Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 47
Eftir Jón Ármann Steinsson
jon@steinsson.com
ERLA Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Thor-
steinsson, sem reka arkitektastofuna Minarc í
Los Angeles, unnu aðalverðlaun alþjóða-
samtaka innanhúshönnuða, IIDA, fyrir ein-
býlishús sitt í Los Angeles. Verðlaunin voru
afhent við hátíðlega athöfn á Westin hótelinu í
miðborg Chicago nýlega að viðstöddum 650
manns.
Verðlaunahúsið, heimili Erlu og Tryggva,
stendur á hæð með útsýni yfir Santa Monica.
Húsið hefur vakið athygli fyrir vistvæna hönn-
un og myndir af því hafa birst á forsíðum tíma-
rita í Bandaríkjunum og víðar.
International Interior Design Association,
IIDA, eru ein stærstu samtök sinnar tegundar
í heiminum. IIDA veitir árlega hönn-
unarverðlaun í samvinnu við mánaðarritið Int-
erior Design sem er eitt virtasta fagtímarit
sinnar tegundar í Bandaríkjunum.
Í maíblaði Interior Design er fjallað um hús
Erlu og Tryggva og þar segir: „Húsið er ekki
einungis vel hannað augnayndi. Vistvæn sjón-
armið ráða ferðinni við efnisval; málning, teppi
og flísar eru ekki notaðar heldur eru sjálf
byggingarefnin sýnileg í sinni eiginlegu
mynd.“
„Markmið okkar var að gera áreynslulausa
hönnun að veruleika,“ segir Erla Dögg. „Við
nutum þess að vera að hanna eigið heimili og
að þurfa ekki að útskýra fyrir viðskiptavini af
hverju við vildum nota endurunnin dekk á
skápahurðirnar í eldhúsinu. Allsstaðar þar
sem því verður við komið notum við endur-
unnið efni og ég las einhversstaðar að líftími
gúmmís væri tvö þúsund ár. Hvílík sóun að það
er einungis notað í örfá ár sem bíldekk, þegar
við getum fundið aðra notkunarmöguleika.“
Í fyrsta sinn sem einbýlishús
hlýtur verðlaunin
IIDA veitir árlega fimm viðurkenningar fyr-
ir framúrskarandi hönnun og eitt af þeim
verkum hlýtur aðalverðlaun samtakanna.
Þátttakan í ár var mun meiri en undanfarin ár
og hönnuðir frá Japan, Tokyo og Bandaríkj-
unum fengu viðurkenningu. Þetta er í fyrsta
skipti sem einbýlishús vinnur aðalverðlaun
IIDA fyrir innanhúshönnun.
Tryggvi segir að vistvæn gildi og hagkvæm
orkunýting sé sífellt mikilvægari þáttur í
hönnun húsa. „Hér í Los Angeles þarf bæði að
hita og kæla hús og því er grundvallaratriði að
nýta náttúrulega orku þegar það er á annað
borð mögulegt. Hönnunin ákvarðar rekstr-
arkostnað hússins á líftíma þess. Það er að
sama skapi mikilvægt að hafa umhverfissjón-
armið í huga við val á byggingarefni og frá-
gangi á slitflötum eins og gólfi, veggjum og
innréttingum.“
Minarc hefur skapað sér orðspor fyrir nú-
tímalega húsagerðarlist og þau hjónin eru með
verkefni í Evrópu, Asíu, Afríku og Bandaríkj-
unum. „Tilnefningin kom okkur á óvart,“ segir
Tryggvi, „og við bjuggumst alls ekki við að
hljóta verðlaunin. Ég varð eiginlega orðlaus
þegar ég heyrði nöfnin okkar yfir hátal-
arakerfið. Þessi viðurkenning hvetur mann til
að halda áfram á sömu braut. Við hjónin erum
þegar byrjuð að hanna næsta draumahús og
það byggjum við á Íslandi.“
Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Thorsteinsson fengu arkitektaverðlaun í Chicago
Heimilið Húsið stendur á hæð með útsýni yfir Santa Monica. Það hefur vakið athygli fyrir vist-
væna hönnun og myndir af því hafa birst á forsíðum tímarita í Bandaríkjunum og víðar.
„Vel hannað augnayndi“
Morgunblaðið/Golli
Farsæl Hjónin og arkitektarnir Erla Dögg
Ingjaldsdóttir og Tryggvi Thorsteinsson.