Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is MOSASKEGG er merkilegt fyrir- bæri í náttúrunni. Hér á landi finnst það aðeins á einum stað, í Eldborgarhrauni. Ágúst H. Bjarna- son grasafræðingur fann mosa- skeggið og festi það á filmu. Það er mjög algengt að mosi vaxi á trjám. Hann festir sig í börkinn á stofnum og greinum og myndar þar oftast litlar breiður. Mosinn dregur samt enga næringu úr trénu og fær því allt vatn og önnur ólífræn efni, sem hann þarfnast, eingöngu úr regnvatni. Í regn- skógum hitabeltis og heittempruðu beltanna er algengt að mosar hangi sem skegg niður úr trjánum, að sögn Ágústs. Myndast aðeins við sérstakar aðstæður Þetta sérstæða vaxtarlag verður þó því sjaldgæfara sem lengra dregur frá regnskógunum. Annars staðar á Norðurlöndum er það sárasjaldgæft og myndast aðeins við sérstakar aðstæður. Þetta kynlega vaxtarform er að- eins þekkt hér á landi á einum stað en það er í djúpri lægð í Eldborgar- hrauni í Mýrasýslu þar sem ríkja stillur og loftraki er mikill vegna uppstreymis gufu úr hrauninu. Mosi vex þar á stofni á tveggja metra háum reyniviði og myndar þar um 30 cm langt skegg. Ágúst segir að það þurfi ekki að koma á óvart að um sömu mosateg- und er að ræða og myndar slíkt vaxtarlag í Svíþjóð. Mosi þessi, sem er frekar stórgerður, er nefndur hraukmosi (Antitrichia curtipen- dula) og vex víða um land, einkum í fremur rýrum jarðvegi en einnig á steinum, klöppum og trjám. Mosaskegg við Eldborg Í regnskógum hitabeltis og heittempruðu beltanna er algengt að mosar hangi sem skegg niður úr trjánum Kynlegt Vaxtarformið þekkist á einum stað hér á landi, í Eldborgarhrauni. Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is ICELANDAIR sagði nýverið upp átta flugmönnum til viðbótar við þá áttatíu sem búið var að segja upp störfum á árinu. Nemur þetta um þriðjungsfækkun flugmanna hjá fyr- irtækinu. Samtals hefur Icelandair sagt upp um 300 starfsmönnum sín- um undanfarna mánuði. Bróðurpart- ur þessara uppsagna fór fram í lok júní síðastliðins en þá misstu um 240 starfsmenn hjá fyrirtækinu vinnu sína. Uppsagnirnar eru liður í viðbrögð- um flugfélagsins við samdrætti sem fyrirséður er með haustinu. Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi seg- ir að ástæður þessara síðustu upp- sagna séu horfur í verkefnum í leigu- flugi félagsins erlendis. Hann segir horfurnar þó hafa batnað að undan- förnu og ekki hafi komið til eins margra uppsagna og óttast var. Vonast til að endurráða Í júní sagði Birkir Hólm Guðna- son, framkvæmdastjóri Icelandair, að uppsagnirnar væru tímabundnar ráðstafanir og að hann vonaðist til að endurráða fólk á næstkomandi vori. Guðjón segir þetta standa óbreytt. „[Uppsagnirnar eru miðaðar] við stöðuna eins og hún lítur út núna í vetur og svo kemur í ljós á næstu vikum hvernig raunin verður,“ segir Guðjón. Þá verði mögulegar endur- ráðningar að hans sögn að sjálfsögðu teknar til athugunar. Ekki sé þó hægt að fullyrða eins og er hvort til endurráðninga komi en vonir for- svarsmanna Icelandair standa enn til að af þeim verði. Ekki er von á frekari uppsögnum hjá Icelandair á næstunni að sögn Guðjóns. Ljósmynd/Víkurfréttir Í loftið 88 flugmenn Icelandair hafa misst vinnuna það sem af er ári. Átta sagt upp til viðbótar KJARAFUNDI ljósmæðra og samninganefndar ríkisins hjá ríkis- sáttasemjara lauk í gærkvöldi án efnislegrar niðurstöðu en var frestað til klukk- an 11 á sunnudag. Fundurinn stóð yfir í allan gær- dag og segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, að allar tillögur beggja aðila hafi ver- ið skoðaðar. „Og við munum skoða tillögurnar þangað til við hittumst á fundinum á sunnudag,“ segir hún. „Á meðan aðilar hafa eitthvað að ræða lofar það góðu. En það er ekki þar með sagt að kjaradeilan sé að leysast í þessum töluðu orðum.“ Guðlaug segir að enn sé rúm vika uns fyrirhugað verkfall ljósmæðra skellur á og í hennar huga sé enn nægur tími til að semja. „Við þurfum ekki lengri tíma en viku – að því gefnu að aðilar tali sam- an.“ Guðlaug ítrekar að ljósmæður vegi og meti allar tillögur sem ríkið kemur með. Mun samninganefnd ljósmæðra koma með útspil á fund- inum á sunnudag eftir að hafa metið tillögur ríkisins fram að þeim fundi. Meðal krafna Ljósmæðrafélagsins er leiðrétting á launatöflu í samræmi við náms- og hæfniskröfur til jafns við sambærilegar stéttir í þjónustu við ríkið. Verkfall er yfirvofandi 4. september takist ekki samningar milli aðila. Nýtt út- spil á sunnudag Fundahlé hjá ljós- mæðrum og ríkinu Guðlaug Einarsdóttir AÐALGÖTUR Tirana, höfuð- borgar Albaníu, voru prýddar ís- lenskum fánum í gær þegar Geir H. Haarde hóf þar opinbera heim- sókn sína í boði forsætisráð- herrans Sali Berisha. Að sögn Geirs voru móttökurnar afar höfðinglegar, en þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskur ráð- herra heimsækir Albaníu í opin- berum erindagjörðum. Geir segir Albana leggja mikla áherslu á samstarf við Íslendinga á viðskiptasviðinu og bjóða ís- lensk fyrirtæki velkomin til lands- ins. Í för með ráðherranum eru einmitt fulltrúar Landsvirkjunar Power og Actavis og heimsótti Geir skrifstofu þeirra síðar- nefndu í Tirana. „Þeir eru mjög opnir fyrir er- lendum fjárfestingum og sam- starfi við erlend fyrirtæki og hafa byggt upp hagstætt viðskiptaum- hverfi því hér hefur allt breyst síðan þeir losnuðu undan oki ein- ræðisstjórnarinnar,“ segir Geir. Styðja framboð í öryggisráðið „Nú er hér öflugur hagvöxtur, lífskjör batnandi og lýðræðis- legar stofnanir að festa rætur með öruggum hætti en þeir telja sig geta lært mikið af okkur og okkar stofnunum. Svo telja þeir líka mjög mikilvægt að eiga við okkur gott pólitískt samstarf og þeir ætla að styðja okkur og hafa gert í öryggisráðsframboðinu.“ Albanar urðu sjálfir aðilar að NATO í apríl á þessu ári og þökk- uð albönsk stjórnvöld nú kærlega stuðning Íslands við aðildina. „Albanar leika núna lykilhlutverk á svæðinu og eru að verða afl sem beitir sér í þágu friðar og stöð- ugleika sem skiptir miklu máli á þessum stríðshrjáðu slóðum.“ Albanar vilja efla við- skipti við Íslendinga Höfðinglegar móttökur í Albaníu Í HNOTSKURN »Albanía er eitt fátækastaland Evrópu en unnið er af krafti að efnahagslegri uppbyggingu. Þar búa nú um þrjár milljónir manna. » Í dag mun Geir leggjablómsveig að minn- isvarða Albana sem látið hafa lífið fyrir ættjörðina og snæða að því loknu hádeg- isverð með Lulzim Basham, utanríkisráðherra Albaníu. » Í kvöld heldur Geir svotil Grikklands en þar mun hann m.a. ávarpa ráð- stefnu um reynslu Íslend- inga af nýtingu jarðhita og funda með forsætisráðherra. Móttaka Sali Berisha, forsætisráðherra Albaníu, og Geir H. Haarde forsætisráðherra kanna heiðursvörð. HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að erlendur maður sæti áframhald- andi gæsluvarðhaldi til 19. sept- ember vegna gruns um stórfelld þjófnaðarbrot. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að maðurinn sé erlendur og hafi lít- il tengsl við Ísland. Hann hafi lýst því yfir, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, að hann framfleyti sér með afbrotum. Í ljósi þessa eru taldar yfirgnæfandi líkur til þess að mað- urinn muni halda áfram afbrotum sé hann frjáls ferða sinna. Sagðist lifa á afbrotum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.