Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1930, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.04.1930, Blaðsíða 14
SKINFAXI 110 ing, sem elskar fö'ðurland sitt og móðurmál, að sjá, hverri meðferð menn vilja beita færeyskt mál. Þá hnaut eg og um það i greinargerðinni, að sjá færeysku nefnda mállýzku, og tók eg það þó eigi svo, að Cancelliið notaði orðið í þeirri merkingu, að færeyska sé í raun og veru mállýzka úr dönsku. En þar sem ókunnugir geta hæglega skilið þetta svo, datt mér í Iiug, að veita upplýsingar um málið, en huggaði mig þó við þá von, að þetta yrði leiðrétt í þingsalnum. En það kom í ljós i umræðunum, að énginn þekkti þar neitt til tungu vorrar; já, biskup Sjálands (en Færeyjar eru í biskupsdæmi hans og hann var framsögumaður málsins) birti svo mikla vanþekkingu á tungunni, að hann taldi jafna aðstöðu fær- eysku til dönsku, eins og lágþýzku til háþýzku.“ Nú skarst danskur maður í leikinn, visindamaðurinn Svend Grundtvig, sonur prestsins og skáldsins N. F. S. Grundt- vigs. 1845 gaf hann út bók: „Dansken paa Færöerne, Side- stykke til Tysken i Slesvig, betragtet af S. Frederiksen.“ í bók þessari sýndi hann fram á, hversu blóðugt óréttlæti það væri, að neyða upp á Færeyinga dönskum skólum, sem eng- inn þeirra hafði heðið um. Hann heldur jiví fram, að þeir, sem sátu á ráðgjafarþinginu í Hróarskeldu og kvörtuðu sáran undan framferði Þjóðverja i Slésvik, hefðu átt að gæta þess, að fremja ekki sömu harðneskju í F’æreyjum og þá, er þeim gramdist hjá öðrum. Hann byrjar bók sína á þessari spurn- ingu: „Fijlgir alvara þjóðernistilftnningum Dana, eða ekki?“ Hann hníflar suma þingmenn drjúgum fyrir fávísi þeirra, og einna meinlegast Mynster. Sá háæruverðugi maður talar hvað eftir annað um færeyska tungu eins og mállýzku af dönsku, og Svend Grundtvig hendir honum því á, að hann ruglar málum svo hrapallega, að hann sem Sjálandsbiskup hefir ekki leyfi til slíks. Þvi að það er engu skynsamlegra, að nefna færeysku mállýzku af dönsku, en að telja engilsaxnesku mállýzku af nýensku eða latinu af nútiðar ítölsku. Ilann telur það Dönum hina mestu smán, að gera sig seka um, að kúga og kæfa færeyskt mál: „Meðal til þess, að fá íbúana til þess, að gleyma smárn saman máli sinu og þrengja inn á þá aðfengnu máli; meðal, sem ætíð lilýtur að reynast eins og það hefir reynst í Slésvík: liið róttækasta og auðveldasta til þess að koma af stað þess háttar umróti; það er: skólastofnanir, sem erlendir menn koma upp og stýra — þetta eigum vér að sjá notað nú á dög- um í Færeyjum.“ Enginn maður hefir nokkru sinni séð ástæður tungunnar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.