Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 1
miðvikudagur 11. 6. 2008 íþróttir mbl.is íþróttir Eyjamenn halda sigurgöngunni áfram í 1. deildinni >> 4 SVÍAR SKELLTU GRIKKJUM ZLATAN SLÓ EVRÓPUMEISTARANA ÚT AF LAGINU. DAVID VILLA MEÐ ÞRENNU FYRIR SPÁN GEGN RÚSSLANDI >> 2 Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í Róm seth@mbl.is „Ég var einn af þeim fyrstu sem þeir töluðu við í desember og á þeim tíma var útlitið allt annað en það er í dag. Það átti að halda kjarna liðsins og byggja upp meistaralið. Forráðamenn Roma ætluðu að setja mikla fjármuni í þetta lið og gera enn betur. Frá þeim tíma hafa komið upp vís- bendingar um að margir af lyk- ilmönnum liðsins séu að hugsa sér til hreyfings. Erazem Lor- bek er í „eigu“ Larrys Birds og félaga hans í Indiana Pacers í NBA-deildinni. Hann gæti því farið þangað og Roko Ukic, leik- stjórnandinn frá Króatíu, var valinn á sínum tíma af Toronto Raptors í NBA. Hann gæti líka verið á förum. Og það sem skipt- ir mestu máli er að Repesa hefur verið orðaður við ýmis lið að undanförnu þrátt fyrir að hann sé með samning út tímabilið 2009-2010,“ sagði Jón Arnór við Morgunblaðið í gær. Ber mikla virðingu fyrir þjálfaranum Hann er ánægður með að leika undir stjórn Repesa. „Já, mér FRAMTÍÐ Jóns Arnórs Stef- ánssonar hjá ítalska körfuknatt- leiksliðinu Lottomattica Roma er óráðin en Jón hefur ekki rætt með formlegum hætti við forráðamenn liðsins um framhaldið í nokkrar vikur. Jón segir að mikil óvissa sé um hvaða leikmenn verða áfram í herbúðum liðsins og allt eins lík- legt að flestir af burðarásum þess séu á förum ásamt þjálfaranum Jasmin Repesa. hefur gengið vel hjá honum. Ég veit hvað hann vill og ég ber mikla virðingu fyrir honum sem þjálfara. Það er mitt mat að til þess að byggja upp gott lið þurfi kjarni liðsins að hafa leikið sam- an í nokkur ár áður en hægt er að landa meistaratitli. Það hafa þeir gert í Siena og ég hélt að Roma hugsaði með svipuðum hætti. Eins og staðan er í dag þá er mikil óvissa um framhaldið hjá mér. Samningurinn rennur út í lok leiktíðar og umboðsmað- ur minn hefur verið að kanna aðra möguleika. Það gæti því farið svo að ég færi frá Roma í sumar en það á eftir að koma í ljós. Mér líður vel á þessum stað en ef ég lít á liðið og það sem er að gerast hjá því getur það verið betri kostur að fara eitthvað annað,“ sagði Jón Arnór Stef- ánsson. Jón Arnór og félagar sigruðu Siena í fjórða leiknum um ítalska meistaratitilinn í gærkvöld. » 4 Í HNOTSKURN »Jón Arnór Stefánsson er25 ára gamall, fæddur í Svíþjóð 21. september 1982. Hann er 1,95 m á hæð og 92 kíló og hefur spilað 40 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. »Jón Arnór hefur leikiðmeð KR, Trier í Þýska- landi, Dallas Mavericks í Bandaríkjunum, Dinamo St. Pétursborg í Rússlandi, Carpisa Napoli á Ítalíu og Valencia á Spáni, auk Roma.  Óvissa í herbúðum Roma  Flestir burðarásar liðsins á förum ásamt þjálfaranum  Jón Arnór telur líklega besta kost- inn að leita annað eftir þetta tímabil Jón Arnór á förum frá Róm? Ljósmynd/Ciamillo Óvissa Jón Arnór Stefánsson telur líklegt að þjálfari Roma og margir leikmann- anna séu á förum frá félaginu og hugsar sér því sjálfur til hreyfings í sumar. RAGNHEIÐUR Ragnarsdóttir sund- kona úr KR synti í úrslitum í 50 m skriðsundi á sundmóti í Barcelona í gær, sem er hluti af Mare Nostrum- mótaröðinni. Hafnaði Ragn- heiður í 7. sæti í greininni, en þetta var besti ár- angur íslensku sundmannanna á mótinu í gær. Erla Dögg Haraldsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir kepptu báðar í 50 m bringusundi þar sem Erla Dögg lenti í 13. sæti og Hrafn- hildur í 17. sæti. Voru þær báðar ná- lægt sínum bestu tímum. Jakob Jóhann Sveinsson, sem er þungur á sér eftir strangar æf- ingabúðir endaði í 17. sæti í 100 m bringusundi. Þá bætti Árni Már Árnason persónulegan árangur sinn í 100 m skriðsundi, en Árni mun reyna við Ólympíulágmarkið í 50 m skriðsundi í dag. Birkir Már Jónsson er einnig með- al íslenskra keppenda í Barcelona, en honum gekk ekki sem best í gær, þar sem hann varð fyrir því óláni að sundbúningur hans rifnaði. Mare Nostrum-mótaröðin er gríð- arlega sterk, en meðal keppenda á mótaröðinni eru bæði heims- og Evrópumethafar. | thorkell@mbl.is Ragnheiður sjöunda í Barcelona Ragnheiður Ragnarsdóttir MATTHÍAS Haraldsson, landsliðs- maður í blaki og Danmerkur- meistari með Marienlyst á nýliðnu keppnistímabili, er til reynslu hjá Evivo Düren, einu af sterkustu lið- um Þýskalands. Samkvæmt blaðinu Aachener Nachrichten hefur Matthías staðið sig vel hjá liðinu, sem hefur haft fleiri leikmenn til skoðunar með komandi tímabil í huga. Matthías er 27 ára gamall og var valinn besti „frelsinginn“ í dönsku úrvalsdeildinni í vetur. Hann var ekki með landsliðinu á Evrópumóti smáþjóða á Möltu um síðustu helgi en hann gaf ekki kost á sér í það verkefni. Düren hafnaði í fimmta sæti af tólf liðum í efstu deildinni í Þýska- landi í vetur, með 14 sigra og 8 tap- leiki. | vs@mbl.is Matthías til reynslu í Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.