Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 18
L Y F O G í Þ R Ó T T I R einnig orðið mikilvægur þáttur í al- þjóðapólitík. Á heimsmeistaramóti í lyftingum 1954 kom í Ijós, að Sovét- menn fóðruðu lyftingahetjur sínar á karlhormónum til þess að þær næðu betri árangri. Raunar hafði lyfjamisnotk- un í íþróttum þá þegar verið þekkt ára- tugum saman og verið fordæmd vegna skaðlegra áhrifa og jafnvel dauðsfalla, sem af henni höfðu hlotist. Þrátt fyrir þetta breiddist karlhormónasvindlið út meðal íþróttamanna eins og eldur í sinu. Eftir að notkun þeirra var bönnuð hjá í- þróttahreyfingum flestra þjóða, hafa framleiðendur og seljendur karlhormóna verið í æsilegu kapphlaupi við þá, sem reynt hafa að spoma við þessari mis- notkun með eftirliti og lyfjaprófum, og venjulega verið nokkrum skrefum fram- ar. Hinum fjölbreytilegustu aðferðum hefur verið beitt til þess að tryggja það, að þeir sem misnota lyfin standist lyfja- próf. Þótt læknum hafi gengið erfiðlega að sanna með raunvísindalegum aðferð- um, að gagn sé að karlhormónum við vöðvauppbyggingu fullorðinna karla, er sannfæring misnotendanna undantekn- ingarlítið sú, að steranotkun efli mjög styrk og vöðvamagn. Trúlega byggist hluti af mestu íþróttaafrekum vorra daga á þessu svindli. íþróttahreyfingum allra landa er því mikið hagsmunamál, að slíkt verði ekki sannað, enda erfitt um vik eftir á. Á tímum hömluleysis, yfirborðs- mennsku og samkeppni er freistandi að stytta sér leið að markinu, ef von er til að það komist ekki upp. Virðist þá einu gilda, hvort viðkomandi er rekinn áfram vegna keppni eða ætli einungis að bæta útlitið til þess að styrkja sjálfstraust sitt. Samfara heilsuræktarbylgju síðari ára hafa hvers kyns líkams- og vaxtarrækt- arstöðvar sprottið upp sem bjóða þeim, er vilja ná skjótum og góðum árangri, þjónustu sína, . Þar sem steranotkun er almenn, eru lítt þroskaðir unglingar gjarnan beittir hópþrýstingi, sem erfitt er fyrir þá að standast. Þeir, sem á annað borð hafa efni á því, eiga auðvelt með að komast yfir karlhormón á svörtum markaði. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að 7 af hundraði karla í efstu bekkjum bandarískra framhaldsskóla og rúmlega 1 prósent kvenna í sömu árgöngum hafa notað karlhormón við þjálfun sína. Ný- leg athugun á sænskri vaxtarræktarstöð sýndi, að þrír af hverjum fjórum körl- um, sem æfðu fyrir keppni, notuðu stera en einn af hverjum fjórum, sem aðeins æfðu sér til hressingar og fegrunar. Ekk- ert bendir til, að Islendingar verð neinir eftirbátar annarra í þessum efnum, þegar fram líða stundir. Fjölmargt er líkt með lyfjamisnotkun í íþróttum og eiturlyfja- nautn. Dreifingu og sölu svipar saman. Svipaðar persónugerðir eiga á hættu að ánetjast misnotkun og hvorttveggja þrífst best í ómenningarafkimum lyfja- misnotkunar og þær láta ekki deigan síga, þótt hagsmunaaðilar reyni að kæfa umræðu um þessi mál og neita tilvist vandans. Leikur að eldi Og hver skyldi nú sú áhætta vera, sem efnilegur og metnaðargjam ung- lingur tekur, þegar hann leiðist út í steranotkun. Hætta á aukaverkunum er að sjálfsögðu undir því komin, hversu lengi steranna er neytt og hversu mikið. Unglingurinn mun að sönnu fljótlega taka eftir aukinni þjálfunarhörku og dugnaði við æfingar. Honum mun trú- lega vaxa sjálfstraust vegna framfara, sem áður létu á sér standa. Hugsanlega verður hann fyrir bragðið gjaldgengari í þeim hópi, sem hann kann best við sig í. En fjölskylda hans mun fljótlega taka eftir miður geðfelldum breytingum í fari hans. Blessaður unglingurinn fer að verða kjaftfor og óþolinmóður. Hann getur orðið uppstökkur og undir áhrifum áfengis kemur hann sér í vandræði vegna árásargimi sinnar og viðskota- illsku. Matarlystin verður gífurleg. Þjálfunin á hug hans allan og verður að áráttu. Kynhvötin eykst sennilega í fyrstu, en haldi hann steraneyslunni á- fram í samræmi við þær leiðbeiningar, sem eldri fyrirmyndir hafa gefið honum, fer að bera á ruddaskap í kynlífi og síðar dvínandi kyngetu. Af völdum steranna raskast hormónajafnvægi líkamans, svo verulega dregur úr karlhormónafram- leiðslu eistna, sem rýrna tímabundið og getur framleiðsla sæðisfmma nánast stöðvast. Graftarbólur taka að skreyta húðina og vegna saltsöfnunar tútna sum- ir út af bjúg og afmynduðum vöðvum, safna hnakkaspiki, þyngjast og verða þunglamalegir í hreyfingum. Auk þess fer að bera á brjóstastækkun hjá hinu unga karlmenni, sem ekki gengur til baka þótt notkun sé hætt. Það er grundvallarmunur á aukaverk- unum karlhormóna hjá fullvöxnum körl- um annars vegar og konum og ungling- um hins vegar. Hjá körlum ganga flestar aukaverkanir til baka þegar misnotkun er hætt. Svo er ekki um konur, sem verða að burðast með afmynduð kynfæri sín, grófa og hása rödd, skegghýjung og hárafar karla til æviloka. Þeir unglingar, sem hefja steraneyslu áður en þeir hafa tekið út vöxt sinn, ná aldrei þeirri hæð, sem þeir ella myndu gera, því karlhorm- ón í stórum skömmtum geta stöðvað Iengdarvöxt beina fyrir fullt og allt. Sú iðja er framúrskarandi ógeðfelld að hvetja eða neyða unglinga og konur til þessarar misnotkunar. Meira um andleg áhrif Meðan á misnotkun stendur verða dómgreindarleysi, stóraukin einurð, óbil- gimi og árásargimi áberandi þættir í fari margra. Hugsanlega má slíkt gagnast í þjálfun og keppni en getur líka leitt til alvarlegra árekstra við annað fólk, eink- um maka, vini og vandamenn. Ýmsum öðmm taugaveiklunareinkennum hefur verið lýst, s.s. kvíða, svefnleysi, martröðum og jafnvel ofvirkni. Alvar- legri sjúkdómseinkenni gera einnig vart við sig. Má þar nefna ofsóknarbrjálæði og ofskynjanir. Þunglyndis verður eink- um vart, ef menn hætta mikilli neyslu snögglega. Dæmi em um mikilmennsku- bijálæði og að menn missi jafnvel alveg raunveruleikaskynið. Slíkt felur í sér vemlega slysahættu, einkum hjá öku- mönnum. Mörgum reynist erfitt að snúa Skinfaxi 18

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.