Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 1
BANKARNIR skilja húnæðismark- aðinn eftir í algjöru uppnámi, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra. Hún segir stöðuna sem nú sé komin upp á húsnæðismarkaði vera mjög alvarlega og fulla ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af henni. Jóhanna segir að ekki hafi verið bætandi á það slæma ástand sem orðið var áður en vaxtahækkanir og hömlur lánastofnana á yfirtöku hús- næðislána skullu á húsnæðiskaup- endum. Undanfarnar vikur hefur starfshópur félagsmálaráðherra, þar sem m.a. aðilar vinnumarkaðarins eiga fulltrúa, kannað ástandið á hús- næðismarkaði og unnið að tillögum  Félagsmálaráðherra segir leigjendur og þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð vera í miklum vanda stadda  Nýjustu viðburðir á lánamarkaði bæti ekki ástandið um hvernig styrkja megi stöðu þess fólks sem er að kaupa sína fyrstu íbúð og eins leigjenda. Jóhanna ótt- ast að staðan sem upp er komin á markaðnum geri það erfiðara en ella að ná fram úrbótum. „Það er stór hópur fólks í kaupum á sinni fyrstu íbúð sem hefur ekki getað komið þaki yfir höfuðið vegna ástandsins. Fólk hefur þurft að borga 3-5 milljónir í útborgun til að eiga fyrir lítilli þriggja herbergja íbúð. Staðan á leigumarkaði er líka mjög þröng. Könnun sem við létum gera sýnir að 70% þeirra sem eru að bíða eftir leiguhúsnæði eru með 150 þúsund í mánaðartekjur en þurfa að borga 110 til 130 þúsund í leigu. Það sem er að gerast núna gerir þessa stöðu enn verri,“ sagði Jóhanna. Markaðurinn í uppnámi Í HNOTSKURN »Útborgun ílítilli þriggja herbergja íbúð er 3-5 milljónir króna. »Um þrjú þús-und leigjendur eru í mikilli neyð og bíða eftir aðgerðum. 70% þeirra eru með 150 þús- und í tekjur á mánuði og leig- an 110-130 þúsund.  Allur ávinningurinn horfinn | 6 STOFNAÐ 1913 306. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is SVIÐAMESSAN NORNIR OG FLEIRI FORYNJUR VERÐA Á SVEIMI UM SVEITIR DJÚPAVOGS >> 24 FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ALVARLEGT flugatvik, sem átti sér stað þegar olíupakkning bilaði í öðr- um hreyfli Fokker-vélar Flugfélags Íslands á þriðju- dagskvöldið, er nú til rannsóknar hjá Rannsóknar- nefnd flugslysa (RNF). Þó að at- vik af þessu tagi hafi ekki áður gerst í 15 ára sögu félagsins kom fram í Morgunblaðinu í gær að vandamál hafi gert vart við sig í sams konar olíupakkningum erlendis. Skýrar flugöryggisreglur gilda um viðbrögð við bilunum af þessu tagi. Atvikið er þegar í stað tilkynnt RNF og lofthæfideild Flugmálastjórnar. Í þessu tilviki virðist þéttihringur í hreyfli hafa skorist í sundur. Sam- kvæmt upplýsingum Flugmála- stjórnar er ferillinn sá að orsakir bil- unarinnar eru rannsakaðar þegar í stað og flugmálayfirvöld senda til- kynningu til framleiðanda. Ástæður bilunarinnar geta verið ýmsar, m.a. röng ísetning, en komi t.d. í ljós að um galla sé að ræða eru gefin út svo- kölluð lofthæfisfyrirmæli til allra flugrekenda sem eru með sams konar vélar í notkun. Strangt eftirlit Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri FÍ, segir allt viðhald flugvéla fara fram undir ströngu eftirliti og mjög stífar reglur séu um öll gæða- kerfi í kringum flugið, „enda er það einn af öruggustu ferðamátum í heimi,“ segir Árni. „Flugöryggi er alltaf að aukast og kröfurnar verða sífellt meiri. Menn vilja halda þessum ferðamáta þeim öruggasta í heimi eins og hann hefur verið og ekkert gefa eftir.“ Samræmdar öryggiskröfur eru gerðar til allra flugrekenda í Evrópu. Í tilvikum þar sem flugfélög nota leiguvélar, eins og t.d. Iceland Ex- press, eru flugvélar leigðar með við- haldi og tryggingum og er það því eigandi vélanna sem er ábyrgur fyrir vélinni. „Flugrekendur verða að fylgja eftir gríðarlega ströngum reglum og það er alltaf forgangsatriði hjá félögum að fylgja þeim í einu og öllu,“ sagði viðmælandi hjá íslensku flugfélögunum. Niðurstöður skýrslu, sem út kom sl. vor, um tíðni flugslysa og alvarlegra flugatvika á Íslandi frá 1976, gefa sterklega til kynna að flug- öryggi í atvinnuflugi hafi aukist hér á landi. Fjöldi flugtíma í atvinnuflugi jókst úr 50 þús. árið 1979 í 225 þús. tíma 2003. Var fjöldi slysa og alvar- legra atvika vel undir meðalfjölda á hverja þúsund flugtíma. Nákvæm viðbrögð við bilun Flugöryggi í atvinnu- flugi fer vaxandi hér Fokker-flugvél FÍ tekur á loft. MARGIR listamenn komu fram á árlegum tónleikum sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi hélt í gær- kvöldi í Grafarvogskirkju til styrktar barna- og ung- lingageðdeild Landspítala, BUGL. Meðal þeirra sem tóku lagið voru tónlistarmaðurinn Ragnar Bjarnason og ungur meðsöngvari, Árni Þór Lárusson, sem er 13 ára. Morgunblaðið/Kristinn Listamenn sungu fyrir BUGL LAUSAFJÁRSTAÐA Kaupþings er prýðileg, að sögn Sig- urðar Einarssonar, stjórnarformanns bankans, en skulda- tryggingarálag bankans hefur áttfaldast frá því í sumar- byrjun. „Við áttum okkur ekki alveg á því hvers vegna skulda- tryggingarálag á Kaupþing er svo hátt sem raun ber vitni,“ segir Sigurður og sér fyrir sér lækkun álagsins þegar menn fari að átta sig á því hver raunveruleikinn sé. Segir hann vangaveltur greiningardeilda hinna bankanna síðustu daga um óvissu tengda fjármögnun Kaupþings vera rangar. Seg- ir hann lausafjárstöðu bankans mjög góða og enga ástæðu fyrir bankann að fara út á skuldabréfamarkaðinn eins og sakir standa. Bætir hann við að endurfjármögnunarþörf bankans á næsta ári muni nema um 1,7 milljörðum evra sem ekki geti talist mikið og verði ekki allt í einu. | 16 Vangaveltur um fjármögnun rangar Sigurður Einarsson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG veit um marga lækna úti í heimi sem hugsa sig tvisvar um áður en þeir koma heim, m.a. vegna stöð- unnar á húsnæðismarkaði,“ segir Tryggvi Helgason barnalæknir, sem er nýkominn heim úr framhalds- námi í barnalækningum. Hann seldi íbúð sem hann átti þegar hann fór utan í nám árið 2000. „Við vorum að leita að ákveðinni stærð og gerðum kröfu um ákveðið hverfi og það er ekkert mikið í boði fyrir þann sem er að koma nýr inn á markaðinn og þarf að stökkva inn í þetta stórt húsnæði. Eftir að hafa skoðað um 70 íbúðir erum við loks búin að kaupa,“ segir Tryggvi, en þau keyptu 150 fm raðhús. Tryggvi segir að upphaflega hafi þau hjónin skoðað húsnæði sem kostaði um 30 milljónir. „En keypt- um á endanum húsnæði sem var töluvert dýrara en það, af því að við fundum ekki það sem okkur langaði í á 30 milljónir,“ segir hann.. Tryggvi segir þau hafa yfirtekið lán hjá Íbúðalánasjóði og tekið líf- eyrissjóðslán, en síðan þurft að brúa yfir 10 milljónir á annan hátt, þó ekki með bankaláni. „Maður forðast að taka bankalán hér því okurvext- irnir eru skelfilegir. Ég er kannski í betri stöðu en margir sem eru að koma heim, þar sem ég er sem lækn- ir með hærri tekjur en meðalmaður. Þetta er samt erfitt.“ | 6 Hika við að koma heim aftur Staðan á húsnæðis- markaði ástæðan Leikhúsin í landinu Má bjóða þér sæti? >> 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.