Morgunblaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 3
agði a og sér á a lyft ustu lið í agn- mber Nou ur í í að í úr- liðið ópu- áni í tjóri ar á, árir í yrsta Lyon gerið . kvöld ilian dal - Lio- no. óri m ik- ka r Tom- bre- g ða á mörk erð- m í el vö eld tur og í enal s, nn, n var- ik- nn á ð r í sem á et- f við r ð ,“ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2007 3 Kínverskigrinda- hlauparinn Li Xi- ang, maraþon- hlauparinn Haile Gebrselassie frá Eþíópíu og bandaríski spretthlauparinn Tyson Gay koma til greina sem frjálsíþróttamaður ársins sem Alþjóðafrjálsíþróttasam- bandið útnefnir 25. þessa mánaðar.    Hjá konunum koma CarolinaKluft sjöþrautadrottning frá Svíþjóð, Meseret Defar hlaupari frá Eþíópíu og Blanka Vlasic hástökkv- ari frá Króatíu til greina    Martin Kaymer frá Þýskalandivar í gær útnefndur sem besti nýliðinn á Evrópumótaröðinni í golfi en það eru samtök golfíþróttafrétta- manna og fulltrúar R&A sem stóðu að kjörinu. Kaymer er fyrsti Þjóð- verjinn sem fær þessa viðurkenn- ingu en hann var fjórum sinnum á meðal 10 efstu á mótum á Evrópu- mótaröðinni og endaði hann í 41. sæti peningalistans.    Jóhannes Karl Guðjónsson varekki í leikmannahópi Burnley í gær sem mætti Hull í ensku 1. deild- inni. Jóhannes hefur ekki verið í náðinni hjá Steve Cotterill, knatt- spyrnustjóra liðsins, undanfarnar vikur og hefur mátt sætta sig við að spila eingöngu með varaliðinu.    Eiður SmáriGuðjohn- sen er í 18 manna leik- mannahópi Barcelona sem fær Rangers í heimsókn á Nou Camp í Meist- aradeildinni í kvöld. Gianluca Zambrotta er ekki í hópnum vegna meiðsla en fyrir á sjúkralistanum voru menn eins Samuel Eto’o, Deco, og Edmilson. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrir tveimur vikum. Þar spilaði Eið- ur Smári allan leikinn á miðjunni og átti fínan leik.    Filippo Inzaghi hefur nú skorað62 mörk í Meistaradeildinni en hann jafnaði met Þjóðverjans Gerd Müllers þegar hann skoraði tvívegis fyrir AC Milan í gær. Fólk folk@mbl.is Leikmenn Liverpool sýndu heldur betur klærnar og svöruðu gagnrýn- inni sem hefur verið á liðið á glæsi- legan hátt. Peter Crouch, sem kom inn í byrjunarliðið, hóf markaveisl- una og áður en yfir lauk þurfti mark- vörður Besiktas að sækja boltann átta sinnum úr neti sínu. Yossi Bena- youn skoraði þrennu, Crouch og Ryan Babel gerðu tvö mörk hver og fyrirliðinn Steven Gerrard eitt en Liverpool hefði hæglega getað náð tveggja stafa tölu. Með bakið upp að veggnum ,,Ég er auðvitað ánægður með mörkin sem ég skoraði en það sem mestu máli skipti var hvernig okkur tókst að vinna. Við vorum með bakið upp að veggnum en það truflaði okk- ur ekkert og ég trúi ekki öðru en þessi frábæri sigur færi okkur mikið sjálfstraust,“ sagði Benayoun eftir leikinn. ,,Ég held að síðast þegar ég vann 8:0 hafi ég spilað sem strákur í skólanum. Við unnum þennan frá- bæra sigur á liðsheildinni,“ sagði Benítez eftir leikinn. Porto skaust á topp A-riðilsins með 2:1 sigri á Mar- seille. Porto hafa 8 stig, Marseille 7, Liverpool 4 og Besiktas 4. Iversen agreiddi Valencia Rosenborg sýndi og sannaði að sigur liðsins á Valencia í Þrándheimi fyrir hálfum mánuði og jafntefli gegn Chelsea á Stamford Bridge var engin tilviljun. Norðmennirnir sóttu Valencia heim á Mestalla og gerðu sér lítið fyrir og endurtóku leikinn frá fyrri leiknum. Steffen Iversen skoraði bæði mörkin, það fyrra með lúmsku skoti í stöng og inn og það síðara með skalla.Ekki góð byrjun hjá Ronald Koeman sem stýrði spænska liðinu í fyrsta sinn. Cech meiddist gegn Schalke Chelsea mátti þakka fyrir 0:0 jafn- tefli gegn Schalke í Gelsenkirchen og er Lundúnaliðið efst í riðlinum með 8 stig, Rosenborg 7, Schalke 4 og Valencia 3. Schalke átti tvö stang- arskot í leiknum, Daninn Peter Lovenkrands það síðara á 87. mín- útu, en fyrr í leiknum hafði Didier Drogba misnotað tvö góð færi fyrir Chelsea. ,,Þetta voru ekki slæm úr- slit. Það er alltaf erfitt að sækja þýsku liðin heim og við náðum ekki að spila okkar besta leik. Ég reiknaði með betri frammistöðu hjá mínu liði en Schalke gerði vel og reyndist okk- ur erfiður mótherji,“ sagði Avram Grant, knattspyrnustjóri Chelsea. Peter Cech, markvörður Chelsea, meiddist á kálfa og skipti við Carlo Cudicini í hálfleik. Í C-riðlinum eru nífaldir Evrópu- meistarar Real Madrid með góða stöðu þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Olympiakos í Aþenu. Madríd- arliðið réði ferðinni lengst af leiknum og þeir Ruud Van Nistelrooy og Gabriel Heinze áttu báðir skot í markstangirnar. Í Róm hafði Lazio betur gegn Werder Bremen, 2:1. Tommaso Rocchi skoraði bæði mörk Lazio, sem heldur í vonina um að komast áfram. Góð innkoma hjá Inzaghi Evrópumeistarar AC Milan gerðu góða ferð til Úkraínu þar sem þeir lögðu heimamenn í Shakhtar, 0:3. Varamaðurinn Filippo Inzaghi reyndist betri en enginn í Mílanólið- inu. Inzaghi skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja fyrir Kaká. Skosku meistararnir í Celtic kom- ust upp að hlið Shakthar í annað sæti með 1:0 sigri á Benfica. Aiden McGeady skoraði sigurmarkið á lokamínútu fyrri hálfleiks. Átta mörk Liverpool og met í Meistaradeildinni Reuters Norskur sigur Steffen Iversen skoraði tvívegist og tryggði Rosenborg sigur gegn Valencia á útivelli, 2:0. LIVERPOOL og Rosenborg voru lið gærkvöldsins í Meistaradeild- inni í knattspyrnu. Liverpool sýndi allar sínar bestu hliðar þegar liðið rótburstaði tyrkneska liðið Besik- tas, 8:0, á Anfield og stærsti sigur í sögu Meistaradeildarinnar þar með staðreynd. Norska liðið Rosenborg vann frækinn sigur á Valencia á Mestalla-leikvanginum í Valencia, 0:2, og á alla burði að komast í 16 liða úrslitin ásamt Chelsea sem gerði markalaust jafntefli gegn Schalke í Þýskalandi. Glæsileg frammistaða hjá Rosenborg sem skellti Valencia á Mestalla, 0:2 KVENNALIÐ Keflavíkur í körfuknattleik varð fyrir miklu áfalli á mánudagskvöld þeg- ar Bryndís Guðmundsdóttir sleit krossband í hné. Á heimasíðu Keflavíkur er greint frá því að ólíklegt sé að Bryndís leiki fleiri leiki með liðinu í vetur. Bryndís var að leika með ung- lingaflokki félagsins þegar hún varð fyrir meiðslunum en þá má gera ráð fyrir að hún verði frá keppni í allt að 9 mánuði. Keflavík hefur ekki tapað í fyrstu fjórum umferðum Iceland Express-deildarinnar og í þeim leikj- um hefur Bryndís farið á kostum. Landsliðs- framherjinn er með 20 stig að meðaltali í stigaskori í leikjunum fjórum, og hefur hún gefið um 4 stoðsendingar að meðaltali og tekið um 4 fráköst. TaKesha Watson er langstigahæst í liði Keflavíkur en hún er með 32 stig að meðaltali í leik. Bryndís er úr leik Bryndís Guðmundsdóttir KRISTJÁN Örn Sigurðsson, leikmaður meistaraliðs Brann í norsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu, er í liði ársins sem val- ið er sameiginlega af sjö fjölmiðlum. Þeir sem standa sameiginlega að kjörinu eru Aftenposten og staðarblöðin Adresse- avisen, Bergens Tidende, Stavanger Aftenblad, Fædrelandsvennen, Sunnmørs- posten og Bladet Tromsø. Kristján fær 5,58 í meðaleinkunn í kjörinu en aðeins Alanzinho, leikmaður Stabæk, er með hærri einkunn. Alanzinho er leikmaður ársins með 5,69 að meðaltali en Somen A. Tchoyi, leik- maður Stabæk, er með sömu einkunn og Kristján Örn. Tchoyi var valinn leikmaður ársins hjá Verdens Gang og Dagbladet. Kristján í liði ársins Kristján Örn Sigurðsson ÓVÆNT úrslit urðu í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær- kvöld þegar meistarar Kiel töpuðu á heimavelli fyrir Hamburg, 30:31. Suður-Kóreumaðurinn Kyung-Shin Yoon var hetja gest- anna en þessi frábæra örvhenta skytta skoraði sigurmarkið tveimur sekúndum fyrir leikslok. Yoon skoraði 11 mörk fyrir Hamburg í leiknum, Pascal Hens og Guillaume Gille 5 mörk hver og Daninn Hans Óttar Lind- berg, sem á íslenska foreldra, skoraði eitt mark. Hjá Kiel, sem hefur hampað meistaratitlinum undanfarin þrjú ár og í 13 skipti í það heila, var franski landsliðsmaðurinn Nikola Karab- atic atkvæðamestur með 9 mörk og sænski landsliðsmaðurinn Marcus Alhm kom næstur með 7 mörk. Sigur Hamburg hleypti mikilli spennu í toppbaráttuna í deildinni. Kiel er með 20 stig í efsta sæti eftir tólf leiki, Ham- burg hefur 19 stig eftir 11 leiki, Nordhorn 19 stig eftir tólf leiki og Flensburg er í fjórða sætinu með 17 stig. Yoon hetja Hamburg Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki vegna menntunar erlendis. Upplýsingar gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460 1467 og á vidar@isi.is. Umsóknir berist á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1. des. nk. www.isi.is Þjálfarastyrkir ÍSÍ haust 2007 FORRÁÐAMENN sænska knatt- spyrnuliðsins Norrköping leggja nú hart að Stefáni Þórðarsyni að hann endurskoði ákvörðun sína þess efn- is að yfirgefa félagið á næstu vik- um. Stefán hefur gert starfsloka- samning við félagið og ætlar hann að leika með ÍA á Akranesi á næstu leiktíð. Í frétt staðarblaðsins Norr- köping Tidningar er sagt frá því að hugmyndir forráðamanna Norr- köping gangi út á það að Stefán verði með félaginu í upphafi leik- tíðar á næsta ári en fari síðan til Ís- lands þegar hlé verður gert á sænsku úrvalsdeildinni vegna loka- keppni Evrópumóts landsliða í júní. Michael Andersson, formaður fé- lagsins, segir að margir hafi viðrað þessa hugmynd við Stefán á undan- förnum dögum. Með liðinu leikur Garðar Gunnlaugsson og Gunnar Þór Gunnarsson var á dögunum keyptur til liðsins frá Hammarby. Norrköping vill tefja heimferð Stefáns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.