Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 1
íþróttir Íslandsmeistaralið Vals mætir Evrópumeistaraliði Frankfurt í dag >> 4 Á FULLU ALLT ÁRIÐ KEFLVÍKINGURINN SVERRIR ÞÓR SVERRISSON ER KOMINN Í NJARÐVÍK BÆÐI Í KÖRFU OG FÓTBOLTA >> 2 FRIÐRIK Stef- ánsson, miðherji og fyrirliði Njarðvíkinga í körfunni, er byrj- aður að æfa á nýjan leik eftir að hann fór í hjartaþræðingu í síðustu viku. Friðrik hefur síð- ustu tvö árin fengið mjög öran hjartslátt öðru hverju og eftir rannsókn ekki alls fyrir löngu var ákveðið að setja hann í hjartaþræðingu. Ekkert virðist athugavert við hjartað en rannsóknirnar halda áfram og á þriðjudaginn mætti hann á sína fyrstu æfingu í nokkurn tíma. „Ég prófaði að fara á æfingu í gær- kvöldi og síðan verðum við að sjá til hvernig þetta gengur. Ég er enn í rannsóknum og segist því ekki vera mættur í slaginn á fullu ennþá. Það er einhver hjartaóregla í gangi hjá mér og ég fór í þræð- ingu um daginn og hún gekk vel og ég er að jafna mig eftir hana. Læknarnir ætluðu skilst mér að framkalla „kast“ hjá mér, en það tókst ekki,“ sagði Friðrik. Njarðvík mætir Snæfelli í fyrstu umferð Iceland Express-deildar- innar í kvöld. „Ég verð líklega ekki með,“ sagði Friðrik í gær. Friðrik leik- ur varla með Njarð- víkingum Friðrik Stefánsson Morgunblaðið/RAX Góður þessi Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, lék á als oddi á æfingu liðsins í gær á Leiknisvelli. Arnar Þór Við- arsson, Birkir Kristinsson, Jóhannes Karl Guðjónsson og Veigar Páll Gunnarsson upplifðu stemninguna hver með sínu nefi. Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn gegn Lettum á Laugardalsvelli og er það síðasti heimaleikur Íslands í riðlakeppni Evrópumótsins en alls eru þrír leikir eftir í riðlinum. fimmtudagur 11. 10. 2007 íþróttir mbl.is Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Ég er ánægður að vera búinn að taka ákvörðun. Hún var erfið en mér fannst rétt- ur tímapunktur að hætta núna. Þetta er bú- inn að vera frábær tími sem ég hef átt hjá FH. Mér hefur tekist að vinna allt sem hægt er að vinna með liðinu og ég get því ekki sagt annað en að ég skilji sáttur við það. Mér er mjög annt um FH og ég vona að fé- laginu vegni vel í framtíðinni. Ég veit ekk- ert hvort ég held áfram að þjálfa. Það verð- ur bara að koma í ljós,“ sagði Ólafur Jóhannesson í samtali við Morgunblaðið í gær. Það verður ekki annað sagt en að Ólafur skilji vel við FH-liðið. Undir hans stjórn varð FH Íslandsmeistari og bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Hann skilaði FH þremur Íslandsmeistaratitlum, 2004, 2005, 2006, liðið varð bikarmeistari um síð- ustu helgi, vann deildabikarinn í tvígang 2005 og 2007, Meistarakeppni KSÍ 2003 og 2007 og undir hans stjórn varð FH í öðru sæti á Íslandsmótinu 2003 og 2007. Fyrir 20 árum var Ólafur fyrst ráðinn þjálfari FH en hann var spilandi þjálfari liðsins 1989-91. Hann tók aftur við liðinu og stýrði því tíma- bilið 1995 og var síðan ráðinn í þriðja sinn árið 2003. Rökrétt framhald ,,Þessi ráðning er rökrétt framhald að því sem ég hef verið að gera hjá FH. Ég byrjaði hjá FH sem leikmaður og varð síðan fyr- irliði og aðstoðarþjálfari eftir að ég lagði skóna á hilluna og nú fæ ég tækifæri á að verða aðalþjálfari sem ég er mjög ánægður með. Ég er búinn að vera í FH í átta ár og hef liðið afskaplega vel svo það kom ekki til greina að fara annað þegar þetta bauðst,“ sagði Heimir Guðjónsson, nýráðinn þjálfari FH, við Morgunblaðið en hann var með und- ir höndum tilboð frá öðrum félögum. Viðhalda velgengninni Spurður hvort honum finnist hann tilbú- inn í slaginn; ,,Er maður ekki alltaf dæmdur eftir verkum sínum en jú ég tel mig alveg vera tilbúinn að takast á við verkefnið. Ann- ars væri ég ekki að taka það að mér. Liðið hefur undir stjórn Óla náð frábærum ár- angri og mitt hlutskipti verður að reyna að viðhalda þessari velgengni. Þetta er mikil áskorun og verðugt verkefni að takast á við.“ ,,Rétti tímapunkturinn“ ÓLAFUR Jóhannesson, hinn siguræli þjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu, ákvað í gær að láta af störfum sem þjálfari Hafnarfjarð- arliðsins sem hann hefur stýrt undanfarin fimm ár. Það tók FH-inga skamman tíma að ráða eftirmann því Heimir Guðjónsson, fyrr- um leikmaður liðsins sem hefur verið aðstoð- armaður Ólafs síðustu tvö árin, tekur við þjálfarastarfinu og mun hann gera tveggja ára samning við félagið.  Ólafur Jóhannesson lætur af störfum hjá bikarmeistaraliði FH  Heimir Guðjónsson tekur við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.