Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal í júní. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlegu borg sem er önnur stærsta borg Kanada. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal. Gríptu tækifærið og skelltu þér til Montreal. Montreal Kanada frá kr. 24.990 Síðustu sætin í júní Verð kr. 24.990 - Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum, 21. og 28. júní. Verð kr. 49.990 - Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tví- býli á Travelodge Montreal m/morgunverði í 7 nætur, 21. og 28. júní. Ferðir til/frá flugvelli kr. 3.800 Munið Mastercard ferðaávísunina FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga riddarakrossi, heiðurs- merki hinnar íslensku fálkaorðu, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær í tilefni þjóðhátíð- ardagsins. Þau sem sæmd voru fálkaorðu í gær eru: Ásgeir J. Guðmundsson, iðnrekandi, Reykja- vík, fyrir störf í þágu íslensks húsgagnaiðnaðar. Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir hótelstjóri, Ísa- firði, fyrir störf að ferðaþjónustu landsbyggðar. Margrét Friðriksdóttir skólameistari, Kópa- vogi, fyrir störf í þágu menntunar og fræðslu. Pétur Sveinbjarnarson stjórnarformaður Sól- heima, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að samhjálp og velferðarmálum. Steinunn Sigurðardóttir hönnuður, Reykja- vík, fyrir frumherjastörf í þágu fatahönnunar. Sverrir Hermannsson safnamaður, Akureyri, fyrir stofnun Smámunasafnsins og framlag til verndunar gamalla húsa. Björn R. Einarsson hljómlistarmaður, Reykja- vík, fyrir störf í þágu íslenskrar tónlistar. Guðjón Sigurðsson, formaður MND-samtak- anna, Hafnarfirði, fyrir forystu í málefnum sjúklinga. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri, Reykja- vík, fyrir störf í þágu orðfræða og íslenskrar tungu. Kristján Sæmundsson jarðfræðingur, Reykja- vík, fyrir störf í þágu íslenskra jarðvísinda. Morgunblaðið/Árni Torfason Tíu Íslendingar sæmdir riddarakrossi ÓLAFUR Proppé, rektor Kennaraháskóla Ís- lands, gerði langa reynslu skólans af fjarkennslu og sveigjanlegum kennsluháttum að umtalsefni við brautskráningu kandídata KHÍ í Laugardals- höll sl. laugardag. Alls voru brautskráðir 476 kandídatar frá KHÍ, þar af 409 nemendur úr grunnnámi og 67 nemendur úr framhaldsnámi. „Í allmörg ár hefur meira en helmingur nem- enda við Kennaraháskólann stundað nám sitt sem fjarnám. Þessi þróun hefur gjörbreytt ástandi t.d. í skólum á landsbyggðinni þar sem árum og ára- tugum saman hafði verið sár vöntun á fagmennt- uðum kennurum. Ljóst er að með sveigjanlegum kennsluháttum og fjarkennslu er unnt að veita fjölmörgum einstaklingum sem annars gætu ekki stundað háskólanám, raunhæf námstækifæri til gagns og ánægju fyrir þá sjálfa og til framfara fyr- ir samfélagið í heild,“ sagði Ólafur og sagði sökum þessa mikilvægt að efla starf háskólasetra Há- skóla Íslands utan höfuðborgarsvæðisins. Sameining KHÍ og HÍ, sem tekur gildi 1. júlí 2008, var Ólafi einnig hugleikin. „Með sameiningu þessara tveggja háskóla mun sameinaður Háskóli Íslands styrkja sig, bæði hvað varðar kennslu og rannsóknir, á sviði kennaramenntunar og annarra fræðasviða sem tengjast uppeldi og menntun, námi og kennslu. Í sameinuðum háskóla verður væntanlega unnt að virkja enn betur en nú er gert sérfræðiþekkingu í báðum háskólum til að efla kennaramenntun fyrir öll skólastig og aðra starfs- menntun uppeldis- og menntunarstétta.“ Ólafur sagði menntun kennara og annarra upp- eldisstétta skipta hvert samfélag miklu máli. Minnti hann á að kennarastéttin er stærsta fag- stétt landsins, en um 13 þúsund sérmenntaðir starfsmenn starfa í leik-, grunn- og framhalds- skólum landsins. „Það er afar mikilvægt að gerðar séu miklar kröfur til kennaramenntunarstofnana og til þeirra sem ætla sér að stunda þessi þjón- ustustörf sem skipta svo miklu máli bæði fyrir ein- staklinga og samfélagið í heild.“ Í ræðu sinni minnti Ólafur á að frá og með næsta hausti byði KHÍ upp á endurskoðað fimm ára samfellt starfsnám til meistaraprófs á öllum námsbrautum við skólann. Sagði hann námið taka mið af breyttum og sívaxandi kröfum samfélags- ins og því besta sem læra mætti m.a. af öðrum þjóðum á þessu sviði. „Til þess að efla kennara- menntun og aðra starfsmenntun í Kennarahá- skóla Íslands er stefnt að því að flestir nemendur ljúki í framtíðinni fimm ára háskólanámi og starfs- tengdri meistaragráðu áður en þeir hefja störf. “ Efling kennaranáms  Meira en helmingur stúdenta við KHÍ stundar námið sem fjarnám  Kennara- stéttin stærsta fagstétt landsins  Fimm ára starfsnám til meistaraprófs Morgunblaðið/Golli Útskrift Ólafur Proppé rektor við útskrift KHÍ. FORSÆTISRÁÐHERRA tilkynnti í ávarpi sínu 17. júní að skipuð hefði verið nefnd sem undirbúa á með hvaða hætti eigi að minnast þess að 200 ár verða liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta þann 17. júní 2011. „Það er skylda okkar að halda í heiðri um ókomin ár minn- ingu Jóns Sigurðssonar. Eftir fjög- ur ár verða tvær aldir liðnar frá fæðingu hans og þess vegna ríkt til- efni til hátíðahalda,“ sagði Geir. Nefndin mun skila fyrstu til- lögum eigi síðar en í árslok 2008, en vinnur síðan að undirbúningi hátíð- arhalda á árinu 20011. Nefndin skal leita eftir tillögum frá stofnunum og samtökum sem tengjast minn- ingu Jóns Sigurðssonar forseta. Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, var skipuð formað- ur nefndarinnar en aðrir nefnd- armenn eru Anna Agnarsdóttir sagnfræðingur, Sigurður Péturs- son sagnfræðingur, Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, Sigrún Magnúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi, Kristinn H. Gunn- arsson alþingismaður, Karl M. Kristjánsson aðstoðarskrifstofu- stjóri Alþingis og Eiríkur Finnur Greipsson formaður Hrafnseyrar- nefndar Nefnd um afmælishátíð Jóns forseta LÖGREGLAN í Borgarnesi hafði í nógu að snúast í gær. Mikil umferð var á svæðinu og voru fimm teknir fyrir hraðakstur. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu var einn ökumaður tekinn síðdegis í gær í uppsveitum Borg- arfjarðar á um 140 km hraða á klukkustund. Sá reyndist hafa u.þ.b. 4 g af amfetamíni í fórum sín- um og er talið að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna er hann var stöðvaður. Þá var annar öku- maður stöðvaður, einnig á rúmlega 140 km hraða. Viðkomandi öku- maður var hins vegar ekki með ökuréttindi. Tekinn á 140 með amfetamín ÍSLENSK fánalög voru brotin á þjóðhátíðardaginn þegar fimm mótmælendur strengdu stóran heimagerðan fána, sem líktist ís- lenska þjóðfánanum, utan á vinnu- palla á Þjóðleikhúsinu. Fyrir miðju fánans var skjöldur með merkjum fyrirtækjanna Alcoa, Alcan og Norðuráls. Samkvæmt frétta- tilkynningu frá þeim sem að mót- mælunum stóðu vildu þau tjá þá skoðun sína að Íslendingar væru „langt frá því að vera sjálfstæð þjóð, því Ísland hefur verið tekið yf- ir af álfyrirtækjum.“ Samkvæmt 10.gr. fánalaga skal lögregla hafa eftirlit með því að enginn noti þjóðfána, sem ekki sam- ræmist ákvæðum laganna um útlit fánans, eða sé „svo upplitaður eða slitinn að verulega frábrugðinn sé réttum fána um lit og stærðar- hlutföll.“ Jafnframt segir í 4.gr. að óheimilt sé að nota önnur merki í þjóðfánanum en skjaldamerkið eða hið silfurlitaða T tollgæslunnar. Mótmælendurnir voru færðir til skýrslutöku en sleppt að henni lok- inni og fáninn gerður upptækur. Fánalög brotin 17. júní Skrumskæling Óheimilt er að nota fánann opinberlega í breyttri mynd. DR. LILJA Mósesdóttir, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bif- röst, verður einn þriggja fyrirlesara á ráðstefnu í Manchester 21.-22. júní næstkomandi. Lilja var valin úr hópi 80 evrópskra og amerískra fræðimanna sem vildu komast að á ráðstefnunni. Hún segir það mikil- vægt að komast að því þarna nái hún eyrum færustu fræðimanna á henn- ar sviði, bæði í Evrópu og Ameríku. Hún mun kynna rannsóknir sínar á framþróun þekkingarsamfélagsins í Evrópu og hvers vegna það tryggir ekki kynjajöfnuð eins og stefnt hef- ur verið að. Kjarninn í rannsókn Lilju er sá að á meðan vissir þættir þekkingarsamfélagsins þróist áfram á jákvæðan hátt sitji aðrir eftir og virðist óhagganlegir. „Á meðan já- kvæð þróun verður í atvinnuþátt- töku og menntun- arstigi kvenna haggast launa- munur kynjanna ekki innan ESB, frekar en hér á landi. Framþró- unin er því ekki jafnmikil og flest- ir áttu von á,“ segir Lilja og bætir við: „Þegar konur mennta sig fá þær aðgang að faglærðum störfum og stjórnunar- störfum með mjög vítt launabil. Glerþakið kemur svo í veg fyrir að þær fái háttlaunaðar stöður og þær lenda því yfirleitt neðst í launa- bilinu. Við þessa breytingu eykst þannig í raun launamunur kynjanna.“ Lilja er meðal þeirra fremstu  Kynnir rannsókn á launamun kynja Dr. Lilja Mósesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.