Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „FRIÐUR og að ég sé kominn aftur heim,“ sagði Paul Ramses aðspurður hvað hafi verið það fyrsta sem honum kom til hugar við komuna til Íslands í gær. Fjölskyldumeðlimir og vinir biðu komu hans í Leifsstöð og ríkti mikil eftirvænting meðal þeirra. Paul felldi gleðitár við komuna til landsins og kyssti hælisleitandinn frá Kenýa konu sína. Að því loknu féll hann á kné og kyssti íslenska grund. Endurkomuna telur hann sigur fyrir íslenskt réttarkerfi, en viðurkennir að í fyrstu hafi hann verið fullur örvæntingar. Hann lét illa af dvölinni á Ítalíu og sagðist hafa búið í 300 manna flóttamannabúðum við bágar aðstæður. Þá vandaði hann ekki sambýlingum sínum söguna. „Sumir þeirra voru frá löndum sem kunna illa við vestrænan lífsmáta. Þeir töl- uðu sífellt um hluti á borð við að sprengja sjálfa sig í loft upp. Það er almennt erfitt að búa með þeim sem setja það ekki fyrir sig að deyða aðra,“ sagði Paul, sem staðhæfði að hann hefði deilt herbergi með slíkum manni. Þá fannst hælisleit- andanum ítölsk lögregluyfirvöld sýna sér hörku og fullyrti að ítölskum almenningi stæði almennt á sama um útlendinga og flóttamenn. Hann sagðist þakklátur Guði og öllum þeim sem studdu hann. Grét af gleði við komuna til Íslands  Paul Ramses kominn aftur til landsins  Segist kominn heim  Vel tekið á móti honum í Leifsstöð í gær þar sem kona hans og ungbarn biðu  Lætur illa af dvölinni á Ítalíu Í HNOTSKURN »Paul Ramses er hælis-leitandi frá Kenýa. »Paul var sendur í flótta-mannabúðir á Ítalíu í júlí eftir að Útlendingastofnun hafnaði því að taka mál hans til efnislegrar meðferðar. » Í síðustu viku úrskurðaðidómsmálaráðherra aftur á móti að beiðni hans um hæli skyldi tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi. Ljósmynd/Víkurfréttir Fagnaðarfundir Paul Ramses var ekki lengi að faðma að sér konu sína og barn í Leifsstöð í gær. FRÉTTASKÝRING Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is HLUTI framlags Íslands til Atlants- hafsbandalagsins (NATO) hefur ver- ið að kosta loftflutninga á ýmsum vörum fyrir ríki bandalagsins milli staða. Það hefur íslenska ríkið gert frá árinu 2003. „Það fara 200 millj- ónir í slíka loftflutninga á árunum 2007 og 2008. Það er alls konar bún- aður sem er fluttur á milli staða og mestallt er flutt til Afganistans,“ segir Urður Gunnarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Vita hvað flutt er hverju sinni Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá að Icelandair Cargo hefði nýlega tvívegis flutt vopn fyrir Bandaríkja- stjórn til Georgíu. Þeir flutningar tengdust þó ekki þessu framlagi Ís- lendinga til NATO á nokkurn hátt. Flutningastarfsemi utanríkis- ráðuneytisins fer fram með þeim hætti að ákveðin ríki óska eftir fram- lagi frá Íslandi til flutninga. Þá fær utanríkisráðuneytið upplýsingar um hvað á að flytja og leggur fram fé til verksins. „Þess er vandlega gætt að ekki sé verið að flytja nein ólögleg vopn eða búnað sem ekki er í sam- ræmi við þá alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að. Þá er ég meðal annars að tala um jarð- og klasa- sprengjur,“ segir Urður. Íslenska ríkið greiðir aðeins fyrir téða flutninga en kemur ekki að framkvæmd þeirra. Líkt og áður sagði var áætlað að ráðstafa 200 milljónum króna í loftflutninga NATO til Afganistans á árunum 2007 og 2008. Enn er nokkur upp- hæð eftir af þessum milljónum. Slíkir flutningar ekki nýmæli Fréttir af skotvopnaflutningum Icelandair Cargo fyrir Bandaríkja- stjórn til Georgíu komu ýmsum á óvart. Fyrirtækið leggur þó áherslu á að það taki aldrei að sér flutninga- verkefni nema öll tilskilin leyfi séu fyrir hendi. Það flytji ennfremur ekki neitt sem almenningi geti staf- að hætta af. Georgíu-rifflarnir voru enda án skotfæra. Það er þó ljóst að slíkir hergagna- og birgðaflutningar á vegum Íslend- inga eru ekki nýir af nálinni. Ríkið sjálft hefur um langa hríð kostað flutninga á öllu frá vopnum að slökkvibílum til Afganistans fyrir NATO. Hergögn flutt og birgðir  Íslenska ríkið kostar ýmsa loftflutninga á vegum Atlantshafsbandalagsins  Framlag Íslands til starfseminnar 200 milljónir árin 2007 og 2008 FJÓRIR menn hafa verið ákærðir fyrir húsbrot og sérstaklega hættu- lega líkamsárás í Breiðholti hinn 22. mars síðastliðinn. Mennirnir, sem eru frá Póllandi og Litháen, ruddust inn í íbúðarhús í Keilufelli 35 ásamt sex til átta öðrum óþekktum mönn- um og misþyrmdu þar sjö mönnum, að því er virðist til að innheimta verndartoll. Árásin vakti óhug á sínum tíma enda sérlega gróf, en árásarmenn- irnir notuðu margskonar vopn og barefli, þar á meðal hníf og öxi, járn- stöng, hamar, golfkylfu og gadda- kylfu og var þeim beitt þannig að brotaþolar voru í lífshættu. Áverk- arnir sem af hlutust voru mjög alvar- legir, s.s. djúpir skurðir, beinbrot og samfallin lungu. Einn maður bein- brotnaði á báðum höndum og annar hlaut brotinn augnbotn, andlitsbein og rifbein. Í kjölfar árásarinnar var mikill viðbúnaður í Reykjanesbæ, þar sem sérsveit lögreglunnar leitaði ofbeld- ismannanna. Alls voru sex menn handteknir og fjórir þeirra dæmdir í farbann, en hinir fundust ekki. Meintur höfuðpaur hópsins, Pólverj- inn Tomasz Krzysztof Jagiela, gaf sig sjálfur fram þegar lögregla lýsti eftir honum og sat hann í gæsluvarð- haldi til 5. maí. Í ákæru ríkissaksóknara er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar. Þá gera brotaþolar einnig kröfur um skaðabætur, alls um 10 milljónir króna. unas@mbl.is Fjórir kærð- ir vegna lík- amsárásar NEFND sem falið var að meta hæfi umsækjenda um stöðu forstjóra Landspítalans telur fjóra umsækj- endur „vel hæfa“ til starfans. Nefndin skilaði áliti sínu til heil- brigðisráðuneytisins í fyrradag. Mun Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fara yfir skýrsluna á næstu dögum og taka afstöðu til umsækjenda í framhald- inu. „Það ríkir ánægja með það að af þessum þrettán umsækjendum hafi hæfisnefndin metið það svo að fjór- ir falli undir flokkinn vel hæfir,“ segir Hanna Katrín Friðriksson að- stoðarmaður ráðherra. Mat nefndarinnar verður gert opinbert þegar ráðherra hefur tek- ið afstöðu um hver umsækjendanna hreppir starfið. skulias@mbl.is Fjórir taldir „vel hæfir“ ÞESSAR mæðgur þurftu að ganga heldur lengri leið en vanalega til að komast leiðar sinnar á Reynimel í Vesturbæ Reykjavíkur, þar sem allt hefur verið á tjá og tundri í tvo mánuði. Ástæðan er að verið er að skipta um vatnsinntak í húsin. Á meðan hefur gatan öll verið sundurgrafin. Ástandið hefur verið það slæmt að engin bíla- stæði hafa verið við götuna á þessum tíma og fótafimi þarf til að komast leiðar sinnar. Morgunblaðið/Kristinn Fótafimi er þörf þar sem allt er á tjá og tundri „Þetta er fjarri því að vera eins- dæmi,“ segir Gunnar Már Sigur- finnsson, framkvæmdastjóri Ice- landair Cargo, um nýlega flutninga fyrirtækisins á skotfæralausum rifflum fyrir Bandaríkjastjórn til Georgíu. „Það er auðvitað verið að flytja slík gögn allan ársins hring á milli staða. Það er þannig að vélarnar okkar eru oft skráðar hjá ákveðn- um „miðlurum“ þegar það er hlé í fragtfluginu um helgar. Þessir miðlarar hafa svo margvísleg verk- efni, sem eru boðin út. Við höfum til dæmis verið að flytja hjálpar- gögn og matvæli. Svo þarf oft að ferja hljóðfæri milli staða fyrir hljómsveitir. Stundum er svo ósk- að eftir flugvél undir vopnaflutn- inga eins og í þessu tilviki. Við höf- um auðvitað mjög strangar reglur við slíka flutninga og höfum flutt ýmsan búnað; til dæmis her- mannatjöld og mat, fyrir Þjóðverja og Norðmenn.“ „Fjarri því að vera einsdæmi“ Grátið af gleði mbl.is | Sjónvarp Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.