Morgunblaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 28
28 Stjórnmál MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008 Um fylgi flokkanna – sögulegt samhengi – ríkisstjórnarmyndanir: Ef niðurstöður þessarar könn- unar gengju eftir í alþingiskosn- ingum væri um að ræða mestu vinstri sveiflu á Íslandi síðan 1978 – og reyndar gott betur. Sam- kvæmt könnuninni bæta Vinstri græn 12,6 prósentum við fylgi sitt frá kosningunum 2007 og Samfylk- ingin 10,1 prósenti. Samanlagt bæta þessir tveir vinstri flokkar þannig tæpum 23 prósentum við fylgi sitt, en 1978 bættu Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag við sig tæpum 18 prósentum samtals. Nú gætu Samfylking og Vinstri græn myndað meirihlutastjórn, en það gátu Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag ekki 1978. Undanfarna áratugi hafa Sjálfstæð- isflokkur og Framsókn- arflokkur oftast fengið um það bil tvo þriðju at- kvæðanna, en vinstri flokk- arnir, Alþýðubandalag og Alþýðu- flokkur, um það bil einn þriðja. Í þessari könnun hefur þetta gam- alkunna mynstur snúist við. Sjálf- stæðisflokkur og Framsókn hafa stuðning innan við þriðjungs svar- endanna, en Samfylkingu og Vinstri græn styðja tveir af hverj- um þremur svarendum. Samkvæmt könnuninni tapar Sjálfstæðisflokkur 10 þingsætum og yrði þriðji stærsti flokkurinn, en hann hefur verið fylgismestur ís- lenskra flokka í öllum þingkosn- ingum frá stofnun flokksins 1929. Minnsta fylgi Sjálfstæðisflokksins hingað til var í kosningunum 1987, þegar hann fékk 27,2% atkvæða – þá tapaði flokkurinn 11,5 prósent- um og fimm þingmönnum. Eigi að síður var hann stærstur flokka 1987. Þá hafði Borgaraflokkurinn klofnað úr Sjálfstæðisflokki og fékk tæp 11 prósent atkvæða. Fylgistap Sjálfstæðisflokks í könnuninni núna nemur rúmum 14 prósentum miðað við síðustu alþingiskosningar. Vinstri græn tvöfalda þing- mannatölu sína og fá 18 þingmenn, en þingmönnum Samfylkingar fjölgar um sjö. Í hinum miklu sveiflukosningum 1978 bætti Al- þýðuflokkur við sig níu þingsætum og Alþýðubandalag þremur, en Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur töpuðu fimm mönnum hvor. Þá voru þingmenn alls 60, en hafa verið 63 frá 1987. Miðað við könnunina væri unnt að mynda þrenns konar tveggja flokka meirihlutastjórnir. Samfylk- ing gæti myndað stjórn með rífleg- an meirihluta hvort heldur væri með Sjálfstæðisflokki eða Vinstri grænum. Stjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hefði 33 þing- sæti á bak við sig, einu sæti meira en nauðsynlegt er til þess að hafa meirihluta á Alþingi. Frjálslyndi flokkurinn fær engan þingmann í þessari könnun, þar sem landsfylgi hans mælist undir 5 prósentum og hann fengi engan kjördæmakosinn þingmann. Flokk- inn vantar hins vegar einungis 0,6% til þess að ná 5% þröskuld- inum – og þá fengi hann 3-4 þing- menn á kostnað hinna flokkanna. Fengju Frjálslyndir þingmenn er þannig ekki víst hvort unnt væri að mynda meirihlutastjórn Sjálfstæð- isflokks og Vinstri grænna. Oft eru sveiflur í könnunum meiri en reyndin verður svo í kosn- ingum. En Sjálfstæðisflokkurinn hefur sjaldan eða aldrei mælst með jafn lítið fylgi og nú. Í tíð Viðeyj- arstjórnarinnar svokölluðu 1991- 1995 fór flokkurinn niður undir 20% í skoðanakönnunum og mæld- ist minni en Framsóknarflokkur. Í kosningunum 1995 fékk flokkurinn hins vegar ríflega 37% atkvæða. Um fylgissveiflurnar milli flokkanna: Á myndunum má sjá fylgis- straumana til og frá Sjálfstæð- isflokki, Samfylkingu og Vinstri grænum miðað við könnunina. Myndirnar sýna einungis þá svar- endur sem sögðu bæði hvað þeir kusu 2007 og hvað þeir ætla að kjósa núna. Í þessum hópi streymir fylgi frá Sjálfstæðisflokki, mest til Samfylkingar, en líka til Vinstri grænna. Sjálfstæðisflokkur tapar í heildina, af því að hann fær fáa kjósendur í staðinn fyrir þá sem hann tapar. Samfylkingin bætir hins vegar verulega við sig þó að hún tapi mörgum kjósendum til Vinstri grænna, einkum vegna þess að margir þeirra sem kusu Sjálf- stæðisflokk 2007 segjast nú styðja Samfylkingu. Af svarendum sem sögðust hafa kosið Sjálfstæðisflokk 2007 ætla innan við 70% að kjósa hann núna. Um 16% ætla að kjósa Samfylk- Mesta vinstri sveifla Morgunblaðið birti um síðustu helgi niðurstöður skoðanakönnunar, sem Elías Héðinsson, rann- sóknarstjóri Árvakurs, vann úr könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir blaðið í lok október. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, rýndi í niðurstöðurnar og rit- aði eftirfarandi greiningu. Könnun Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið um fylgi flokkanna í lok október 2008                            !  Ólafur Þ. Harðarson Fimmtudaginn 13. nóvember nk. stendur Einkaleyfa- stofan fyrir námskei›i um alfljó›legt umsóknarferli fyrir einkaleyfi, PCT-kerfi›. Fari› ver›ur yfir meginflætti kerfisins auk ítarlegrar umfjöllunar um formskilyr›i umsókna. Fyrirlesari ver›ur Yolande Coeckelbergs frá Alfljó›ahugverkastofnuninni í Genf, WIPO. Námskei›i›, sem er öllum opi›, ver›ur haldi› í húsnæ›i Einkaleyfastofunnar, Engjateigi 3, Reykjavík. Fimmtudaginn 13. nóvember, kl. 8.30–16.30. fiátttökugjald er 10.000 kr. Námskei›sgögn og hádegisver›ur eru innifalin í flátttökugjaldi. fiátttakendur eru be›nir um a› skrá sig á heimasí›u Einkaleyfastofunnar, www.els.is fyrir 10. nóvember. Námskei›i› fer fram á ensku. Námskei› um alfljó›legt umsóknarferli einkaleyfa Námskei› um PCT kerfi› Myglusveppir í húsum - Astmi og ofnæmi Astma- og ofnæmisfélagið efnir til fundar þriðjudaginn 11. nóvember nk. í Gerðubergi kl. 20.00. Á fundinum verður fjallað um myglusveppi í húsum og áhrif þeirra á heilsufar íbúanna, einkum þó á astma og ofnæmi. Erindi halda: Dr. Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur, „Orsök myglusveppa í húsum“ Dr. María Ingibjörg Gunnbjörnsdóttir, lungnalæknir, „Valda myglusveppir í húsum astma og ofnæmi?“ Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur „Myglusveppir - hvað, hvar, af hverju og hvernig skal bregðast við“ Kaffiveitingar í boði félagsins. Frummælendur svara spurningum fundargesta. Fundurinn er öllum opinn. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.ao.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.