Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 298. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is Leikhúsin í landinu Töfrar leikhússins. >> 41HUGMYNDIR GLÆSILEG JÓLAGJAFAHANDBÓK FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is UMHVERFISSTOFNUN hefur skilað Skipulagsstofnun áliti sínu þess efnis að Hverahlíðarvirkjun, allt að 90 MW jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur á suðurjaðri Hellisheiðar, muni ekki hafa um- talsverð umhverfisáhrif í för með sér. Í ákvörðun sinni leggur stofnunin hins vegar áherslu á að meta þurfi þann kost að setja upp hreinsibúnað fyrir brennisteinsvetni á virkjanir á Hellisheiðarsvæðinu og hvaða áhrif það hefði á loftgæði á Stór-Reykja- víkursvæðinu og raforkuverð. Stofnunin bendir á að þegar bæði Hverahlíðarverkjun og Bitruvirkjun eru komnar í gagnið verður losun brennisteinsvetnis frá öllum fjórum jarðvarmavirkjununum á svæðinu 26.300 tonn á ári, en til samanburð- ar er náttúruleg losun brennisteins- vetnis á landinu metin 5.100 tonn á ársgrundvelli. Heildarlosun brennisteins á Hellisheiðarsvæðinu verður því sjö sinnum meiri en öll núverandi brennisteinslosun frá álverinu í Straumsvík, álverinu á Grundar- tanga og Járnblendinu á Grundar- tanga samanlagt. Æskilegt að setja upp mæli- stöðvar í nágrenni virkjananna Til að fylgjast með styrk brenni- steinsvetnis í andrúmslofti vegna virkjana á Hellisheiðarsvæðinu tel- ur Umhverfisstofnun æskilegt að setja upp mælistöðvar í austustu byggðum höfuðborgarsvæðisins, á Hellisheiði og vestast í byggðinni í Hveragerði. Orkuveitan hefur í hyggju að reisa tvær jarðgufuvirkjanir á Hengilssvæðinu, á Bitru og í Hvera- hlíð. Andstæðingar virkjananna hafa sett á laggirnar heimasíðu þar sem almenningur er hvattur til að gera athugasemdir við virkjunar- áætlanir fyrirtækisins, líkt og áður hefur verið greint frá. Morgunblaðið/RAX Losun brennisteins á Hellisheiði verður mun meiri en frá álverum. Brenni- steinslosun virkjan- anna mikil TÓNLEIKAR Andreas Bocellis í Egilshöll í gærkvöldi tókust vel en um 6.000 manns munu hafa hlýtt á ten- órsöngvarann ítalska og var töluvert um ungt fólk í þeim hópi. Það skyggði nokkuð á gleðina að umferð- artafir voru við Egilshöll, bæði fyrir og eftir tón- leikana, og tafðist dagskráin nokkuð af þeim sökum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Tónleikar Bocellis lukkuðust vel FJÖLDI starfsmanna í rækju- vinnslu Ramma hf. í Siglufirði lauk sínum síðasta vinnudegi í vinnslunni í gær og er nú án atvinnu. Í sumar var 31 starfsmanni í vinnslunni sagt upp störfum þar sem fyrirtækið sá sér ekki kleift að bíða eftir betri af- komu í rækjuvinnslu vegna ákvörð- unar ríkisstjórnarinnar um niður- skurð aflaheimilda. Signý Jóhannesdóttir, formaður verka- lýðsfélagsins Vöku í Siglufirði, segist ekki vita hversu margir sem sagt var upp í sumar séu nú án atvinnu, en einhverjir eru búnir að ráða sig til annarra starfa. Þeir sem eftir sitja munu ræða við fulltrúa Vinnumála- stofnunar í dag um framtíðarhorfur. „Það er frekar þungt hljóð í fólki,“ segir Signý. „Einhæfnin í atvinnulíf- inu er orðin mikil, láglaunastörf eru mestmegnis í boði og því er ekkert auðvelt að breyta,“ bætir hún við. Ólafur Helgi Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Ramma, segir ekki út- lit fyrir að rækjuvinnsla verði stund- Stuttu seinna hefðu Rammi og Byggðastofnun reynt að draga úr neikvæðum áhrifum yfirvofandi upp- sagna með því að koma á fót nýju fyrirtæki sem 12 til 15 manns áttu að geta unnið við. „Þegar til átti að taka og við buðum fólkinu endurráðningu voru bara einn eða tveir sem vildu vinna. Hinir vildu bara fá starfsloka- greiðsluna og fara. Þess vegna var rækjuvinnslu hætt í Siglufirði í dag og verður ekki starfrækt næstu ár- in,“ segir Ólafur. uð í Siglufirði á næstunni. Að hans sögn var starfsmönnum vinnslunnar boð- in starfsloka- greiðsla þegar uppsagnirnar lágu fyrir, í ljósi þess að jólin væru á næsta leiti og þess að ekki væri um auðugan garð að gresja í atvinnumálum á svæðinu. Signý Jóhannesdóttir Rækjuvinnslu í Siglufirði hætt BJÖRGVIN G. Sigurðsson við- skiptaráðherra segir að þær ásakanir sem í gær komu fram um ólöglegt verð- samráð á mat- vörumarkaði og blekkingar við verðkannanir séu gríðarlega alvar- legt mál. „Það blasir við að mínu mati að það kallar á viðbrögð Sam- keppniseftirlitsins við því. Þeir hljóta að fara ofan í þær ásakanir sem þarna liggja fyrir enda eru það hagsmunir bæði verslunarinnar og neytenda að það sé leitt til lykta hvað er hæft í þessu,“ sagði hann. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, kallaði einnig eftir slíkri rannsókn í gær. Fréttastofa Ríkisútvarpsins sagði frá því í gær að núverandi og fyrr- verandi starfsmenn Bónuss, Hag- kaupa og Krónunnar hefðu greint frá munnlegu samkomulagi um verð- samráð og að blekkingum væri beitt þegar verðkannanir eru gerðar. Björgvin G. Sigurðsson Kallar strax á viðbrögð FRÉTTASKÝRING Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is SAMNINGUR um samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy var ekki tilbúinn þeg- ar hann var samþykktur á stjórnar- og eigendafundi OR 3. október sl. Enn átti eftir að ganga frá atriðum í samningnum og settust samninga- menn frá FL Group og OR niður eft- ir stjórnarfund til að ljúka við samn- inginn og var honum breytt. Þá var ekki búið að semja viðauka við samninginn þar sem sú þjónusta er sérstaklega skilgreind sem REI hefur einkarétt á frá OR til tuttugu ára. Eins og komið hefur fram lá samrunaáætlun heldur ekki fyrir. Lögfræðingur úr viðskiptalífinu segir að vel megi halda því fram að samningurinn sé ekkert meira en viljayfirlýsing, þar sem lögbundnu samrunaferli hafi ekki verið fylgt. Hann og aðrir lögfræðingar sem leit- að var til, og vildu ekki tjá sig undir nafni um svo viðkvæmt mál, segja að mörg rök hnígi að ógildingu samn- ingsins. Upphaflega var lagt upp með að staðfesta samrunaferlið á stjórnar- fundi REI í gær, en ekki varð af því, og er gert ráð fyrir að samrunaferl- inu ljúki, að öllu óbreyttu, sex vikum frá stjórnar- og eigendafundi OR. Líklegt er að þverpólitískur stýri- hópur undir formennsku Svandísar Svavarsdóttur, oddvita Vinstri grænna, sem rannsakar ferlið í kringum samrunann, skili niðurstöð- um fyrir þá tímasetningu ef ætlunin er að stöðva samrunaferlið. Þar sem borgarstjórnarfundur verður á þriðjudag í næstu viku gæti verið von á niðurstöðum fyrir það. Samruni REI og Geysis ekki meira en viljayfirlýsing? Í HNOTSKURN »„Ef menn hefðu talið aðþetta yrði að vera skot- helt … hefðu þeir staðið öðru- vísi að þessu. “ »„Það skiptir máli hvortþetta er ákvörðun um að kaupa tölvu í hlutafélagi eða um formbreytingu á því.“  Mörg rök talin hníga að ógildingu samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy  Átti eftir að ganga frá atriðum í samningnum á eigendafundi  Byrjað á öfugum enda | 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.