Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 334. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is KONUNGUR VEGA NÝR LAND CRUISER KEMUR BRÁTT OG 300 MANNS HAFA PANTAÐ SLÍKAN >> BÍLAR FRÉTTASKÝRING Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is KAUPÞING stóð að baki því að ákveðið var að gengi á viðskiptum Baugs við FL Group yrði 14,7, þegar fast- eignasafni Baugs verður rennt inn í FL Group. Lands- bankinn og ákveðnir hluthafar í FL Group töldu að geng- ið ætti að vera hærra, eða 19, eins og lagt hafði verið til sl. föstudag. Ólíkir hagsmunir bankanna réðu mismunandi afstöðu þeirra til þessa máls. Landsbankinn var því fylgjandi að gengi FL Group héldist hátt, því bankinn hefur lánað mikla fjármuni til einstakra hluthafa í FL Group. Hluthafarnir hafa sett bréf sín í FL að veði og við það gífurlega verðfall sem orðið hefur á bréfum í FL Group standa bréfin ein ekki lengur undir veðsetningu lána vegna þeirra. Samkvæmt upplýsingum úr Landsbankanum telur bankinn að hluthafar í FL hafi aukið nægilega við trygg- ingar sínar vegna lána í bankanum. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins eru stjórnendur Kaupþings og Landsbankans þokkalega sáttir við þá niðurstöðu sem fékkst með hlutafjáraukningu í FL Group. Ánægja mun ríkja með það innan Landsbankans, að stjórnendur FL Group hafa sett öll hlutabréfin í Tryggingamiðstöðinni inn í Landsbanka, sem tryggingu fyrir lánum félagsins í bankanum. Búist er við því að eignarhlutur annarra hluthafa en Baugs í FL Group muni enn minnka á næstunni, því ákveðnir hluthafar munu verða að selja bréf sín til þess að geta staðið í skilum. Fons, eignarhaldsfélag í eigu þeirra Pálma Haralds- sonar og Jóhannesar Kristinssonar, keypti í gær tæp 7% í FL fyrir rétt rúma 10 milljarða króna, og seljendur voru Hannes Smárason og þeir Magnús Ármann og Þorsteinn M. Jónsson, sem eiga Sólmon ehf., dótturfélag Materia Invest sem átti 9,23% í FL Group. Kaupþing réð því að gengið í FL varð 14,7  Kaupþing og Landsbankinn höfðu ólíka hagsmuni að verja í gengismálum FL  Bankarnir | Miðopna FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is HVAÐ gerist þegar fólksbíll sem ekið er á 212 kílómetra hraða á klukkustund lendir í árekstri? „Ég held að allir þeir sem eiga aðild að slíku atviki láti lífið, það er alveg hægt að fullyrða það. Því þessi bless- aði líkami okkar þolir aðeins tiltekið högg. Það er því klárt mál að það yrði aðeins ein niðurstaða úr slíkum árekstri.“ Þetta segir Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu. Sautján ára pilturinn sem ók á 212 km hraða á Reykjanesbraut í fyrri- nótt þarf að fara fyrir dómara sem mun taka ákvörðun um gildistíma ökuleyfissviptingar og upphæð sekt- ar. Pilturinn fær sekt að lágmarki 150 þús. krónur, verður sviptur ökuleyfi í minnst þrjá mánuði og fer í aksturs- bann sem felur í sér að hann þarf að fara á námskeið þar sem farið er yfir afleiðingar áhættuhegðunar í um- ferðinni og lögð áhersla á að skerpa ábyrgð ökumannsins. Í framhaldinu þarf pilturinn að taka ökupróf að nýju með tilheyrandi kostnaði. Hann var með mánaðargamalt ökuskírteini og var þ.a.l. með bráðabirgðaskírteini sem yfirleitt gildir í þrjú ár. Í raun er litið svo á að pilturinn hafi ekki stað- ist „ökuprófið“ úti í umferðinni og þurfi að taka það aftur. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hjá lög- reglunni á Suðurnesjum hvort ákvæði laga sem heimilar upptöku bifreiða verður beitt í málinu. Dregið hefur úr ofsaakstri Góðu fréttirnar eru þær að dregið hefur úr ofsaakstri undanfarin þrjú ár og hefur meðalhraði í umferðinni minnkað um 3 km/klst. „Þótt þetta sé ekki há tala hefur þetta umtalsverð áhrif á umferðaröryggi,“ segir Sig- urður. Skýringarnar felast fyrst og fremst í hertum viðurlögum sem og ítarlegri ökukennslu. Langflestir ungir ökumenn eru til fyrirmyndar í umferðinni, t.d. hefur tjónatíðni 17-19 ára ökumanna lækk- að undanfarin ár meira en hjá öllum öðrum aldurshópum. Morgunblaðið/Júlíus Náðist Piltur sem ók á ofsahraða á Reykjanesbraut fer fyrir dómara. Stóðst ekki öku- prófið Tjónatíðni ungra öku- manna hefur lækkað HAGNAÐUR ársins af hluta- bréfum í kaup- höll OMX á Ís- landi er horfinn, ef mið er tekið af úrvalsvísitöl- unni sem í gær náði sínu lægsta gildi á árinu. Vísitalan lækk- aði í gær um 1,99% og endaði í 6.380 stigum en stóð í 6.410 stig- um eftir viðskiptin 2. janúar síð- astliðinn. Hefur vísitalan því lækkað um 0,5% á árinu en grein- ingardeildir höfðu áður spáð allt að 40% hækkun á árinu. Flest félög lækkuðu í kauphöll- inni í gær, 365 hf. mest, eða um 7%, bréf FL Group lækkuðu um 4,3% niður í 15,65, Kaupþing lækkaði um 2,7% og Exista um 2,6%. 32 milljarða rýrnun Það sem af er ári hefur mark- aðsvirði skráðra eigna Existu lækkað um ríflega 32 milljarða króna sem skýrir meðal annars mikla gengislækkun félagsins að undanförnu. Stærsta eign Existu, finnska tryggingafélagið Sampo, hefur lækkað áberandi mest – um 17,8 milljarða króna. Hækkun ársins er horfin  Viðskipti | 6 og 14 Leikhúsin í landinu Bjóddu elskunni í leikhús >> 48 á www.jolamjolk.is Frábærir vinningar! Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik ALVARLEGT umferðarslys varð á Reykjanesbraut síðdegis í gær til móts við álverið í Straumsvík. Jeppi og lítill sendibíll rákust saman og slösuðust þrír, þar af tveir alvar- lega og lágu þeir þungt haldnir á gjörgæsludeild Landspítalans í gærkvöldi. Mikil hálka var þegar slysið varð. Morgunblaðið/Júlíus Harður árekstur „VIÐ GERUM ekki ráð fyrir að þetta verði stórt hlaup,“ sagði Gunnar Sig- urðsson, vatnamælingamaður og verkfræðingur hjá Orkustofnun, í samtali við fréttavef Morgunblaðsins í gærkvöldi um hlaup sem hafið er í Skeiðará. Gunnar hafði þó þann fyrir- vara á að slíkt vissi maður aldrei með fullri vissu fyrirfram. Gunnar segir að rennsli og rafleiðni hafi vaxið í Skeiðará undanfarna daga auk þess sem órói mældist á jarð- skjálftamælum Veðurstofu Íslands í Grímsvötnum aðfaranótt fimmtu- dags. „Þá fór ekkert á milli mála að komið var af stað Skeiðarárhlaup.“ Hlaup í Skeiðará fara af stað þegar vatn úr Grímsvötnum stendur nægi- lega hátt til að brjóta sér leið undir Skeiðarárjökul. Síðast hljóp úr Grímsvötnum fyrir þremur árum og fylgdi því eldgos. Rennsli árinnar í gær var talið álíka mikið og gott sumarrennsli og brenni- steinslykt fannst á Skeiðarársandi. Skeiðarárhlaup hafið Morgunblaðið/RAX Skeiðará Seinasta hlaup var árið 2004 og gaus þá í Grímsvötnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.