Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 331. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is BERSÖGLISMÁL ÓVANALEGA OPINSKÁ BÓK UM ÁSTIR OG KYNLÍF, DRAUGA OG GOÐSAGNIR >> 17 FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SÓÐARNIR sem kasta rusli út um bíl- glugga vita sjálfsagt vel að slíkt er strang- lega bannað og auk þess siðferðilega ámæl- isvert. Það eru hins vegar ekki allir sem átta sig á því að ef lögregla stendur sóða að verki fá þeir 10.000 króna sekt. Tvítugi pilturinn sem kastaði pylsu og pylsubréfi út um bílglugga þar sem bíllinn stóð á bílastæði söluturns á Selfossi 1. októ- ber sl. er einn af þeim sem vita af þessu sektarákvæði því hann var í síðustu viku dæmdur til að greiða 10.000 króna sekt fyrir at- hæfið. Það er sjaldgæft að „ruslamál“ eins og þetta rati inn á borð dómstóla en samkvæmt upplýs- ingum frá lögregl- unni á Selfossi fór málið svona langt vegna þess að pilt- urinn vildi ekki gangast undir sátt í málinu og greiða 10.000 krónur, líkt og flestir fallast á að gera. Að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslumanns á Sel- fossi, þræta þeir sem kasta rusli yfirleitt fyrir sóðaskapinn og því verður lögregla helst að standa þá að verki til þess að þeir fallist á að greiða sekt eða grundvöllur skapist fyrir málshöfðun. Pilturinn sem henti pylsunni gaf sig ekki og því var gefin út ákæra. Ólafur Helgi sagði að það væru ekki eingöngu ungmenni sem köstuðu rusli, lögregla hefði séð til fjölskyldufólks, með börn í bílnum, losa óhroðann út um gluggann. „Þetta er skortur á uppeldi,“ sagði hann. Færri stampar en minna rusl Eitthvað hefur líka skort á uppeldi margra þeirra sem leggja leið sína um mið- borg Reykjavíkur. Umgengni þar er „alveg hroðaleg“ að sögn Guðna J. Hannessonar, verkstjóra hjá framkvæmdasviði borg- arinnar, en hann sér m.a. um eftirlit með hreinsunarstörfum þar. Um helgina var Guðni á ferð um Heidelberg í Þýskalandi þar sem verslunargötur voru stappfullar þannig að mannmergðin minnti helst á menningarnótt í Reykjavík. En þrátt fyrir að margir hafi þar kjamsað á skyndibita og ruslastampar væru færri í Heidelberg en í Reykjavík var varla að sjá rusl á götum. Bannið við að henda rusli á almannafæri er að finna í lögreglusamþykktum. Á þessu ári hafa alls 652 verið gripnir fyrir brot á samþykktinni í Reykjavík, tífalt fleiri en í fyrra. Vegna verklags við skráningu er erf- itt að sjá hversu margir voru teknir ein- göngu fyrir að kasta rusli. Sóðarnir borga sektir Börnin horfa upp á sóðaskap foreldranna Rusl Þeir sem kasta rusli þræta yfirleitt fyrir sóðaskapinn Eftir Soffíu Haraldsdóttur og Agnesi Bragadóttur UM 7,9% lækkun varð á verði hlutabréfa í FL Group í gær og minnkaði markaðsverðmæti fé- lagsins því um 15 milljarða króna innan dagsins. Frá nóvemberbyrj- un hefur verðmæti félagsins minnkað um 52 milljarða króna eða 23%, og frá því í febrúar um 129 milljarða króna, eða 42%. Rætt um að efla eignasafn FL Group hefur á síðustu dög- um átt í viðræðum við stóran eig- anda Landic Properties, Baug Group, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, (Baugur á rétt tæp 40% í fasteignafélaginu). Við- ræðurnar hafa m.a. snúist um það að efla eignasafn félagsins og fjár- hagslegan styrk þess, en ekki ligg- ur enn fyrir samkomulag um á hvaða gengi í FL ný viðskipti við þriðja aðila verði. Þó var, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins í gærkvöld, frekar búist við að ekki yrði mikið hvikað af voru ein stór viðskipti sem námu 254 milljónum króna. Greiningardeild Landsbank- ans rekur ástæður lækkunarinn- ar í gær til verðlækkunar á fé- lögum í eignasafni FL Group. Verð hlutabréfanna var 19,25 krónur á hvern hlut í lok dags. Líkur eru taldar á því að Hannes Smárason muni hætta störfum sem forstjóri FL Group á næstu dögum og við taki að- stoðarforstjórinn Jón Sigurðs- son. Talsmaður FL Group vildi ekki staðfesta þetta við Morgun- blaðið. Kauphöll OMX á Íslandi setti hlutabréf í FL Group á athugun- arlista í gær með vísan til til- kynningar félagsins um viðræð- urnar. Páll Harðarson, aðstoðar- forstjóri kauphallarinnar, segir ástæðuna einfalda. „Þegar svona viðræður eru í gangi þá er hætta á að það skap- ist ójafnræði á milli aðila. Við not- um þessa merkingu til að vekja athygli fjárfesta á þessum að- stæðum,“ segir Páll. frá því gengi sem tekist hafði óformlegt samkomulag um fyrir helgi, en það var gengið 19. Sömu upplýsingar herma að það gæti mikils þrýstings frá eigend- um Baugs um að viðskiptaverð verði talsvert lægra, og hefur gengið 15 verið nefnt. Þessu munu aðrir eigendur í FL vera algjör- lega andvígir og telja of lágt. Í gær námu viðskipti með hluta- bréf í félaginu rúmum hálfum milljarði króna í kauphöllinni. Þar FL Group lækkaði um 15 milljarða  Markaðsverð FL hefur lækkað um nærri 130 milljarða króna frá í febrúar  Þrýst á um frekari verðlækkun                   SAMKEPPNI um lögfræðinga á al- mennum vinnumarkaði fer harðn- andi og einkafyrirtæki sækjast í auknum mæli eftir fólki með víðtæka reynslu úr ráðuneytum. Meðal þeirra fyrirtækja sem sækjast eftir sérfræðingum úr ráðu- neytunum eru fjármálafyrirtæki, fasteignafélög og lögmannsstofur. Almennt má segja að starfsmanna- velta alls staðar í atvinnulífinu hafi aukist, bæði vegna þess að fólk sæk- ist eftir því að afla sér víðtækrar reynslu á mörgum sviðum og einnig vegna þess að undanfarið hafa at- vinnutækifæri verið fjölmörg fyrir vel menntað fólk. Tryggð við sama atvinnurekanda árum og jafnvel ára- tugum saman er því á undanhaldi. Ekki auðveld samkeppni Hjá einkafyrirtækjum bjóðast yf- irleitt mun hærri laun en hjá hinu opinbera en laun í ráðuneytunum eru óbeint miðuð við ákvarðanir kjararáðs um laun ráðuneytisstjóra. Þó að útskrifuðum lögfræðingum hafi fjölgað síðustu ár er að minnsta kosti enn sem komið er meiri eft- irspurn eftir en framboð af löglærðu fólki. Því eiga ráðuneytin óhægt um vik að keppa um hæfasta fólkið. | 6 Grípa reynslu- boltana „ÞESSI verðlaun eru mikill heiður fyrir mig og hvatn- ing. Þetta er staðfesting á því að ég sé á réttri braut, þó auðvitað geti maður alltaf gert betur og lært meira. Á sama tíma veitir þessi viðurkenning mér mikinn inn- blástur. Þetta gæðir tilveruna meiri litadýrð og gleði,“ segir Freyja Haraldsdóttir sem í gær hlaut Hvatning- arverðlaun Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) í flokki einstaklinga. Auk hennar var Starfsendurhæfing Norðurlands verðlaunuð í flokki stofnana og Móðir náttúra í flokki fyrirtækja. | Miðopna Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent í fyrsta sinn Morgunblaðið/Ómar „Gæðir tilveruna meiri gleði“ Snemma á þriðju- dags- morgni Í dag er síðasti öruggi skiladagur fyrir jólapakka utan Evrópu www.postur.is Leikhúsin í landinu Ekki missa af neinu >> 37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.