Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SÁLFRÆÐINGAR verða sann- arlega varir við hversu leitandi fólk er eftir skýringum á vanlíðan sinni eða erfiðum kringumstæðum. Mann- skepnan þolir ekkert tómarúm sagði Thomas Gilovich, og er margt til í því. Við leitum skýringa á því sem fyrir okkur kemur, til dæmis þegar við veikjumst, og viljum síður trúa því að veikindin séu tilviljunarkennd eða að við höfum fæðst undir óheillastjörnu. Með skýringum finnst okkur við geta haft áhrif á örlög okkar og reynum að finna árangursríkar leiðsagnarreglur til að komast í gegnum erfiðleika í líf- inu. Það er því ekki nema eðlilegt að við leggjum við hlustir þegar einhver býður okkur, að því er virðist, einfald- an og auðskiljanlegan leiðarvísi um völundarhús lífsins. Lögmál aðdráttaraflsins, sem sett er fram í bókinni Leyndarmálið (The Secret), er dæmi um slíkan leiðarvísi, sem á mikilli hylli að fagna um þessar mundir. Virðist fljótt á litið, sem ráð- gáta lífsins hafi verið leyst. Verst er bara hvað lausninni hefur verið haldið lengi frá okkur! Lögmál aðdrátt- araflsins er sagt náttúrulögmál og skilgreint þannig að hugsanir, sem varpað er út í himingeiminn, laði að sér, líkt og segull, hluti af sömu bylgjulengd. Þannig getur fólk öðlast það sem það vill með því að hugsa nógu sterkt um það, hvort sem um er að ræða peninga, draumahúsið, heilsu eða annað sem hugurinn girnist. Ef þetta er rétt, að fólk fái yfir sig það sem það hugsar, má þá ekki draga þá ályktun að það sé engum um að kenna nema því sjálfu ef það lendir í veik- indum eða annars konar áföllum? Einhverjir kunna að spyrja sig hvort þessi hugmyndafræði sé ekki í anda hugrænnar atferlismeðferðar. Er þar ekki lagt til að fólk sé það sem það hugsar og að það eigi að hugsa já- kvætt? Ekki alveg. Hugræn atferl- ismeðferð snýst um að hugsanir okk- ar hafi áhrif á líðan okkar og athafnir. Hugsun sem er óhóflega neikvæð get- ur stuðlað að vanlíðan (þótt hún ein og sér orsaki hana ekki) og dregið úr fólki. Hugsun sem er óhóflega jákvæð getur vissulega stuðlað að vellíðan og sjálfsánægju en jafnframt komið fólki í vandræði, eins og þegar fólk telur sig geta allt í oflætisástandi. Þó getur eilítil bjartsýni og jákvæð skekkja í eigin garð, eins og flestir hafa, gert lífið bærilegra. Margur telur sig til dæmis vita betur en náunginn og hneykslast á aksturslagi annarra. Hugræn atferlismeðferð felst ein- mitt í því, í mörgum tilvikum, að að- stoða fólk við að aðgreina sig frá hugsunum sínum og sjá að það er ekki það sem það hugsar. Hæfi- leikaríkasta og greindasta fólk getur hugsað um sig sem óalandi og óferj- andi og tággrannar unglingsstúlkur geta álitið sig feitar. Það er einmitt kjarni vandans, þegar þráhyggja og árátta er annars vegar, að fólki finnst að hugsanir endurspegli sinn innri mann og að óboðnar hugsanir geti leitt af sér slæma atburði. Þannig get- ur manneskja til dæmis séð fyrir sér hvernig börnin hennar lendi í bílslysi og leiðst út í áráttuhegðun eins og halda börnunum sínum heima, til að afstýra mögulegu slysi. Staðreyndin er sú að fólk fær fleiri þúsundir hugs- ana á dag, sumar þeirra óboðnar og ógeðfelldar, aðrar fallegar. Ef við er- um það sem við hugsum, hvað af því sem við hugsum erum við þá? Af þessu má sjá að lítið vit er í orða- sambandinu „Þú ert það sem þú hugsar“. Sú hugmynd, að hugsanir geti framkallað atburði, blundar í mörgum okkar. Þegar fólk er beðið um að skrifa á miða, að það óski þess að einhver því nákom- inn lendi í slysi, kemur hik á flesta. Okkur finnst við jafnvel hafa séð mýmörg dæmi þess að úr því rætist sem við hugsum og gleymum þeim til- vikum þar sem eitt- hvað gerist sem okkur hafði ekki órað fyrir. Við veltum því sjaldan fyrir okkur hversu fátt af því sem við höfum áhyggjur af, verður að veru- leika. Við tökum nefnilega sér- staklega vel eftir því sem samræmist hugmyndum okkar og leiðum annað hjá okkur. Hefurðu einhvern tímann verið að leita þér að bíl af ákveðinni tegund og skyndilega farið að sjá þessa bílategund út um allt? Hvort skyldi það vera, að bílar af þessari tegund hafi í bókstaflegri merkingu sogast að þér fyrir tilstilli aðlög- unarlögmálsins, eða fórst þú skyndi- lega að taka betur eftir þessari bíla- tegund en áður? Það þarf meira en hugsun til að framkalla atburði og áþreifanlega hluti. Flest af því sem er einhvers virði að verða sér úti um, krefst fyrirhafnar. Það þarf meira að segja að leggja á sig töluverða vinnu til að breyta hugarfari sínu. Hins vegar er það ábatasöm vinna, þar sem breytt hugarfar getur stuðlað að breyttri líðan og við erum líklegri til að gera eitthvað ef við trúum að við getum það. Það er einnig hjálplegt að setja sér markmið, eins og bent er á í Leyndarmálinu, samanber það sem kötturinn sagði við Lísu í Undralandi þegar hún sagðist ekki vita hvert hún vildi fara: „Þá er alveg sama hvert þú ferð“. Það að rækta með sér upp- byggilega hugsun og setja sér mark- mið telst hvort tveggja til við- urkenndra aðferða innan sálfræðinnar, og er í raun um æva- forna speki að ræða sem víða hefur komið fram í ritum og hvergi verið haldið leyndri. Ert þú það sem þú hugsar? Sóley D. Davíðsdóttir og Auður R. Gunnarsdóttir skrifa um lög- mál aðdráttaraflsins Sóley D. Davíðsdóttir »Hugræn atferl-ismeðferð snýst um að hugsanir okkar hafi áhrif á líðan okkar og at- hafnir. Auður R. Gunnarsdóttir, sérfræð- ingur í klínískri sálfræði og formaður Félags um hugræna atferlismeðferð. Sóley D. Davíðsdóttir, sálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina. Auður R. Gunnarsdóttir FRUMVARP á Alþingi (þver- pólitískt) um sölu áfengis í mat- vöruverslunum hefur vakið mikla andstöðu og umræðu í samfélaginu. Öllum má ljóst vera að áfengi hefur skaðleg áhrif, veldur sjúkdómum, slysum og dauða. Að léttvín sé hollt getur verið rétt en þarf alls ekki að innihalda alkó- hól til að svo sé. Hin hliðin á neyslu áfengis er hvernig það er með- höndlað; hvaða venjur verða viðmið í þjóð- arsálinni/menning- unni. Áfengi er vímu- efni er ber að meðhöndla út frá þeirri forsendu. Vínið á ekki erindi inn í mat- vöruverslanir þar sem ákveðin teg- und yrði auglýst með þessum eða hinum réttinum sem á að neyta þann daginn. Víntegundir og kjöt eða fisk- ur munu verða sett hlið við hlið í kjöt- eða fiskborðinu með áberandi hætti þar sem vínið er „ómissandi“ með mat. Áfengið fær ranga ímynd í hugum manna og skaðsemi þess verður fjarlæg. Vínbúðir geta vel leiðbeint þeim sem vilja fá ráðgjöf um víntegundir með mat. Með því að takmarka að- göngu áfengis getum við dregið úr því böli sem áfengi veldur og skapað sterka hefð, að um vímuefni sé að ræða, sem beri að umgangast með varúð. Heilbrigðisráðherra boðaði (Stöð 2, 28.10.) áherslur í forvörnum og nefndi geðhjálp í því sambandi og er það vel. Jafnframt lýsti hann yfir stuðningi við áfengisfrumvarpið, að æskilegt væri að selja áfengi í mat- vöruverslunum. For- varnir ráðherrans orka því tvímælis hvað varð- ar sölu áfengis. Erlend- is er reynslan að áfeng- isdrykkja eykst þegar aðgengi víns er aukið og verð lækkar, t.d. í Finnlandi. Áfeng- isneysla þar jókst umtalsvert með tilheyrandi aukaverkunum svo sem tíðni slysa, ölvun við akstur, fjöl- skylduofbeldi og slagsmálum. Lýð- heilsustöð hefur lýst fram- angreindum vandamálum og mælir ekki með auknu aðgengi áfengis. Biskup Íslands hefur lýst sömu skoðun ásamt fræðslustjóra og skólamönnum sem þekkja forvarnir mjög vel og hvaða gildi þær hafa. Með framgreindu áliti ráðherrans er frumvarpið ekki lengur þver- pólitískt heldur orðið stefna um- rædds ráðherra í heilbrigðismálum, þvert ofan í þá stefnu sem Alþingi mótaði á síðasta þingi. Innan allra flokka er sterk andstaða gegn frum- varpinu, ekki síst Sjálfstæðisflokks- ins. Með stuðningi heilbrigð- isráðherra fær málið pólitískan stimpil til handa framangreindum flokki og mun tæplega auka vinældir eða fylgi flokksins til frambúðar. Sorglegt hvað margir nýir og ung- ir þingmenn hafa lagt þessu frum- varpi lið og nú með heilbrigð- isráðherrann í fararbroddi. Virðist vanta samfélagslega yfirsýn eða meðvitund hjá þessum ungu þing- mönnum sem vilja ná áfeng- isfrumvarpinu fram í nafni frels- isins. Frelsi og ábyrgð verða ekki sundurslitin þegar ákvarðanir um almannaheill eru teknar. Fram- angreindir þingmenn og heilbrigð- isráðherrann eru á villigötum í ábyrgri áfengisstefnu til framtíðar. Þingmenn og ráðherrar á villigötum? Sigríður Laufey Einarsdóttir skrifar um verslun með áfengi Sigríður Laufey Einarsdóttir »Hin hliðin á neysluáfengis er hvernig það er meðhöndlað; hvaða venjur verða við- mið í þjóðarsálinni/ menningunni. Höfundur situr í fjölmiðlanefnd bind- indissamtaka IOGT. MORGUNBLAÐIÐ hefur á síðustu dögum og vikum farið hamförum í málflutningi sínum gegn frumvarpi sem ég og sextán aðrir al- þingismenn úr þrem- ur stjórnmálaflokkum flytjum. Þá hefur Morgunblaðið gagn- rýnt Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra fyrir að styðja frumvarpið. Fyrir þá sem það ekki vita er markmið frumvarpsins það að afnema ríkiseinokun á sölu léttvíns og bjórs. Í ljósi sögunnar og þeirra viðhorfa sem Morgunblaðið hefur síðustu áratugina barist fyrir kemur á óvart að blaðið skuli í umræðum um þetta frumvarp kjósa að slá skjaldborg um rík- iseinokun og rík- iseinkasölu. Sú var tíðin að Morg- unblaðið studdi sjón- armið sem stuðluðu að minni ríkisaf- skiptum og frjálsri verslun og við- skiptum. Ný viðhorf virðast nú hafa rutt sér til rúms innan rit- stjórnar blaðsins. Það finnst mér miður. Á laugardaginn var okkur flutningsmönnum frumvarpsins sýndur sá heiður að Staksteinar Morgunblaðsins voru helgaðir okkur. Þar fullyrðir höfundur Staksteina að með frumvarpinu og þeim tillöguflutningi sem þar er að finna séu þeir sjálfstæð- ismenn sem að frumvarpinu standa að leika sér að pólitískum eldi. Svo segir Staksteinahöf- undur: ,,Sennilega er lífsreynsla þeirra svo takmörkuð, að þeir vita ekki hvað þeir eru að gera og stjórn- málareynsla þeirra ekki meiri en svo, að þeir átta sig ekki á því hvað þeir eru að vega alvarlega að baklandi eigin flokks.“ Höfundur Staksteina hefur óþarfar áhyggjur af því að ég og aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins sem stöndum að frumvarpinu njótum ekki stuðnings almennra sjálfstæðismanna í málinu. Það hefði hann séð í hendi sér ef hann hefði haft fyrir því að kynna sér stefnu Sjálfstæð- isflokksins áður en hann tók sér penna í hönd. Í ályktun Lands- fundar Sjálfstæð- isflokksins, sem haldinn var í apríl á þessu ári, um við- skipta- og neytenda- mál segir m.a.: ,,Halda þarf áfram að létta álögum af viðskiptalífi og neyt- endum, en í næstu skrefum í átt að öfl- ugra og betra við- skiptalífi þarf einnig að felast að ríkið dragi sig alfarið út úr verslunarrekstri, svo og öðrum rekstri þar sem það er í samkeppni við einka- aðila. Landsfundur leggur áherslu á að einkarétti ríkisins á verslun með áfengi verði aflétt. Eðlilegt er að hægt sé að kaupa bjór og léttvín utan sérstakra áfengisverslana, t.d. í matvöruversl- unum.“ Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer með æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins. Þar er stefna Sjálfstæðisflokks- ins mörkuð og samþykkt. Sú stefna sýnir að við sem að þessu frumvarpi stöndum höfum fast land undir fótum. Okkar bakland eru samþykktir og stefna Sjálf- stæðisflokksins. Vera má að Staksteinahöf- undur sé þeirri stefnu ósammála. Hins vegar hefur það hingað til talist til heilindamerkja og stefnufestu þegar stjórn- málamenn leggja sig fram um það að koma stefnu eigin flokks til framkvæmda. Það er því í meira lagi einkennilegt að höf- undur Staksteina telji slíka við- leitni okkar til marks um skort á lífsreynslu og stjórnmálareynslu og að í því felist alvarleg aðför að okkar eigin pólitíska baklandi. Það er merkileg niðurstaða sem erfitt er að fá botn í. Með fast land undir fótum Sigurður Kári Kristjánsson svarar skrifum í Morg- unblaðinu Sigurður Kári Kristjánsson » Það kemur áóvart að Morgunblaðið skuli í um- ræðum um þetta frumvarp kjósa að slá skjaldborg um ríkiseinokun og ríkiseinkasölu. Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Skólavörðustíg 18 RÝMINGARSALA FRÁBÆRAR JÓLAGJAFIR 50-70% AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.