Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 3 Karlalandsliðið í íshokkí er komiðtil Ástralíu þar sem það keppir í 2. deild heimsmeistaramótsins. Fyrsti leikurinn er gegn Nýja- Sjálandi á mánudagsmorguninn en auk þess er leikið við Ástralíu, Mexíkó, Kína og Spán. Íslenskur þjálfari stjórnar liðinu í fyrsta skipti, Sveinn Björnsson, sem er aðalþjálf- ari Skautafélags Akureyrar, en honum til aðstoðar er Richard Eirík- ur Tahtinen, sem er hálfíslenskur og hefur þjálfað undanfarin ár hjá Malmö Redhawks í Svíþjóð. Ís- lenska liðið endaði í fjórða sæti af sex liðum í sínum riðli 2. deild- arinnar á síðasta ári. Sextán bestu þjóðir heims leika á sjálfu heims- meistaramótinu, tólf leika í 1. deild og Íslendingar eru einir tólf þjóða í 2. deildinni. Þar fyrir neðan eru síð- an átta þjóðir í 3. deild.    Keflvíking-urinn Har- aldur Freyr Guð- mundsson hefur verið settur út úr byrjunarliði Aalesund fyrir stórleik liðsins gegn Nor- egsmeisturum Brann í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Það kemur mjög á óvart en Haraldur hefur verið lyk- ilmaður í vörn liðsins undanfarin ár. „Ég er bálreiður og tel mig ekki verðskulda þetta, enda taldi ég mig hafa spilað vel gegn Vålerenga í fyrstu umferðinni. En ég lofa því að ég verð ekki lengi á bekknum,“ sagði Haraldur við netútgáfu Sunnmörs- posten í gær. Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson eru í byrjunarliði Brann í dag en Gylfi Einarsson er á varamannabekknum.    Íslenska kvennasveitin í golfi, semkeppir á á Sotogrande vellinum á Spáni, er í 9. til 10. sæti af 11 sveit- um eftir þriðja hring í gær. Valdis Þóra Jónsdóttir lék best íslensku keppendanna í gær, lauk leik á 75 höggum og Tinna Jóhannsdóttir var á 78 höggum. Helena Árnadóttir lék á 84 og taldi ekki. Tinna er í 14. sæti í einstaklingskeppninni á 233 högg- um, Valdís Þóra í 17. á 235 höggum og Helana 33. á 254 höggum, en keppendur eru 34.    Karlasveitin er í 19. og næstneðsta sæti en þar lék Sig- urþór Jónsson sinn besta hring í keppninni til þessa, lauk leik á 75 höggum. Hinir þrír, Pétur Freyr Sigurðsson, Kristján Þór Einarsson og Stefán Már Stefánsson léku allir á 77 höggum. Stefán Már er í 63. sæti á 235 höggum en 79 kylfingar keppa. Pétur Freyr er í 68. sæti á 237 höggum, Kristján Þór og Sig- urþór eru í 72. sæti á 240 höggum.    Kristján Ari Halldórsson, kant-maður í úrvalsdeildarliði HK í knattspyrnu, missir af fyrstu um- ferðum Íslandsmótsins. Kristján Ari, sem lék 10 leiki með HK í úr- valsdeildinni í fyrra, brákaðist á rist á æfingu Kópavogsliðsins í vikunni. Fólk sport@mbl.is Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að Keflavík sé með besta lið landsins. Þegar niðurstaðan lá fyrir tjáði hann Morgunblaðinu að hún kæmi sér ekki á óvart: ,,Ég sagði fyrir tímabilið að við ætluðum okkur að vinna alla titla sem í boði væru. Það klikkaði því við misstum af bikarnum út af aumingjaskap í okkur sjálfum. Við unnum hins vegar hina fjóra og því ætti þetta ekki að koma fólki á óvart. Við vorum með besta liðið, það var engin spurning. Ég held að það hljóti allir að vera sammála því. Það var líka kominn tími á þetta. Það eru þrjú ár síðan Keflavík vann síðast og það þyk- ir heldur betur langur tími hjá okkur,“ sagði Jón. Spurður um muninn á Keflavík og KR sagði hann breiddina hafa skipt höfuðmáli: ,,Við vorum með breiðari hóp en þær og spiluðum á fleiri leikmönnum. Það hefur senni- lega gert það að verkum að minni þreytu gætti hjá okkur en þeim. Við ætluðum að fara í gegnum alla úrslita- keppnina án þess að tapa leik og það gekk eftir. Það var takmarkið og því kemur það okkur ekki á óvart.“ Reynsluleysi háði KR-ingum KR veitti Keflavík verðuga mót- spyrnu í gærkvöldi rétt eins og í fyrsta leik liðanna í Keflavík. Gestirnir byrj- uðu af krafti og náðu í framhaldinu tólf stiga forskoti í öðrum leikhluta 37:25. Heimaliðið vann sig strax inn í leikinn á ný og náði ágætu forskoti í þriðja leikhluta á meðan Hildur Sigurðar- dóttir, leikstjórnandi KR, var utan vallar vegna meiðsla. Hún snéri þó aft- ur og í síðasta leikhlutanum vann KR upp ellefu stiga mun og jafnaði leikinn 87:87. TaKesha Watson skoraði þá síð- ustu fjögur stig Keflavíkur en Guðrún Ámundardóttir svaraði með glæsilegri þriggja stiga körfu þegar fimm sek- úndur lifðu af leiknum. Þá brutu Kefl- víkingar af sér og KR fékk tækifæri á því að stela sigrinum þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir. Skot þeirra geigaði hins vegar og nýliðarnir í deildinni urðu að játa sig sigraða. KR- ingar börðust vel í leiknum en reynslu- leysi háði liðinu sem birtist meðal ann- ars í því að þær töpuðu boltanum allt of oft til Keflvíkinga. Munurinn gæti ekki verið minni Jóhannes Árnason, þjálfari KR, er sammála því að Keflvíkingar hafi haft reynsluna fram yfir KR: ,,Við erum búin að spila tvo leiki hérna í Keflavík í þessari rimmu og tapa þeim báðum með samtals tveimur stigum. Þetta gæti því ekki verið minni munur. Kefl- víkingar búa að því að eiga tvo útlend- inga sem gera mikilvægar körfur fyrir þær á svona stundum. Þrjár úr mínu byrjunarliði eru bikarmeistarar í ung- lingaflokki og okkur skortir reynslu og kunnáttu sem þarf til þess að vinna svona leiki. Við létum þessar stelpur leika stórt hlutverk að þessu sinni og það mun nýtast þeim á næstu leiktíð,“ sagði Jóhannes. Ingibjörg Vilbergsdóttir, fyrirliði Keflvíkinga, setti niður mikilvæga þriggja stiga körfu þegar skammt var eftir af leiknum. Hún var að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil: ,,Við ætl- uðum alltaf að taka þetta 3:0 en viss- um að það yrði mjög erfitt. Við sýnd- um bara hversu öflugar við erum og tókum þetta bara 6:0 í úrslitakeppn- inni,“ sagði Ingibjörg en gat ekki neit- að því að hafa verið orðin örlítið stressuð undir lokin þegar KR tókst að jafna: ,,Auðvitað. En það er mikill karakter í okkar liði og ég var sann- færð um að við myndum koma til baka. Það var alltaf markmiðið að ná öllum fimm titlunum en við náðum fjórum. Á næsta ári verða þeir fimm.“ Var ekkert stressuð Pálína Gunnlaugsdóttir gekk í raðir Keflvíkinga frá Haukum síðastliðið sumar. Hún hefur leikið stórt hlutverk hjá Keflavík í úrslitakeppninni þó svo að hún hafi ekki átt sinn besta leik í sókninni í gærkvöldi. Pálína varð Ís- landsmeistari með Hafnfirðingum 2006 og 2007. Hún hefur því orðið meistari þrjú ár í röð: ,,Jú jú það er al- veg hægt að venjast þessu. Þetta er svo sem mjög svipað að vinna titilinn með Keflavík og Haukum. Reyndar er leikmannahópurinn svolítið ólíkur. Ég var ekkert stressuð fyrir þennan leik og spurði þjálfarann hvort það væri ekki skrítið. Honum fannst það hins vegar bara fínt. Kannski er maður orðin eitthvað kokhraust af því að maður er búinn að vinna þetta áður. Reyndar er mikið sjálfstraust í öllu lið- inu enda höfum við ekki tapað í síðustu fjórtán leikjum. Við skjótum allar á körfuna af miklu sjálfstrausti,“ sagði Pálína. Pálína styrkti Keflavíkurliðið mikið eins og Birna Valgarðsdóttir sem snéri aftur í janúar eftir barneignarfrí. Á sama tíma bættist hin þýska Susan Biemer í hópinn og að undanförnu hef- ur Keflavík verið óstöðvandi. Sterk- asti hlekkur liðsins er þó TaKesha Watson sem eins og áður segir var verðlaunuð fyrir frammistöðu sína í úrslitakeppninni. Mjög verðskuldað hjá Watson enda frábær íþróttamaður þar á ferðinni. Keflavík tapaði ekki leik í úrslitakeppninni Ljósmynd/Víkurfréttir Sterkar Pálína Gunnlaugsdóttir sækir hér að körfu KR en til varnar eru Lilja Oddsdóttir og Sigrún Ámundadóttir. KEFLAVÍK landaði í gærkvöldi sín- um þrettánda Íslandsmeistaratitli í körfuknattleik kvenna, þegar liðið lagði KR 91:90. Þetta var þriðji leik- ur liðanna í úrslitum Iceland Ex- press deildarinnar og sigraði Kefla- vík í þeim öllum. Raunar tapaði liðið ekki leik í úrslitakeppninni, því þær unnu Hauka einnig 3:0 í undan- úrslitum. Hin bandaríska TaKesha Watson var í lykilhlutverki hjá Keflavík og var að leiknum loknum útnefnd besti leikmaður úr- slitakeppninnar. Eftir Kristján Jónsson sport@mbl.is rðarson verður ekki í sækir Gefle heim í knattspyrnu á morg- heimild fyrir fyrsta um síðustu helgi, og ær. lánaður frá ÍA til þar til Íslandsmótið kki verið send til Sví- nn hafa ekki fengið Alþjóðaknattspyrnu- ti fengið Stefán aftur félagaskipti, hinn 1. mkvæmdastjóri KSÍ, gær að starfsmaður túlkun á reglum við i. Hann hefði óskað u frá FIFA en hún hafði ekki borist síðdegis í gær. „Það er ekki annað að heyra en að þetta sé óbreytt síðan í september. Þá kann- aði ég hjá FIFA hvernig svona málum væri háttað og fékk skýr svör. FIFA lítur svo á að í þessu tilviki beri að telja ÍA sem tvö félög, við- komandi leikmaður myndi þá vera skráður í þrjú félög á einu ári, og því gangi skammtímalán á borð við þetta ekki upp. Stefán getur skipt yfir til Norrköping en miðað við þetta kæmist hann ekki aftur til ÍA fyrr en 1. júlí. Ég taldi það skyldu mína að gera ÍA grein fyrir þessum möguleika áður en félaga- skipti Stefáns yrðu staðfest,“ sagði Þórir Há- konarson. ær enn ekki leik- með Norrköping Stefán Þórðarson ÓLAFUR Stefánsson og Arnór Atlason, ís- lensku landsliðsmennirnir í handknatt- leik, eiga stórleiki fyrir höndum um helgina. Báðir spila þeir með liðum sínum í undanúrslitum í Evrópumótunum en fyrri leikirnir eru leiknir þessa helgina og síðari leikirnir þá næstu. Ólafur og félagar í Ciudad Real fá Hamburg frá Þýskalandi í heimsókn til Spánar í Meistaradeild Evrópu á morgun. José Hombrados, fyrirliði og markvörður Ciudad Real, sagði í viðtali á vef félagsins í gær að liðin ættu tvo hörkuleiki fram- undan. „Það er mikilvægt að ná góðum úr- slitum í heimaleiknum því í Hamborg bíða okkar 11 þúsund áhorfendur. Liðin eru áþekk að styrkleika,“ sagði Hombrados. Þýskaland og Spánn heyja einvígi í Meistaradeildinni því í hinni viðureign undanúrslitanna eigast við Kiel og Barcelona. Arnór og samherjar hans í FCK frá Dan- mörku eru komnir í undanúrslit í EHF- bikarnum en þeir lögðu HK að velli í keppninni fyrr í vetur. Þeir leika gegn Cimos Koper í Slóveníu í dag en slóv- enska liðið er firnasterkt og lagði Lemgo frá Þýskalandi í báðum viðureignum lið- anna í átta liða úrslitunum. Arnór er ný- kominn af stað eftir meiðsli í hné og ætti að geta tekið nokkurn þátt í leiknum í dag. Í hinum leik undanúrslitanna í EHF- bikarnum eigast við Aragón, Spáni og Nordhorn, Þýskalandi. Stórleikir hjá Ólafi og Arnóri í Evrópukeppninni Ólafur Stefánsson FRAM hefur fengið til reynslu enska knattspyrnumanninn Joe Tillen en hann er yngri bróðir Sams Tillens sem Framarar sömdu við fyrr í vetur. Joe Tillen er 21 árs gamall, vinstri bakvörður eða kantmaður, og hefur að undanförnu leikið með Thatcham Town í sjöttu efstu deild á Englandi. Hann er uppal- inn hjá Chelsea og var síðan um skeið hjá Milton Keynes Dons í ensku 3. deildinni en náði aðeins að spila einn deildaleik með félag- inu. Fram skoðar Englending

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.