Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 26
Greipur Gíslason heitir ungur dugmikill ísfirðingur. Hann stundar nám við Menntaskólann á ísafirði á veturna en er hrókur alls fagnaðar yfir sumartímann. Hann er stofnandi og rekstrarstjóri Morrans, leikhóps á ísafirði. Hann er skátaforingi og þá vinnur hann fyrir Svæðisútvarpið í fyrrgreindu bæjarfélagi auk þess sem hann starfar sem fastapenni fyrir unglingablaðið Smell. Greipur lætur þó ekki þar við sitja og á dögunum tók hann að sér að vera einn af forsvarsmönnum ungmennaráðstefnu sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur 12. október og ber yfirskriftina „Jeg tarf ekki sjuss”. Ráðstefnan er á vegum Ungmennafélags íslands og áætlunarinnar ísland án eiturlyfja. Við fengum Greip til að segja okkur frá sjálfum sér og ungmennaráðstefnunni. - Morrinn - hvaö er þaö? „Morrinn er leikhópur frá ísafirði sem ég og félagar mínir stofnuðu fyrir tveimur árum. Leikhúsið Morrinn er fyrir krakka á aldrinum 12Ð16 ára og er rekið af bænum. Við erum með 15 leikara í sumar og einn faglærðan leikstjóra sem stýrir hópnum. Morrinn er hugsaður sem bæjarleikhús og við tökum meðal annars á móti skemmtiferðaskipum sem koma til Isafjarðar og framreiðum þjóðlega dagskrá fyrir gesti og svo heimsækjum við leikskóla bæjarins svo eitthvað sé nefnt. Við sýnum þó ekki eingöngu á Isafirði heldur víðar um landið. Þetta hefur gengið mjög vel og okkur hefur alls staðar verið vel tekið." - Svo ertu eitthvaö aö vinna í útvarpi? „Já, ég hef verið að vinna á Ríkisútvarpinu á Isafirði, núna aðallega í auglýsingum, ég les þær og vinn. Svo hef ég verið að reyna fyrir mér með innskot í dægurmálaútvarp Rásar 2. Eg hef líka leyst fréttamenn af." - Hefur þú mikinn áhuga á aö starfa viö fjölmiöla? „Já, ég hef það en það hefur komið ósjálfrátt. Ég hef starfað í útvarpinu og síðan hef ég skrifað í unglingablaðið Smell. Svo hef ég verið að reyna fyrir mér sem lausapenni." - ísafjöröur er ekki stórt bæjarfélag og því getur maöur ímyndaö sér aö þaö sé ekki margt fréttnæmt aö gerast á hverjum degi. Gætu kannski týpískar fréttir í gúrkutíöinni verið eitthvað á þessa leiö: Rollan Svarthvít bar þremur lömbum í gærkvöldi og heilsast lömbunum og Svarthvíti vel en illa fór fyrir fööur þeirra Hrúti en hann missteig sig í fagnaðarlátunum og fótbrotnaöi? „Nei, ekki get ég sagt það. En aftur á móti hafa dottið inn furðulegar fréttir hjá okkur í gúrkunni. En það er yfirleitt af nógu að taka þar sem við erum útvarp allra Vestfjarða." - Hvernig er aö búa á ísafiröi? „Mér finnst það mjög gott. I sveitarfélaginu búa 4.500 manns og það er mikið meira en nóg að gerast hérna ef þú vilt hafa nóg fyrir stafni. Hérna á Isafirði fer enginn tími í það að gera ekki neitt eins og á höfuðborgarsvæðinu. Því hér eru vegalengdirnar svo stuttar og þú þarft t.d. ekki að sitja í strætó í hálftíma til að komast þangað sem þú ert að fara. Því nýtist tíminn hérna mjög vel. Nú ef fólki leiðist þá eru þrjár ferðir á dag með flugi til Reykjavíkur þannig að auðvelt er að skreppa í bæinn." jeg tarf ekki sjuss - Þú starfar fyrir skátana á ísafirði og ert þar skátaforingi. Fyrst viö erum aö fara aö ræöa um ungmennaráöstefnuna og forvarnir þá leikur mér forvitni á aö vita hvort í reglugerð skátanna sé eitthvaö um áfengisdrykkju? „Ja, það eru óskrifaðar reglur að í skátunum eigi ekki að vera vín. Skátar mega því ekki drekka í skátastarfinu en ef ég ætlaði að byrja á því að drekka þá yrði mér ekki vísað úr skátafélaginu." - En snúum okkur aftur aö ráöstefnunni sem Ungmennafélagiö og áætlunin ísland án eiturlyfja

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.