Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 240. DAGUR ÁRSINS 2008  3 3 3 3  3 3 4 " #5' . + # 6        3  3 3 3  3 3 - 7%1 '    3 3 3  3 3 89::;<= '>?<:=@6'AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@'77<D@; @9<'77<D@; 'E@'77<D@; '2=''@ F<;@7= G;A;@'7>G?@ '8< ?2<; 6?@6='2+'=>;:; KVENNALIÐ Vals er svo að segja komið með aðra höndina á Íslandsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu eftir stórsigur á Breiðabliki, 9:3, á heimavelli. KR á fræðilega möguleika á að hrifsa titilinn af Val í síðustu tveimur umferð- unum en sá möguleiki er ævintýralega fjar- lægur. Fjölnir féll úr deildinni þegar liðið tapaði fyrir Keflavík. Fylkir tryggði áframhaldandi veru með 3:0-sigri á Stjörnunni. | Íþróttir Þriðji meistaratitill kvennaliðs Vals í röð er innan seilingar Stórsigur á Blikum og Fjölnir fallinn Morgunblaðið/hag „BÖRN hafa gaman af því sem er bannað börn- um, einhverju sem er ögrandi og spennandi,“ segir Guð- mundur Ingi Þorvaldsson um barnaplötuna Sagan af Eyfa – sem er sögð bönnuð börnum. Hún er eins og leikrit og á henni syngja margir ástsælir söngvarar. „Ég vona að það hafi tekist að hafa tvöfaldan boðskap, börnin skilja það sem þau eiga að skilja – og foreldar hitt,“ segir Guðmundur. | 43 Bönnuð plata fyrir börn Guðmundur Ingi Þorvaldsson ÞOTA Icelandair sem flytur ís- lensku handboltahetjurnar til landsins í dag kemur með þá beint í bæinn og lendir á Reykjavík- urflugvelli um kl. 16:30. Í kjölfarið hefst mikil handboltahátíð í mið- bænum sem nær hámarki á Arn- arhóli kl. 18:30 og er búist við mikl- um mannfjölda í miðborginni. | 4 Handboltaþota beint í bæinn Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÍSLENSKU landsliðsmennirnir í handknattleik verða sæmdir ridd- arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu þegar þeir snúa heim úr hinni miklu frægðarför til Kína. Þorbergur Halldórsson gull- smiður annast smíði fálkaorðunnar fyrir forsetaembættið. Halda mætti að hann sæti við orðusmíði dag og nótt enda sjaldgæft að svo margar orður séu nældar á menn á einu bretti. En svo reynist ekki vera. Nægilega margar orður eru til á lager til að næla í barminn á strák- unum okkar. Að sögn Þorbergs eru gerðar áætlanir fyrirfram fyrir hvert ár. Orður eru að jafnaði veittar tvisvar á ári, á nýársdag og 17. júní. Eru þær að jafnaði á bilinu 10 til 15 talsins í hvort skipti. Einstaka orð- ur eru veittar þess á milli og auk þess eru veittar orður þegar forseti Íslands fer í opinberar heimsóknir. Á yfirliti sem birt er á heimasíðu forsetaembættisins má sjá, að flest- ar orður veitti forsetinn í opinberri heimsókn til Danmerkur í nóv- ember 1996, 54 talsins. Þorbergur hefur séð um orðusmíðina í fjöl- mörg ár. Hann tók við af Óskari Kjartanssyni gullsmið þegar Óskar féll frá. Að sögn Þorbergs er orðusmíðin vandaverk sem fáir gullsmiðir hafa sérhæft sig í. Orðurnar þarf að emaléra báðum megin og eins þykir litasamsetningin erfið, háhvítt og dökkblátt. Þorbergur segir að gull- smiðir séu sammála um að íslenska fálkaorðan sé með fallegri orðum í heimi. Orður til á lager Til eru nægilega margar orður til að næla í íslensku lands- liðsmennina sem koma heim af Ólympíuleikunum í dag Morgunblaðið/Valdís Thor Í barminn Þorbergur Halldórsson gullsmiður annast smíði fálkaorðunnar. »MEST LESIÐ Á mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Skoða barnaverndarlög  Nú stendur yfir endurskoðun á barnaverndarlögum í félagsmála- ráðuneytinu. Segir félagsmálaráð- herra brýnt að athuga umfang og eðli tilkynninga til barnaverndarnefnda en þeim hefur fjölgað umtalsvert á síðustu árum. » 12 Uppsagnir hjá Icelandair  Icelandair sagði nýverið upp átta flugmönnum til viðbótar við þá 80 sem búið var að segja upp á árinu. Alls hefur félagið sagt upp 300 starfs- mönnum undanfarna mánuði. » 2 Norður-Víkingur að byrja  Varnaræfingin Norður-Víkingur 2008 fer fram hér á landi í næstu viku og verður lögð áhersla á loftvarnir og flutning liðsafla til og frá landinu á ófriðartímum. » 4 Ljósmæður fresta fundi  Ljósmæðrafélag Íslands og samninganefnd ríkisins frestuðu í gær samningafundum sínum fram á sunnudag en verkfall ljós- mæðra er enn yfirvofandi hinn 4. september. » 2 Spáir þíðu vegna Georgíu  Frosthörkurnar í samskiptum Rússa og vesturveldanna vegna átak- anna í Georgíu munu ganga yfir á næstu mánuðum og samvinnan senn fara í fyrra horf að sögn sendiherra Rússlands á Íslandi. » 16 SKOÐANIR» Staksteinar: Ógeðfelldir flutningar Forystugreinar: Hitnar á norður- slóðum | Dýrkeypt reynsla Ljósvaki: Fréttastofa með farsótt UMRÆÐAN» Kársnesbrautina í stokk Lungun okkar og súrefnið Áunninn misskilningur um afnám … Niður með verðbólguna … Heitast 16°C | Kaldast 8°C  S 3-8 m/s, skýjað með köflum og stöku skúrir S og SV til. Rigning með köflum norðvestan til. » 10 Kolbrún Bergþórs- dóttir segir saka- málahöfundinn Rendell fagmann sem ekki bregst í nýjustu bókinni. » 38 BÆKUR» Ruth Rend- ell á flugi KVIKMYNDIR» An American Carol: áróður eða ádeila? » 41 Sveit Hauks Grön- dal vottar Lester Young virðingu sína á Jazzhátíð Reykja- víkur, með syngj- andi sveiflu. » 37 TÓNLIST» Í tryllings- legri sveiflu TÓNLIST» Nýr konungur lúftgítars- ins krýndur. » 39 TÓNLIST» Heitið á plötu Mammúts vísar til olíuskips. » 34 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. „Eiginlega bara enn í sjokki“ 2. Grátið af gleði 3. Ásdís Rán tjáir … ást sína 4. HSÍ fær 50 milljónir  Íslenska krónan styrktist um 0,06%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.