Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SJÖUNDU og síðustu tónleikar á
vegum Tónlistarhátíðar unga fólksins
við þokkalega aðsókn, að þessu sinni
við óvænt hátt hlutfall roskinna
kvenna. Helgi Jónsson, frumkvöðull
TUF og tónfræðimagister frá Frei-
burg, flutti fyrst stutt ávarp hvar
fram kom að hátíðin myndi taka upp
þráðinn að ári, og var það í samræmi
við væntingar eftir vel heppnaða tón-
leikaröð og að manni skilst líflegt
námskeiðahald.
Hvorugt söngvara dagsins var auð-
kennt í tónleikaskrá með raddsviðs-
heitum, en ekki veit ég betur en Auð-
ur Gunnarsdóttir teljist enn sópran,
þó að ríkuleg hljómfylling hennar
gæti oft minnt á messósópran. Hins
vegar kvað Gunnar Guðbjörnsson
hafa nýlega verið að færast yfir í
Wagnerskan Heldentenor. Virtist
manni sem þau hamskipti væru ekki
að fullu um garð gengin ef marka má
hvað röddin í þjóðlagaleitum sex
söngva flokki Beethovens, An die
ferne Geliebte (1815) verkaði stund-
um boldangsleg, enda hlutverka-
umskiptin óneitanlega talsverð frá
fyrrum heiðbjörtum lýrískum tenór.
Þá voru sumar tempó- og styrkbreyt-
ingar í hranalegri kanti, einstaka
sinnum vottaði fyrir tónlafi, og slétt-
tónabeitingin, er leitt gat hugann að
fyrstu álíka tilþrifum Kristins Sig-
mundssonar fyrir 15–20 árum, var
ekki alltaf jafnsannfærandi brúuð við
hefðbundinn fagursöng. Kraftinn
skorti þó hvergi, allra sízt í Freisc-
hütz-aríu Webers Durch die Wälder,
og má vænta að Gunnari takist innan
tíðar að færa allt saman í heilsteypt-
ari mynd.
Fyrsta viðfangsefni Auðar var
flokkur Albans Berg, Sieben frühe
Lieder (1908). Án þess að geta státað
af náinni þekkingu á þessu síðróm-
antíska æskuverki Schönbergnem-
andans virtust mér lögin frekar keim-
lík innbyrðis og lítt til fjölbreyttrar
túlkunar fallin, enda þótt Auður færi
vel með – einkum Nacht og hið
stormasama Liebesode. Öðru máli
gegndi um háinnblásnu söngva Si-
beliusar, Den första kyssen og Svarta
Rosa – svo maður tali ekki um toppn-
úmer dagsins, hinn ævinlega óföln-
andi Flickan kom ifrån sin älsknings
möte sem Auður flutti af sannköll-
uðum norrænum miðsumarsólarfuna
við stílnæman undirleik Hovins. Hér
fór lag sem greinilega hentaði fun-
heitri flauelssópranröddinni fram í
fingurgóma, enda voru undirtektir
eftir því. Hæðin var sömuleiðis stór-
glæsileg í Voi lo sapete úr Cavalleria
Rusticana Mascagnis, þó tónlist Ítal-
ans höfðaði ekki jafnsterkt til manns
og ljóðaperlur hins finnska Orfeifs.
Að því loknu sungu Gunnar og
Auður saman Parigi, o cara dúett
Verdis úr La Traviata, og sem auka-
lag valsdúettinn kunna úr Kátu ekkju
Lehárs; hvort tveggja frekar hægt,
en af krafti. Pottþéttur píanóleikur
hins rússneska Andrejs Hovins var
hinn fylgnasti og oft skemmtilega
kryddaður.
Sem fyrr vantaði allar upplýsingar
í tónleikaskrá um verkin, m.a.s. plás-
sófrekan lágmarksfróðleik á við nöfn
ljóðahöfunda og ár tónverka. Að því
slepptu má óhætt segja að FUT hafi
lokið fyrstu tónleikaröð sinni með
glæsibrag, og gott til þess að vita að
verði framhald á.
Fun-
heitur
flauels-
sópran
TÓNLIST
Salurinn
Söngvaflokkar eftir Beethoven, Berg
og Sibelius; óperuaríur eftir Weber,
Mascagni og Verdi. Söngvarar: Gunnar
Guðbjörnsson og Auður Gunnarsdóttir.
Píanóundirleikur: Andrej Hovin.
Sunnudaginn 17. ágúst kl. 16.
Einsöngstónleikarbbbmn
Ríkarður Ö. Pálsson
VEGNA mikilla vinsælda verð-
ur sýning Viggos Mortensens
Skovbo í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur framlengd um
eina viku, eða fram til sunnu-
dagsins 7. september. Sýningin
hefur staðið frá því 31. maí.
Margir tengja eflaust nafn
þessa listamanns fremur við
leiklist en ljósmyndun en hann
hefur notið mikillar velgengni
sem kvikmyndaleikari og hlaut
nýverið tilnefningu til hinna eftirsóttu Ósk-
arsverðlauna. Viggo finnur sköpun sinni farveg í
fleiri en einni listgrein og blandar þeim einnig
gjarnan saman.
Samnefnd bók er gefin út meðfram sýningunni.
Ljósmyndun
Skovbo framlengd
vegna vinsælda
Viggo
Mortensen
AFMÆLISHÁTÍÐ Norræna
hússins stendur nú yfir og í
kvöld snýst dagskráin um tíð-
arandann í kringum 1998 þeg-
ar orku- og umhverfismál voru
ofarlega á baugi. Þorsteinn
Ingi Sigfússon, prófessor og
forstjóri, og rithöfundurinn
Andri Snær Magnason flytja
erindi og sænska fjöllistakonan
Charlotte Engelkes flytur brot
úr einleiknum Sweet.
Hljómsveitin Hjaltalín kemur fram og kynnir
kvöldsins er Steinunn Jóhannesdóttir.
Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á létt-
ar veitingar frá kl. 19.30, en dagskráin hefst
klukkan átta.
Fræði
Rætt um orku
og umhverfi
Andri Snær
Magnason
TRÍÓ saxófónleikarans Sig-
urðar Flosasonar heldur
tvenna tónleika á Djasshátíð
Reykjavíkur í kvöld og annað
kvöld klukkan tíu á efri hæð
Iðnó. Auk Sigurðar skipa tríóið
danski kontrabassaleikarinn
Lennart Ginman og gítarleik-
arinn Jón Páll Bjarnason.
Tríóið mun flytja valda
djassstandarda sem tilheyra
hinni sígildu amerísku söngbók
djassbókmenntanna. Hvorir tveggja tónleikarnir
verða teknir upp með mögulega útgáfu í huga.
Einungis lágmarksmögnun verður til staðar og
reynt að skapa nálægð og stofuandrúmsloft. For-
sala er á midi.is.
Tónlist
Tríó Sigurðar
Flosasonar í Iðnó
Sigurður
Flosason
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÍSLENSK danssköpun er í fyrirrúmi, og við
verðum með sex frumsköpuð íslensk dansverk í
vetur,“ segir Katrín Hall listrænn stjórnandi Ís-
lenska dansflokksins, spurð um áherslurnar í
vetrardagskrá flokksins. „Við sýnum átta verk,
því við tökum upp aftur verkin tvö af sýningunni
Dansandi frá því í febrúar, en hún gekk mjög vel
og við þurftum að hætta sýningum fyrir fullu húsi
vegna anna á sviðinu.“
Vetrarstarfið hefst með undirbúningi haustsýn-
ingar í október með verkum fjögurra íslenskra
danshöfunda, en þema sýningarinnar verður dú-
ett, þar sem tveir dansarar dansa hvert verk.
„Sumir hverjir hafa samið fyrir flokkinn áður með
góðum árangri, eins og Lára Stefánsdóttir og Pet-
er Anderson, sem ég kalla Íslending því hann hef-
ur búið og starfað hér svo lengi og á íslenska fjöl-
skyldu. Við fáum svo til liðs við okkur í fyrsta
skipti Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Gunnlaug
Egilsson sem kemur frá Konunglega sænska
dansflokknum í Stokkhólmi.“
Katrín segir það spennandi verkefni fyrir dans-
höfund með aðeins tvo dansara að vinna í svo
miklu návígi og dansararnir verða virkari í sköp-
unarferlinu. „Þá skapast meira návígi og flæði
milli danshöfundar og dansara. Við höfum verið að
einbeita okkur talsvert að hópverkefnum und-
anfarið, og mér fannst kominn tími til að skapa
þessa nánd þar sem aðeins tveir dansarar eru á
sviðinu í einu.“ Að sögn Katrínar hangir fleira á
spýtunni, því fámenna dansa er auðvelt að fara
með víðar út í samfélagið. „Það verður léttara að
fara til áhorfandans og nær honum.“
Vísir að verkaskrá með bestu dönsunum
Dansandi kemur aftur á svið í nóvember, en
verkin tvö í sýningunni eru Kvart eftir Jo Ström-
gren og Endastöð eftir Alexander Ekman. „Þessi
sýning fékk mikið lof, og Kvart vann til Grím-
unnar sem besta dansverkið, Jo Strömgren fékk
Grímuna sem besti danshöfundurinn, og dans-
arinn okkar Emilía Gísladóttir fékk Grímuna sem
besti dansarinn fyrir frammistöðu sína í verkinu.“
Katrín segir það að taka þessi verk upp aftur sé
vísir að framtíðarsýn hennar um að flokkurinn
eigi ákveðið repertoire eða safn dansa á verkaskrá
sem hægt verði að dansa oftar.
Febrúarsýning Dansflokksins verður sam-
starfsverkefni að sögn Katrínar, en febrúar-
sýningin er jafnan stærsta verkefni ársins hjá
flokknum. „Þrír danshöfundar munu leiða sköp-
unarferlið, Cameron Corbett einn af dönsurum
hópsins, ég sjálf og Peter Andersson, og svo taka
allir dansarar flokksins þátt í verkefninu. Hóp-
urinn hefur gríðarmikla reynslu af fjölbreyttri
vinnu með allskonar listamönnum, alþjóðlegum
þekktum danshöfundum og hæfileikaríkum Ís-
lendingum, og það framlag dansaranna verður
ómetanlegt. Þetta verður einskonar kjötkveðju-
hátíð íslenskrar danslistar og mikið fyrir augað.“
Bláa lónið verður vettvangur síðustu sýningar
starfsárs ÍD með samstarfi við Ernu Ómarsdóttur
danshöfund. „Erna skapar sinn heim í Bláa lóninu
með dönsurunum, innblásin af staðnum sjálfum
og umhverfi hans. Ég held að það sé í fyrsta skipti
sem dans er saminn fyrir þann stað, og gaman að
semja dans fyrir annan vettvang en svið.“
Margt fleira verður á dagskrá ÍD í vetur, dans-
námskeið fyrir stráka, Danssmiðja ÍD og áfram-
haldandi sýningarferðalög til útlanda, meðal ann-
ars til Noregs, þar sem listahátíðarverkið Ambra
verður sýnt með norska Carte blanche-dans-
hópnum og á Festival Les Boréalis í Caen í
Frakklandi þar sem ÍD verður með tvær mismun-
andi sýningar, alls fimm verk. „Íslenski dans-
flokkurinn er orðinn mjög samheldinn og sterkur
hópur, það hefur tekið tíma að byggja upp svo
sterkan hóp, en í dag er það okkar styrkur.“
Sterkur og samheldinn hópur
Íslenski dansflokkurinn leggur áherslu á íslenska danssköpun með sex nýjum
verkum og stefnir að því að hafa bestu dansa hópsins á föstum dansverkalista sínum
Dans „Hópurinn hefur gríðarmikla reynslu af fjölbreyttri vinnu með allskonar danshöfundum.“
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
SNÆFELLSJÖKULL: Frásagnir, hugsanir og
sýnir er nafn á mynd sem franski leikstjórinn
Jean Michel Roux er að gera hérlendis núna í
haust, en tökur munu fara fram í september.
„Frásagnirnar eru sögur fólksins, hugsanirnar
mínar eigin hugsanir og sýnirnar eru sýnir sem ég
þarf að skapa til að sýna áhorfendum hvað fer í
gegnum huga Íslendinga þegar þeir horfa á jökul-
inn,“ segir Roux um titilinn, en honum kom mjög
á óvart hve margir væru uppteknir af Snæfells-
jökli. „Sumir eiga í mjög nánu sambandi við þetta
fjall og tala nánast við það sem um manneskju
væri að ræða en aðrir nota hann til þess að spá
fyrir um veðrið,“ segir leikstjórinn sem kom á
óvart að Jules Verne (höfundur Leyndardóma
Snæfellsjökuls) væri nánast aldrei nefndur á nafn
og frægð fjallsins virtist rista dýpra en svo. Mynd-
inni lýsir hann sem ljóðrænni heimildarmynd og
félagsfræðilegri rannsókn, en Roux leikstýrði áð-
ur myndinni Rannsókn um huliðsheima, sem
fjallaði um reynslu Íslendinga af dulrænum fyr-
irbærum.
Leitað að myndefni af Snæfellsjökli
Hilmar Oddsson er framleiðandi myndarinnar,
en Roux hafði áður rætt við Hilmar um jökulinn í
kjölfar þess að fregnir bárust af því að geimverur
væru á leið á jökulinn, en Hilmar tók á sínum tíma
myndir af bið fjölda Íslendinga eftir þeirri heim-
sókn, sem minna bar á en vonir höfðu staðið til.
En Roux mun nota mikið af gömlu efni í myndina,
kvikmyndaupptökur sem og ljósmyndir og kallar
hann eftir efni til almennings. „Við höfum mikinn
áhuga á alls kyns myndum og myndbands-
upptökum úr fjölskyldusöfnum. Ég er ekki sér-
staklega að leita að sérstaklega fagmannlegum
myndum, hvort tveggja er forvitnilegt í mínum
augum.“ Þeir sem luma á forvitnilegu efni um
Snæfellsjökul geta haft samband við Roux í síma
841 7764 eða á netfanginu ho@ismennt.is.
Jökull eða manneskja?
Morgunblaðið/Kristinn
Jöklarannsókn Roux tekur myndir af jökli.
Roux gerir ljóðræna heimildarmynd um Snæfellsjökul
Október Duo ÍD frumsýnir dúetta eftir fjóra
af okkar fremstu danshöfundum. Nýja svið.
Nóvember Dansandi snýr aftur. Stóra svið.
Febrúar Dansveisla Allir dansarar ÍD undir
stjórn þriggja danshöfunda. Stóra svið.
Vorið Bláa lónið Erna Ómarsdóttir skapar
dansverk fyrir ÍD.
Nánar um Íslenska dansflokkinn á www.id.is
Sýningar í vetur