samt ekki atvinnu- maður í stjórnmálum. Til þess hafði hann marga góða hæfileika en kunni þó ekki allt sem stjórnmálamaður þarf að kunna til þess að ná verulega langt. Hann vantaði hæfileikann til þess að látast ekki sjá það sem hon- um fannst rangt og átti erfitt með að þegja þegar æðra settir menn fóru með vitleysu. Samskipti okkar Hrafnkels ná lengra aftur en minni mitt. Þau byrj- uðu á Vaðbrekku en seinna kom ég oft í heimsókn í Klaustursel og stóð lengi við. Samgangur okkar varð síð- an mismikill eftir því hvar við vorum staddir í veröldinni en mér finnst að við höfum alltaf náð að brúa þau bil með löngum og góðum samtölum þegar við hittumst. Það var einn af skemmtilegustu eiginleikunum í fari Hrafnkels hvað hann hafði gaman af samtölum. Hann hafði lag á að dýpka samræður og nota þær til að kenna og læra sjálfur. Að því leyti líktist hann móður sinni, Guðrúnu, sem var ákaflega vel gefin kona. Hrafnkell var ekki langskólageng- inn maður en hann var afar vel menntaður. Hann skrifaði og birti margar greinar um sagnfræðileg efni og þær eru af háum gæðaflokki. Það virtist á köflum óhugsandi að maður kæmi nokkurs staðar að tóm- um kofunum hjá honum þegar rætt var um landsins gagn og nauðsynjar og áhugann vantaði aldrei. Þetta gerði hann að ómetanlegum starfs- manni Héraðsskjalasafns Austur- lands og þeir eru margir sem sóttu bæði fróðleik og hugmyndir til hans. Sennilega er áhugi á mannlífinu ein- mitt skýringin á því hvers vegna honum gekk svona vel að afla sér þekkingar og halda henni skipulega til haga. Sá áhugi tengist tvímæla- laust réttlætiskenndinni sem nefnd var í upphafi. Enginn getur haft sterka réttlætiskennd nema honum finnist fólk mikils virði. Veikindi Hrafnkels voru löng og erfið. Fjölskylda hans studdi hann í gegnum þau af einstökum styrk og alúð sem segir sína sögu um það hvers konar maður hann var. Hann átti einlæga ást og virðingu sinna nánustu og var því meira metinn sem menn þekktu hann betur. Þann- ig hitta allir sjálfan sig fyrir og þó að fráfall Hrafnkels sé sorglegt og ótímabært þá vekur líf hans virðingu og aðdáun. Eftir dauða hans er skarð fyrir skildi. Við Dagný og synir okk- ar vottum Diddu, Tjörva og Fjólu og fjölskyldum þeirra innilegustu hlut- tekningu. Kristján Jóhann Jónsson. Hrafnkell frændi minn er látinn, þar er genginn góður drengur. Mín- ar fyrstu minningar um Hrafnkel tengjast pólitík og líka þær síðustu. Þegar Hrafnkell bjó í Klausturseli rökræddu hann og pabbi gjarnan um pólitík í sveitasímann. Mig minnir að á þeim tíma hafi þeir verið á önd- verðum meiði. Rökræðurnar urðu gjarnan háværar og ég, barnið, gat aldrei almennilega skilið um hvað þeir voru að tala. Mikið held ég samt að þeir frændur hafi gert fólkinu í sveitinni lífið leitt með þessum sím- tölum, ekkert spennandi að hlusta, ímynda ég mér. Maður spyr sig hvers vegna Hrafnkell er tekinn frá okkur langt fyrir aldur fram. Ég held að svarið sé einfalt, það vantaði kosninga- stjóra í himnaríki. Hrafnkell var fram á síðustu stundu að spá í stjórn- mál. Þrátt fyrir veikindin var hann að sjá til þess að þeir sem að honum sneru færu á kjörstað, fyrst í próf- kjörskosningum Sjálfstæðisflokks- ins sl. haust og síðan í alþingiskosn- ingum síðustu. Ég kom til hans á kjördag og þá vildi hann fullvissa sig um hvort dóttir mín og kærasti hennar, sem dveljast í Danmörku, hefðu örugglega kosið. Hrafnkell gekk í gegnum erfið veikindi frá því á haustdögum 2006. Um skeið leit allt betur út, en svo fór að síga á verri hliðina aftur. Þegar veikindin voru orðin þannig að hann heyrði og sá mjög illa kom ég til hans einu sinni sem oftar. Ég fór að spyrja hann frétta, hvort væri ekk- ert slúður af sjúkrahúsinu. Þá svar- aði Hrafnkell: „Ég er ekki rétti mað- urinn til að spyrja að því, ég er nú eiginlega orðinn bæði blindur og heyrnarlaus,“ og svo glotti hann. Þessu var hlegið að í marga daga, húmorinn hjá honum var alltaf til staðar. Við Fúsi minn og börnin okkar viljum senda fjölskyldu Hrafnkels okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi algóður guð vera með ykkur og styrkja. Margrét Aðalsteinsdóttir. Fallinn er í valinn langt fyrir aldur fram góður samferðamaður í lífinu, Hrafnkell Aðalsteinn Jónsson aðeins 59 ára gamall. Ég hefi alltaf haft jákvæðar taugar til Hrafnkels, ekki síst fyrir þá sök að ég vann með föður hans Jóni Jónssyni í skógræktinni í Hall- ormsstað sumrin ’71 og ’72. Jón tók mig þá oft með sér í mat og kaffi til konu sinnar Guðrúnar Aðalsteins- dóttur, sem var annáluð matreiðslu- kona og mikill mannvinur. Hrafnkell flutti ungur til Eski- fjarðar ásamt sinni góðu konu Sig- ríði Ingimarsdóttur. Áttu þau heim- ili þar frá 1974 til 1996 og ólu þar upp sín börn, Tjörva og Fjólu Margréti. Sigríður vann um árabil á leikskól- anum Melbæ og var einkar nærgæt- in og fær í starfi, lék á gítar og söng. Hrafnkell byrjaði sína vinnu á véla- verkstæði Hraðfrystihúss Eskifjarð- ar hf., þar sem faðir minn var verk- stjóri og þótti sveitamaðurinn og Jökuldælingurinn strax liðtækur þar, þótt hann hefði ekki unnið við slíka vinnu áður. Enda kunna þeir sem alast upp í sveit sitt af hverju og skáka borgar- og bæjarbörnunum á fjölmörgum sviðum. Hrafnkell byrjaði snemma að taka þátt í verkalýðsmálum eftir komuna til Eskifjarðar og var fljótlega kjör- inn til forystu í verkalýðsfélaginu Árvakri á Eskifirði. Það gat gustað af Hrafnkatli og hann hleypti lífi í félagið og styrkti svo um munaði. Var vel máli farinn, átti auðvelt með að virkja fólk til starfa og var manna duglegastur sjálfur. Atvinnurekendur fengu að finna fyrir breytingunum og hann var einatt trúr sínum umbjóðendum. Pólitískur áhugi Hrafnkels kom fljótlega í ljós. Hann var kjörinn í bæjarstjórn Eskifjarðar fyrir Al- þýðubandalagið 1978. Sjálfsagt hefur Hrafnkell verið erfiður sínum flokkssystkinum ef hans skoðun var á skjön við flokks- línuna. En hann var alla tíð trúr sinni samvisku og hikaði ekki við að láta sverfa til stáls ef honum var mis- boðið. Þetta fékk Alþýðubandalagið að komast að raun árið 1982 og einn- ig Sjálfstæðisflokkurinn 1990 hér á Eskifirði í bæjarstjórnarkosningum. Þegar hann sagði skilið við þessa flokka varð frjálst fall í fylgi hjá þeim í kjölfarið. Alþýðubandalagið náði aldrei að rétta úr kútnum en Sjálfstæðisflokknum varð það til happs að Hrafnkell gekk aftur til liðs við flokkinn. Til marks um mikið persónufylgi Hrafnkels skal hér nefnt að hann bauð fram óháð fram- boð, E-listann, 1986 og náði inn 2 mönnum í 7 manna bæjarstjórn. Hrafnkell var duglegur bæjarstjórn- armaður. Hann gegndi starfi forseta bæjarstjórnar og leysti bæjarstjór- ann af í sumarleyfum. Ennfremur var hann virkur í stjórn umf. Austra um árabil. Síðustu misserin átti Hrafnkell við heilsuleysi að stríða og nú er þessi stóri, hrausti og litríki merkismaður allur. Ég heimsótti Hrafnkel á sjúkra- húsið á Egilsstöðum nýlega. Þá var líkamlega mjög af honum dregið en hann var með skýra hugsun og hafði skoðun á mönnum, málefnum og landsmálunum eins og honum var líkt. Ljóst var að ásakanir og kaf- bátahernaður gegn honum, sem stjórnarformanni í Lífeyrissjóði Austurlands lá þungt á honum og gat hann ekki leynt vonbrigðum sín- um í þeim efnum. Að leiðarlokum vil ég þakka Hrafnkatli fyrir góð og farsæl kynni og sendi Sigríði eiginkonu hans, börnum þeirra hjóna Tjörva og Fjólu Margréti svo og öllum að- standendum mína innilegustu sam- úð. Emil Thorarensen. Það er alltaf jafn sárt og því fylgir djúp sorg að missa ættingja og góð- an vin á besta aldri. Enn er það krabbinn sem heggur skörð í frænd- garðinn. Það skarð er stórt sem Hrafnkell var fyrir. Hrafnkell var alla tíð kær vinur vina sinna og jafn- an ráðagóður. Hann var þeirrar gerðar að geta sett sig í spor manna og verið ráðgefandi frá þeirra sjón- arhóli. Þess nutu margir. Hrafnkell var félagsmálatröll. Það átti því vel við hann að starfa fyrir verkalýðshreyfinguna, starfa með fólki og fyrir fólk. Standa í samn- ingaþrefi og leita sátta. Sem formað- ur verkalýðsfélagsins á Eskifirði naut hann sín vel og einnig í þeim ótal trúnaðarstörfum sem honum voru falin fyrir verkalýðshreyf- inguna á Austurlandi og ASÍ. Það var í anda hans sterku skoð- ana á velferð samborgaranna og þjóðmála að hann fór snemma að skipta sér af stjórnmálum. Sem ung- ur maður aðhylltist hann stefnu vinstri manna og var um tíma í Al- þýðubandalaginu. Hann stofnaði sérframboð á Eskifirði og sópaði að sér fylgi í bæjarstjórnarkosningum. Hann gekk síðan til liðs við Sjálf- stæðisflokkinn þegar „bernsku- brekin“ rjátluðust af honum og starfaði með honum síðan. Hrafnkell var bæjarfulltrúi fyrir flokkinn á Eskifirði og mikilvirkur í sveitar- stjórnarmálum á Austurlandi, m.a.. sem formaður SSA. Hrafnkell bauð sig fram til Al- þingis og var varaþingmaður í tvö kjörtímabil, 1987-1995. Sú ákvörðun hans að bjóða sig ekki fram í próf- kjöri árið 1995 var örlagarík fyrir mig. Hrafnkell hafði tekið þá ákvörð- un að fara þess á leit við frænku sína að hún gæfi kost á sér í „alvöru“ sæti í prófkjörinu. Mér er minnisstæð heimsóknin þegar Hrafnkell mætti heim í stofu á Seyðisfirði, til þess að tala fyrir þessari hugmynd sinni. Hann taldi meðal annars að nú væri runninn upp tími kynjajafnréttis. Nú yrðu konur að fara að gera sig gild- andi í landsmálapólitíkinni og þar sem ég væri orðin vel sjóuð í sveit- arstjórnarpólitíkinni yrði ég að taka slaginn. Þegar Hrafnkell kvaddi þennan dag var frá því gengið að ég skyldi reyna við prófkjörið. Hann sagðist styðja mig og gerði það svo sannarlega. Hrafnkell var maður orða sinna. Það er ekki þar með sagt að hann hafi ekki getað skipt um skoðun bæði á mönnum og málefnum. Hreinskilni var reyndar einn af hans góðu kostum og oft fékk ég góða dembu hjá honum ef honum fannst að ég eða flokkurinn værum ekki á réttri leið. Hrafnkell komst líka ævinlega í ham þegar kosningar nálguðust. Hann þekkti umræðuna meðal fólks- ins og vissi hvar þyrfti að bregðast við. Hrafnkell var mikill Austfirðingur og bar hag Austurlands mjög fyrir brjósti, en einnig Héraðsmaður og Jökuldælingur. Hann var mikill grúskari og ættfræðingur og því átti starf héraðsskjalavarðar óskaplega vel við hann. Hann var einnig farinn að láta verulega að sér kveða við rit- un ættarsögunnar og eigum við frændfólk hans honum mikið að þakka í þeim efnum. Við hjónin færum Sigríði, Tjörva, Fjólu og fjölskyldum þeirra innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum þeim huggunar og styrks í sorg þeirra. Arnbjörg og Garðar Rúnar. Hrafnkell A. Jónsson héraðs- skjalavörður er látinn eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands að kvöldi þriðjudagsins 29. maí síðast- liðins, 59 ára að aldri. Hrafnkell tók við starfi héraðs- skjalavarðar við Héraðsskjalasafn Austfirðinga á Egilsstöðum um mitt ár 1996 og var forstöðumaður safns- ins til dauðadags. Við, samstarfsfólk Hrafnkels við Safnahúsið á Egilsstöðum, minn- umst hans með söknuði og þakklæti. Þakklæti fyrir fjölmargar ánægju- legar samverustundir á liðnum ár- um, þar sem hann geislaði af lífs- krafti og áhuga á mönnum og málefnum, og þakklæti fyrir að hafa kynnst góðum dreng, sem vildi hvers manns vanda leysa. Hrafnkell var gæddur ríkri réttlætiskennd og tók óhikað svari þeirra sem honum fannst óréttlæti beittir. Hann var líka traustur málsvari þeirra sem minna máttu sín eða stóðu höllum fæti í lífinu. Má í því sambandi minna á fjölþætt störf hans að verkalýðs- og sveitarstjórnarmálum á Eskifirði og störf hans í úthlutunarnefnd at- vinnuleysisbóta eftir að hann fluttist til Egilsstaða ásamt fjölskyldu sinni. Hrafnkell var einstaklega góður og tillitssamur yfirmaður sem studdi starfsmenn sína dyggilega og vildi hag þeirra sem mestan. Hann tók við forstöðu Héraðsskjalasafns Aust- firðinga þegar það var nýflutt í nýtt húsnæði í Safnahúsinu á Egilsstöð- um. Hrafnkell hafði forystu um tölvuvæðingu safnsins og var alltaf opinn fyrir nýjungum í starfsemi þess. Hann bjó yfir mikilli þekkingu á sviði sögu og ættfræði, þó hann væri ekki langskólagenginn. Sú þekking nýttist honum vel í starfi enda var hann einstaklega minnugur á sögu Íslands og fornsögurnar sem og á ættir og ættartengsl manna. Eftir hann liggja allmargar greinar um sögu og ættfræði, en margar þeirra birtust í tímaritinu Múlaþingi. Hrafnkell A. Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.