Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 34
Ég fór bara á hesti á milli ef mér leiddist öðrum megin … 43 » reykjavíkreykjavík Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „ÞETTA er ekki ósvipað því sem Netflix og Blockbuster bjóða upp á vestanhafs,“ segir Bjarki Pétursson, framkvæmdastjóri Bónusvídeós, sem kynnti fyrr í vikunni nýjung á íslensk- um vídeóleigumarkaði sem felst í því að fyrir fast mánaðargjald má leigja ótakmarkaðan fjölda kvikmynda. Til að byrja með verður þjónustan aðeins í boði fyrir vaxtar- og náms- mannaþjónustuviðskiptavini Kaup- þings. Áskriftin kostar 1.250 kr. fyrir hvern mánuð, 1.000 kr. fyrir náms- menn, og má þá fá lánaðan ótakmark- aðan fjölda kvikmynda þann mánuð- inn. Til samanburðar kostar venjuleg leiga 700 kr. og þarf því ekki að leigja margar myndir á mánuði til að áskriftin borgi sig. „Það má þess vegna koma í búðina kl. 12 og taka tvær myndir á leigu, skila þeim svo kl. 4 og taka aðrar tvær, og svo endurtaka leikinn kl. 8,“ segir Bjarki en hver viðskiptavinur má hafa eina gamla og eina nýja mynd í leigu hverju sinni. Myndir í pósti Leigutíminn er einn dagur fyrir nýjar myndir og tveir dagar fyrir gamlar, en þegar myndin hefur verið lengur í útláni leggjast á hefðbundnar dagsektir. Einnig býður Bónusvídeó nú í fyrsta sinn póstsendingu á myndum út á land. „Símtölum hefur rignt inn hvaðanæva af landinu þegar fréttir af nýju þjónustunni fóru að kvisast út,“ segir Bjarki. Viðskiptavinir úti á landi geta einn- ig valið mánaðaráskrift en þurfa að borga póstburðargjald aðra leið, 80 kr., með hverri leigu. Myndirnar eru sendar með venjulegum pósti og með fylgir merkt skilaumslag. Ótakmarkaður fjöldi mynda fyrir fast gjald Morgunblaðið/Frikki Framtíðin Viðskiptavinur velur sér mynd í nýtísku vídeóleigutæki Bónus- vídeó í Hraunbæ. Einnig má sjá úrvalið og panta myndir á netinu.  Með mánaðarlegri áskrift má taka að láni ótakmarkaðan fjölda mynda í Bónusvídeó  Heimsending út á land í boði www.bonusvideo.is  Gamall blogg- risi vaknaði af værum blundi á mánudaginn þeg- ar Jón Axel Ólafs- son bloggaði í fyrsta skipti síðan í október í fyrra, og endurvakti þar með Litlu frjálsu fréttastofuna á bloggsíðu sinni jax.blog.is. Það var þó ekki af góðu sem Jón Axel sá ástæðu til að byrja að blogga að nýju, heldur blöskruðu honum svo mjög skrif Jónasar Kristjánssonar, fyrrum ritstjóra DV, á síðunni jonas- .is, en þar fer Jónas hörðum orðum um Björgólf Thor Björgólfsson. „Litlu frjálsu blöskraði svo sjúkheit mannsins við þessi skrif að það var tekin ákvörðun um að opna á ný fyr- ir minnstu og ferskustu fréttastofu landsins,“ segir Jón Axel. Jónas hef- ur nú þegar svarað fyrir sig á jonas- .is, og segir hann m.a. að það sé gott að vera frjáls. „Ég er fullur af frelsi, en Jón Axel geltir. Ekkert er jafn hressandi og frelsið sjálft.“ Menn bíða eflaust spenntir eftir framhaldinu, en því ber annars að fagna að Litla frjálsa sé vöknuð til lífsins. Jónas vakti Litlu frjálsu fréttastofuna  Áhugaverðir tónleikar verða haldnir í Háskólabíói laugardaginn 30. ágúst næstkomandi. Þar mun Stórsveit Reykjavíkur flytja tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur, en tón- leikarnir eru hluti af Jazzhátíð Reykjavíkur. Stjórnandi og útsetj- ari alls efnisins er saxófónleikarinn Travis Sullivan frá New York, en þar rekur hann The Bjorkestra, stórsveit sem einungis flytur tónlist Bjarkar. Gaman verður að sjá hvaða lög verða á efnisskránni, lík- legt verður t.d. að teljast að „It’s Oh So Quiet“ verði þar á meðal, enda lag fyrir stórsveit, en erfiðara er að sjá fyrir sér lag á borð við „Declare Independence“ í þeim búningi. Björk fyrir big bandEftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „TAKK kærlega fyrir þetta / sömuleiðis / ókei bæ.“ Svona endar spjallið við Katrínu Mogensen, söngkonu og textahöfund Mammúts, en rétt eins og þetta viðtal byrjar ný plata sveitarinnar, Kark- ari, á endinum, laginu „Endir“. En þetta er tví- skipt plata, skipt í tvo fimm laga hluta með nafn- lausu trommusólói á milli. „Hlustendur heyra það ekki endilega, en fyrir okkur skiptist þetta svona. Fyrstu fimm lögin voru auðveldust fyrir okkur, komu mjög eðlilega og komu fyrst. Hin komu seinna og þurftu lengri fæðingartíma.“ Fiskur og Dýradóttir Fyrsta lag seinni hlutans er svo nefnt eftir nýj- asta meðliminum, „Dýradóttir“. „Það fjallar um fisk sem við gáfum henni í afmælisgjöf og er sett upp þannig að fiskurinn sé að syngja til hennar Ásu Dýradóttur, en við höfðum byggt upp af- skaplega dramatískt samband á milli hennar og fisksins.“ Nú eru um tvö ár síðan Vilborg Ása tók við sem bassaleikari af Guðrúnu Heiðu Ísaksdóttur. „Okk- ur langaði að finna bassaleikara sem væri ekki lærður og Halla, kærastan hans Arnars [annars gítarleikarans], sagði okkur frá Ásu sem hafði verið í bílskúrsbandi með henni. Hún var alveg fá- ránlega léleg fyrstu vikurnar en við höfðum mikla trú á henni og hún er líka með fáránlega góðar bassalínur á þessari plötu.“ En hvaðan í ósköpunum kemur eiginlega þessi titill, Karkari? „Við vildum eitthvað hlutlaust nafn sem fólk myndi ekki tengja við neitt nema plötuna sjálfa. En karkari var orð sem við fundum og þýð- ir olíuherskip, þegar það er á fullri ferð – þetta er svona bamm!, kraftmikið nafn,“ segir Katrína sem segir sveitina lítt meðvitaða um hvaða stefnu hún sé að taka. „Við höfum aldrei ákveðið hvert við ætluðum að fara með þessari plötu. Hún var í þró- un fram að síðasta tökudegi. Það eina sem við ákváðum var að vera algjörlega fordómalaus inni í hljóðveri og gera nákvæmlega það sem okkur langaði að gera við lögin.“ Þótt elstu meðlimir Mammút séu nýorðnir tví- tugir þá er sveitin sjálf orðin ágætlega öldruð og hefur verið starfandi í um fimm ár. „En manni finnst maður alltaf vera nýbyrjaður, kannski bara af því það er svo skemmtilegt. Það er engin hætta á að þessi mammútur sé að fara að deyja út,“ segir Katrína að lokum, nýbyrjuð. Morgunblaðið/G.Rúnar Mammútur og Mammút Alexandra Baldursdóttir gítarleikari heldur á mammútnum og svo koma Katrína Mogensen söngkona, Arnar Pétursson gítarleik- ari og Vilborg Ása Dýradóttir bassaleikari. Trommuleikarinn Andri Bjartur Jakobsson var ekki á landinu þegar myndin var tekin. Olíuherskip Mammúts Mammút gefur út plötuna Karkari í dag og heldur útgáfutónleika í september Mammút heldur útgáfutónleika í Iðnó 5. septem- ber en áhugasamir geta heyrt tóndæmi á myspace.com/mammut

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.