Morgunblaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 9 Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is UNDIRSKRIFTARÁTAKIÐ Segj- um nei við ofbeldi gegn konum hófst í gær. Utanríkisráðherra, sam- gönguráðherra og heilbrigð- isráðherra undirrituðu áskorunina fyrir hönd ríkisstjórnarinnar en átakið er hvatning til ríkisstjórna heims að grípa til aðgerða til að binda enda á ofbeldi gegn konum. Auka réttindi kvenna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ut- anríkisráðherra, sagði á fjölmiðla- fundi hjá UNIFEM á Íslandi í gær- morgun að miklu máli skipti fyrir samfélög heimsins að bæta stöðu og auka réttindi kvenna. Slíkt kæmi ekki aðeins konum vel heldur sam- félögum í heild sinni. „Við skulum ekki gleyma því að konur eru ekki bara fórnarlömb heldur einnig ger- endur í eigin lífi. Konur um allan heim taka málin í sínar hendur og þess vegna er svona átak mikilvægt því að það styður þær í því.“ Í nóvember síðastliðnum fór UNI- FEM af stað með átakið „Say NO to Violence against Women“ í sam- starfi við velgjörðarsendiherra sinn Nicole Kidman, leikkonuna þekktu. Það átak mun standa yfir í eitt ár. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi opnaði í gær sérstaka íslenska heimasíðu tileinkaða átakinu til þess að hvetja Íslendinga til þess að ljá málefninu lið og skrifa nafn sitt und- ir áskorun til ríkisstjórna heims. Getur ekki beðið „Ofbeldi gegn konum er málefni sem getur ekki beðið. Að minnsta kosti ein af hverjum þremur konum er barin, þvinguð til kynlífs eða mis- notuð á annan hátt einhvern tímann á lífsleiðinni. Fimmta hver kona verður fórnarlamb nauðgunar eða tilraunar til nauðgunar. Ekkert land, engin menning, eng- in kona ung eða gömul, er ónæm fyr- ir þessari plágu. Alltof oft komast menn upp með þessa glæpi án þess að refsað sé fyrir og ofbeldismenn- irnir ganga lausir, “ sagði Regína Bjarnadóttir stjórnarformaður UNIFEM á fundinum. Átakið mun standa yfir í 12 vikur og lýkur hinn 6. nóvember næstkom- andi. Þá munu undirskriftirnar verða sendar formlega til höf- uðstöðva UNIFEM í New York, en heimsátakinu lýkur hinn 25. nóv- ember á baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Ofbeldi gegn kon- um verði ekki liðið  Nýtt undirskriftarátak hvetur ríkisstjórnir til mótaðgerða Morgunblaðið/Valdís Thor Fundur Regína Bjarnadóttir, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tóku til máls. UMHVERFISNEFND Alþingis fjallaði í gær um úrskurð umhverf- isráðherra um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka. Á fund nefndarinn- ar kom á annan tug gesta vegna málsins. Í þeim hópi voru fulltrú- ar allra framkvæmda- aðila, heima- manna, náttúru- verndarsamtaka og umhverfis- ráðuneytisins. Helgi Hjörvar, formaður um- hverfisnefndar, taldi að umfjöllunin hefði verið mjög gagnleg fyrir nefnd- ina. Ekki síst ábendingar um að lög- gjöfin hefði ekki tryggt skýrar regl- ur um hvernig ætti að framkvæma hið sameiginlega mat. „Það er eðlilegt að framkvæmda- aðilunum þyki þeir búa við óvissu þess vegna. En þeir áttu eftir hádeg- ið [í gær] fund með Skipulagsstofnun og ég treysti því að þar hafi þeir fengið góðar leiðbeiningar um hvernig standa megi að framkvæmd- inni,“ sagði Helgi. Hann sagði að andstaða við úrskurð umhverfisráð- herra kæmi á óvart, að öðru leyti en því sem lýtur að óskýrum reglum um framkvæmd sameiginlegs umhverf- ismats. Fyrir úrskurðinum lægi mál- efnaleg og rökstudd sjónarmið sem lyti að því að mikilvægt væri að vanda sem mest til undirbúnings jafnáhrifamikilla framkvæmda og hér um ræðir. Skiljanleg óánægja norðan- manna með ákvörðun Helgi sagði að sér þætti skiljan- legt að norðanmönnum þætti súrt í broti að Helguvík hefði ekki farið í sömu meðferð og Bakki varðandi umhverfismat. „Ég tel að það sé óheppilegt að ekki hafi einnig verið farið í sameig- inlegt mat í Helguvík. En þegar kom að núverandi umhverfisráðherra að úrskurða um það mál var málið of langt komið að hans mati. Ég tel að menn verði að treysta því að að baki því liggi áhersla á vandaða stjórn- sýslu,“ sagði Helgi. gudni@mbl.is Óskýrar reglur um sameiginlegt mat Helgi Hjörvar Hversu algengt er ofbeldi gegn konum? Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá UNIFEM er að með- altali þriðja hver kona barin, þvinguð í kynlífsathafnir eða misnotuð á ann- an hátt einhvern tímann á lífsleið- inni. Algengast er að líkamlegt of- beldi sem konur upplifa sé af hálfu maka eða annars nákomins. Hvar er hægt að skrifa undir? Hægt er að ljá átakinu lið með því að fara inn á heimasíðu UNIFEM á Ís- landi – www.unifem.is og rita þar nafn sitt. Undirskriftum verður skilað til New York 25. nóvember. S&S Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Útsölulok Allt á að seljast Komdu og prúttaðu Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Nýjar vörur í Bæjarlind Verðhrun á útsölu í Eddufelli ÚTSALA 30-75% afsláttur Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði „Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða- markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“ Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir, Allrahanda. Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku. Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu. www.menntun.is Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22 Bjóðum upp á starfstengd námskeið fyrir heilbrigðis- og félagsstéttir, skólaritara- og skrifstofustjóranám, íslensku fyrir útlendinga o.fl. Fylgist með á www.framvegis.is Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.