Skinfaxi - 01.04.1930, Blaðsíða 17
SKINFAXI
113
hann kvœðið: „Ilvat kann röra hjartastreingir?“, sem hvert
mannsbarn í Færeyjum þekkir og flestir kunna utanað. Það
er efalaust, að hann hefir haft til fyrirmyndar „Ileyrið vella
á heiðum hveri“ eftir Grím Thomsen, eins og hitt er eklcert
vafamál, að Grímur hefir ort sitt ljóð eftir finnska kvæðinu:
„Ilör, hur liarligt sángen skaller“ eftir Emil von Qvanten.
F'r. Petersen orti og fleiri kvæði, sem mikið eru sungin, t. d.:
„Eg oyggjar veit“, „0 móðurmál, stórt er tít fall“, „Hvörjum
man tykja vakurt hjá sær“, svo að nokkur séu nefnd. Þcgar
hann var orðinn stúdent og kominn í háskólann í Kaup-
mannahöfn, hitti hann þar marga góða Færeyinga með rík-
um þjóðernistilfinningum. Færeyingafélag var stofnað í Kaup-
mannahöfn. Þar voru gáfaðir menn, sem vel kunnu að yrkja,
og ljóð þeirra bárust auðvitað til Færeyja og hljómuðu þar
brátt í flestum byggðum.
Það á sér rætur í íhaldslund Fr. Petersens, að hann ótt-
aðist síðar hreyfingu þá, er hann hafði sjálfur tekið þátt í,
að vekja til lífs. Hann liafði aldrei treyst á lýðstjórn. Þetta var
þó ekki því til fyrirstöðu, að föst sætu í honum þau íslenzku
fræði, sem hann liafði drukkið í sig á æskualdri. Bezt sönn-
un þess er sú, að þegar gallið var skorið úr honum á efri
árum, í slæmum sjúkdómi, gat hann kastað fram þessari stöku,
sem mun að vísu naumast vera lýtalaus, eftir islenzkum brag-
reglum:
„Gallið tað er farið
eg falli tó ei i fátt;
hjartað tað er eftir
og hcilin á sama hátt.“*)
Fleiri og fleiri gerðust lirifnir af þessari nýju, fjörþrungnu
hreyfingu, en þeim var það ljóst, að hér þurfti mcira til;
hér var fyrir höndum mikið verk og erfitt. Það var ckkert
áhlaupsverk, að rétta tunguna við, liefja hana til vegs og leiða
liana i kirkju, skóia og þingsal — alla þá staði, er hún hafði
verið útilokuð frá í hálfa fjórðu öld. Svo hátt var markið
selt, og það var ekki unnt að setja það lægra.
Nú var stofnað félag, til þess að vinna að þessu marki og
eiga hægra um framsókn. Á þrettánda 1889 var fundur mik-
ill haldinn í Þórshöfn og þar stofnað Færeyingafélag. Félag
þetta vann verk sitt vel og virðulega í mörg ár. Þegar á næsta
*) Edw. Mitens málfærslumaður lét mig góðfúslega fá
stökuna.