Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 45
Raðauglýsingar 569 1100
Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi.
Með vísan til reglugerðar nr. 428/2007, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda hinn 15. maí 2007, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem
upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn:
Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrár kg % kr/kg
númer:
Kartöflur: 01.06.07-31.12.07 15.000 0 0
2005.2003 Nasl svo sem skífur,
skrúfur, hringir, keilur,
stangir o.þ.h., þó ekki úr
kartöflumjöli.
Berist umsóknir um meiri innflutning en nemur auglýstum tollkvóta verður úthlutun miðuð við
hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækjenda á
kartöflunasli í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2006 til 31. desember 2006.
Úthlutun er ekki framseljanleg.
Skriflegar umsóknir skulu berast til fjármálaráðuneytisins, tekju- og lagaskrifstofu, Arnarhvoli, 150
Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 22. júní n.k.
Fjármálaráðuneytinu, 6. júní 2007.
Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ
Innritun lýkur 11. júní
www.fg.is
Skoðið heimasíðuna!
Félagsfræðabraut
Náttúrufræðibraut
Málabraut
Viðskipta- og hagfræðibraut
Fata- og textílhönnun
Myndlist
Tískubraut
Viðskiptabraut
Íþróttabraut
Almenn námsbraut
Starfsbraut 2
HG-hópur:
Hópur – hraði – gæði. Hægt er að ljúka
stúdentsprófi á þremur árum.
Nemendur í HG-hóp eru undanþegnir
skólagjöldum fyrsta skólaárið.
Afreksíþróttasvið:
Góð leið fyrir þá sem vilja leggja mikið á sig í
námi og íþróttaþjálfun.
Fjarnám:
Ódýr og góð þjónusta.
Góð aðstaða til náms!
Fullkominn kennslubúnaður, s.s. öflugar tölvur,
góð lesaðstaða, netkaffi o.fl.
Skrifstofa skólans er opin virka
daga kl. 8–15
Aðstoð við innritun.
www.fg.is
Skólameistari.
Endurveiting íslensks
ríkisborgararéttar
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á því að
frestur til að óska eftir endurveitingu íslensks ríkis-
borgararéttar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í
lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952,
sbr. lög nr. 9/2003, rennur út 1. júlí 2007.
Samkvæmt ákvæðinu getur sá sem tók ríkisfang í öðru
ríki fyrir 1. júlí 2003, og missti við það íslenska ríkisfangið
án þess að viðkomandi ríki hafi krafist þess, óskað eftir
því að fá íslenska ríkisborgararéttinn að nýju með því
að sækja um það til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Umsækjandi þarf að hafa verið búsettur á Íslandi eða
uppfylla skilyrði um dvöl hér samkvæmt 8. gr. laganna.
Nánari upplýsingar um endurveitingu íslensks ríkis-
borgararéttar er unnt að fá hjá dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík, sími
545 9000, netfang: postur@dkm.stjr.is, veffang:
www.domsmalaraduneyti.is.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Kvennaskóinn í Reykjavík
Innritun
Innritun nýnema stendur yfir og er rafræn.
Umsækjendur fara inn á www.menntagatt.is
og fylla þar út umsókn.
Allar umsóknir þurfa að hafa borist skólanum
í síðasta lagi 12. júní.
Námsráðgjafar verða til viðtals í skólanum
9. og 12. júní frá kl. 8 til 16.
Kvennaskólinn í Reykjavík býður bóknám til
stúdentsprófs.
Brautirnar eru þrjár:
félagsfræðibraut.
málabraut.
náttúrufræðibraut.
Í skólanum er bekkjakerfi en þó mikið val
á 3. og 4. námsári.
Nánari upplýsingar um skólann eru á
heimasíðu skólans, www.kvenno.is eða í síma
580 7600.
Skólameistari.
Vörubílastöðin Þróttur
Sævarhöfða 12,
110 Reykjavík.
Sími 577 5400 - Fax 577 5408.
Netfang: throttur@throttur.is
Félagsfundur
Almennur félagsfundur V.b.f. Þróttar verður
haldinn í húsi félagsins, Sævarhöfða 12,
mánudaginn 11. júní kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Framhaldsumræða og afgreiðsla á laga-
breytingum frá síðasta aðalfundi.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Tilkynningar
Íslensku liðin
í miðjum hóp á
NM í Lillehammer
Íslenska karlalandsliðinu hefur
gengið þokkalega á NM sem nú fer
fram í Lillehammer í Noregi.
Eftir 7 umferðir er liðið í þriðja
sæti með 108 stig, Danir eru í öðru
sæti með 120 stig og Finnar eru lang-
efstir með 143 stig.
Kvennaliðið hefur einnig náð
þokkalegum árangri, er í fjórða sæti
með 113 stig. Í toppsætinu eru
heimamenn eða réttara sagt -konur
með 134 stig, Svíar eru með 128 stig
og Danir eru í þriðja sæti með 116.
Í dag verða spilaðir fjórir leikir en
mótinu lýkur á morgun.
Nýtt húsnæði og
sumarbrids á Akureyri
Bridsfélag Akureyrar er komið í
nýtt og magnað húsnæði og Sumar-
bridge er hafið af krafti. Nýja aðstað-
an er í glæsilegum sal Lionsklúbbsins
Hængs við Skipagötu og er ekki
hægt að segja annað en fyrsti sum-
arbrids þar hafi heppnast með mikl-
um ágætum.
Lokastaðan:
Reynir Helgason – Frímann Stefánss. 12
Ragnheiður Haraldsd. – Ólína Sigurjónsd. 10
Stefán Vilhjálmss. – Herrmann Huijbens 7
Valmar Valjoats – Sigurður Erlingsson 3
Sjáumst öll á þriðjudaginn kemur.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 5. júní var spilað á 16
borðum. Miðlungur var 312. Úrslit
urðu þessi í N/S:
Júlíus Guðmss. – Óskar Karlsson 395
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 389
Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinsson 356
Steindór Árnason – Einar Markúss. 331
Ragnar Björnss. – Gísli Víglundss. 331
A/V
Bragi V. Björnss. – Guðrún Gestsd. 395
Magnús Oddsson – Óli Gíslason 384
Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 381
Kristján Þorlálss. – Jón Sævaldsson 368
Spilað er í Hraunseli í Hafnarfirði
til 6. júlí.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
FRÉTTIR
BÆJARRÁÐ Bolungarvíkur lýsir
yfir miklum vonbrigðum með nýút-
komna skýrslu Hafrannsóknastofn-
unar um ástand nytjastofna á Ís-
landsmiðum. Nái tillögur stofnunar-
innar fram að ganga þýðir það að
aflaheimildir Vestfirðinga af slægð-
um þorski skerðast um 6.000 tonn og
um 1.200 tonn sé aðeins horft til Bol-
ungarvíkur. Á ársgrundvelli má
ætla að útflutningsverðmæti frá Bol-
ungarvík dragist af þessum völdum
saman um 300 milljónir króna, segir
í ályktun bæjarráðsins.
„Ljóst er að þessar tillögur Haf-
rannsóknastofnunar munu hafa
gríðarleg áhrif nái þær fram að
ganga að hluta til eða öllu leyti. Til-
lögurnar eru til þess fallnar að auka
enn á samþjöppun í sjávarútvegi þar
sem stærri fyrirtæki kaupa upp þau
minni. Atburðir síðustu vikna sýna
að slík viðskipti geta auðveldlega
kippt stoðunum undan tilvist sjáv-
arþorpa á landsbyggðinni. Þegar
lagt var upp með aflamarkskerfið
árið 1983 var markmiðið að stækka
þorskstofninn og styrkja byggðir í
landinu. Það hefur algjörlega brugð-
ist,“ segir í ályktun bæjarráðs.
KYNNING verður á nýju námi í
náttúrulækningum á morgun, laug-
ardag, kl. 14 í sal Yggdrasils á
Skólavörðustíg. Í fréttatilkynningu
kemur fram að þetta er í fyrsta sinn
sem boðið er upp á fullt nám í nátt-
úrulækningum á Íslandi.
Námið hefst í ágúst og er bæði
fjarnám og kennslulotur. Kennslan
fer fram á þremur árum með
kennslulotum vor og haust og
heimanámi. Innihald námsins bygg-
ist á þremur meginþáttum sem eru
lithimnufræði, grasalækningar og
náttúrulækningar, auk annarra
námsþátta s.s. svæðanudd, kjarna-
olíur, blómadropar, lækningarfæði
og að vinna að eigin heilsuvernd.
Námslotur eru viðamestar í maí
og september, þá mun dr. Farida
Sharan kenna samþættingu allra
meginviðfangsefna námsins. Námið
er alþjóðlega viðurkennt nám og
nemendur fá ND, Naturopath Dipl-
oma. Sjá nánar: www.purehealt-
h.com.
Umsjónarmenn námsins á Íslandi
eru Lilja Oddsdóttir og Gitte Lassen.
Þriggja ára
nám í náttúru-
lækningum
Tillögur Hafró
auka enn sam-
þjöppun í útvegi
HJÓLAFERÐ verður fyrir alla fjöl-
skylduna í Mosfellsbæ á morgun.
Lagt verður af stað frá Varmár-
skóla kl. 10, hjólað meðfram Leiru-
vogi og Korpúlfsstöðum, síðan að
Vesturlandsvegi, upp með Úlfarsá
og niður í Reykjahverfi.
Allir eru velkomnir og ekkert
þátttökugjald. Fararstjóri er Svava
Ýr Baldvinsdóttir íþróttakennari,
en ferðin er á vegum atvinnu- og
ferðamálanefndar Mosfellsbæjar.
Hjólaferð frá
Varmárskóla