Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 1
fimmtudagur 17. 4. 2008 íþróttir mbl.is Ragna Ingólfsdóttir lagði ítölsku stúlkuna Agnese Allegrini á EM >> 2 MEISTARABARÁTTA EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN SEGIR AÐ ÞAÐ VÆRI MEIRI- HÁTTAR GAMAN AÐ MÆTA CHELSEA Í MOSKVU >> 4 Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Við erum reyndar með mikla reynslu í þessu þannig að ég get ekki sagt að mér hafi liðið neitt óskaplega illa eftir fyrstu tvo leik- ina. Við vitum nefnilega að það þarf að vinna þrjá leiki – jafnvel þó mað- ur vinni fyrstu tvo leikina. Þetta eru allt jafn mikilvægir leikir og við gleymdum okkur ekkert í því að vera 2:0 undir, heldur tókum bara hvern leik fyrir sig og settum allt okkar í hvern einasta leik,“ sagði Sigurður. Geysilega ánægður Hann var mjög sáttur með leik sinna manna í síðustu þremur leikj- um. „Ég er geysilega ánægður með að komast áfram enda er það afrek að vinna þetta frábæra ÍR-lið. Ég get varla hrósað þeim nógu mikið því mér finnst liðið mjög skemmti- legt og það hefur leikið frábærlega í úrslitakeppninni. Stemningin í kringum liðið hjá þeim og okkar lið líka hefur verið frábær og þetta er búið að vera virkilega skemmti- legt,“ sagði Sigurður. „Mér fannst við spila mjög vel í kvöld. Liðsheildin fékk að njóta sín og það skemmtilega við þetta er að enn og aftur fá þeir leikmenn að njóta sín sem eru mest tilbúnir. Það er styrkur okkar að sá sem er mest tilbúinn og í mesta stuðinu þann daginn getur fengið að njóta sín innan liðsheildarinnar,“ sagði Sig- urður kampakátur enda full ástæða til. Vörn Keflvíkinga var sterka sem sést kannski best á því að ÍR-liðið skorar aðeins 73 stig í leiknum. „Vörnin var mjög góð hjá okkur og þú sérð það bara á því að fá bara 73 stig á okkur á móti ÍR-ingum er gríðarlega gott og ég vil hrósa þeim fyrir frammistöðuna í vetur. Þeir eru með frábært lið,“ sagði Sig- urður. Rimman við Snæfell hefst í Keflavík á laugardaginn. „Ég hlakka mikið til. Nú tekur alvaran við. Okkur var spáð fimmta sætinu í deildinni þannig að ég veit ekki al- veg hvaða liðum búast hefði mátt við í úrslitum. Nú förum við aðeins yfir málin enda ekkert búnir að velta þessu fyrir okkur fram að þessu,“ sagði Sigurður sem vonast til að Antony Susniara verði orðinn góður af meiðslum sínum. „Það eru smámeiðsli hér og þar og það er bara hluti af þessu öllu saman,“ sagði Sigurður og vildi ekki gera mikið úr því. »3 Ljósmynd/Víkurfréttir Gleði Keflvíkingar voru að vonum ánægðir eftir að hafa lagt ÍR-inga að velli á sannfærandi hátt í gærkvöld. „Afrek að vinna ÍR“  Sigurður segir ÍR með skemmtilegt lið  Keflvíkingar fyrstir að ná að sigra eftir að hafa lent 2:0 undir  Lið af Suðurnesjum hefur alltaf verið í úrslitum „JÁ, það má segja að við höfum sloppið fyrir horn með þetta enda vorum við komnir 2:0 undir í rimm- unni,“ sagði Sigurður Ingimund- arson, kátur þjálfari Keflvíkinga eftir að liðið tryggði sér sæti í úr- slitarimmunni við Snæfell í gær. Þá lagði Keflavík ÍR 93:73 í oddaleik og sneri dæminu heldur betur við og er fyrst liða til að lenda 2:0 undir í rimmu en komast samt áfram. Keflvíkingar héldu líka í hefðina því lið af Suðurnesjum hefur alltaf verið í úrslitum síðan úrslitakeppn- in hófst árið 1984. EIRÍKUR Önundarson, leikmaður ÍR í körfuknattleik, segir að mikið þurfi að koma til ef hann eigi að halda áfram í körfunni. „Það þarf eitthvað mikið að koma til ef þetta var ekki síðasti leikurinn hjá mér,“ sagði Eiríkur eftir tapið í Keflavík í gærkvöldi. „Þetta er örugglega minn síðasti leikur, en þegar maður labbar út eftir svona leik þá langar mann mikið til að spila meira og leið- rétta hjá sér það sem miður fór. En ég held það verði ekki. Það eru 99% líkur á að þetta hafi verið síð- asti leikurinn minn. Það þarf mjög mikið að koma til ef ég á eftir að leika annan leik,“ sagði Eiríkur. Hann verður 34 ára í haust og hefur verið lengi að, lék fyrst með meistaraflokki ÍR 1994, lék með KR 1998-99 og erlendis næsta tímabil þar á eftir en kom síðan heim til ÍR á nýjan leik. Hann hafði leikið 276 leiki fyrir þetta tímabil og gert í þeim 4.179 stig sem gera 15,1 stig að meðaltali í leik. Flest stig gerði hann í leik ÍR og Keflavíkur árið 2003 þegar hann setti 45 stig í 111:107 sigri ÍR. Eiríkur er hættur NÝLIÐAR Þróttar úr Reykjavík í úrvalsdeildinni í knattspyrnu hafa fengið unglingalandsliðsmanninn Viktor Unnar Illugason lánaðan frá enska úrvalsdeildarfélaginu Read- ing. Viktor staðfesti þetta við net- miðilinn Fótbolta.net í gærkvöld. Viktor er 18 ára gamall sóknar- maður, uppalinn hjá Breiðabliki. Hann lék níu leiki með liðinu í efstu deild árið 2006, þá 16 ára, og gerði eitt mark, gekk síðan til liðs við Reading í ársbyrjun 2007. Þar hef- ur hann leikið með unglinga- og varaliðum félagsins. Viktor hefur leikið 23 leiki með yngri landsliðum Íslands. Viktor til Þróttara íþróttir ALEXANDER Petersson, landsliðs- maður í handknattleik, átti stórleik í gærkvöld þegar Flensburg komst í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar. Al- exander skoraði 10 mörk þegar Flensburg lagði Wetzlar á útivelli, 38:29, og með því náði liðið eins stigs forskoti á Kiel sem gerði jafn- tefli við Hamburg á sama tíma, 36:36. Alexander gerði tvö fyrstu mörk Flensburg í leiknum og skoraði fimm í hvorum hálfleik. Einar Hólmgeirsson kom lítið við sögu hjá Flensburg og skoraði ekki.  Kiel fór illa að ráði sínu í Ham- borg og missti þar niður þriggja marka forskot á lokamínútunum. Hans Lindberg, íslenski Daninn í liði Hamborgar, skoraði þrjú mörk í röð á lokakaflanum og var marka- hæstur hjá liðinu með 7 mörk. Filip Jicha gerði 10 mörk fyrir Kiel. Þegar fimm umferðum er ólokið er Flensburg með 50 stig á toppn- um, Kiel er með 49 stig og Ham- burg er í þriðja sætinu með 47 stig. Kiel á einn leik til góða á hina tvo keppinautana.  Guðjón Valur Sigurðsson skor- aði 5 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson 3 þegar lið þeirra tapaði fyrir Nordhorn á úti- velli, 34:31. Sverre Jakobsson skor- aði ekki fyrir Gummersbach sem seig niður um eitt sæti, niður í það sjöunda.  Logi Geirsson skoraði 5 mörk fyrir Lemgo, 3 þeirra úr vítaköst- um, þegar lið hans burstaði Essen, 37:23, og komst upp fyrir Gum- mersbach og í sjötta sætið.  Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Minden sem tapaði fyrir Melsungen á útivelli, 33:31.  Jaliesky Garcia skoraði 5 mörk fyrir Göppingen og Gylfi Gylfason 4 mörk fyrir Wilhelms- havener en Göppingen vann örugg- an sigur í leik liðanna, 30:23.  Þórir Ólafsson og Birkir Ívar Guðmundsson léku ekki með N- Lübbecke sem tapaði naumlega fyrir Magdeburg á heimavelli, 24:25. Alexander með tíu og Flensburg á toppinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.