Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 35
BLÁTT ÁFRAM íslandsbanki Sjóvá-Almennar, samstarfsaðili UMFÍ að forvarnaverkefninu Blátt áfram. Verkefnisstjórn Blátt áfram, fulltrúar íslandsbanka Sjóvá-Almennra ásamt Sæmundi Runólfssyni, framkvæmdastjóra UMFÍ. Ungmennafélag íslands hefur hafið undirbúning að nýju verkefni sem nefnist Blátt áfram. Um er að ræða forvarnaverkefni þar sem baráttunni gegn kynferðismisnoktun barna og unglinga verður lögð lið. Skipuð hefur verið verkefnisstjórn Blátt áfram og er Helga Guðjónsdóttir varaformaður UMFÍ, formaður verkefnisstjórnar. Svava Björns- dóttir hefur verið ráðin verkefnis- stjóri Blátt áfram. „Við teljum að með því að setja ábyrgðina í þessu viðkvæma máli í hendur fullorðina þ.e. þeim sem umgangast börn, mömmur, pabba, afa, ömmur, frændur, frænkur, bræður og systur, sem sagt við öll, getum við verndað þau sem minna mega sín og boðið þeim upp á bjartari framtíð! Við þurfum að fræða börnin eins okkur hefur verið kennt, en það þarf að gera meira. Veist þú hver merkin eru? Hefur þú hugsað um hvað þú gerir ef þig grunar að verið sé að brjóta á barni? Hvert þú átt að leita?," segir Svava. Verkefnið Blátt áfram hefur það að markmiði að fræða almenning og veita jákvæðar upplýsingar út í þjóðfélagið um þetta viðkvæma málefni. Svava segir að tölur um kynferðislega misnotkun séu sláandi. „Ein af hverjum fimm stelpum og einn af hverjum tíu strákum eru misnotuð kynferðislega fyrir 10 ára aldur! Sem þýðir að ein af vinkonum dóttur þinnar og einn af vinum sonar þíns er kynferðislega misnotaður. Veist þú hver það er? fræðast um staðreyndirnar. Lærum hvernig við getum talað um þetta við börnin okkar til að fyrirbyggja að þetta gerist. Umræðan um þetta viðkvæma málefni þarf að vera meira í dagsljósinu," segir Svava. Verkefnið Blátt áfram hefur nú þegar leitað til nokkurra samstarfsaðila og í hvívetna fengið góðar mótttökur. íslandsbanki Sjóva Almennar verður bakhjarl þessa verkefnis en auk þess hafa ýmis félagasamtök lagt UMFÍ lið í þesssari baráttu og taka þátt í verkefninu. „Rauði krossinn með 1717 hjálparlínuna og lögreglan með neyðarlínuna 112 eru með í þessu verkefni. Við höfum nú opnað heimasíðu verkefnisins sem er www.blattafram.is . A heimasíðunni eru fræðsla og upplýsingar fyrir foreldra um hvernig þau geta rætt þetta við börnin sín og hvert þau geta leitað ef þau þurfa hjálp. Þá er unnið er að því að gefa út bækling sem dreift verður í öll hús í landinu," segir Svava. „Þín þekking á málinu getur hjálpað barni að leita sér hjálpar og það skiptir miklu að vita hvert á að leita. Með jákvæðu viðhorfi og jákvæðari umræðu um þetta mál gerum við þoiendum kynferðislegs ofbeldis auðveldara að leita sér hjálpar. Ef þú hefur lent í kynferðis- legu ofbeldi, rjúfðu þögnina! Það er erfitt, en samt betra en að eyða lífinu með skömminni sem situr eftir og nagar þig að innan. Ekki bara þín vegna heldur líka vegna allra hinna sem eru í kringum þig. Þeirra sem ekki gátu staðið upp og mótmælt þessu ofbeldi ein, en með því að sjá alla hina sem eru að leita sér hjálpar, geta þau ákveðið að taka þetta stóra skref til bjartari framtíðar!" segir Svava Björnsdóttir verkefnisstjóri Blátt áfram. BI^ITÁFRAM! Tökum á þessu máli með því að 35 SKINFAXI - tímarit um menningu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.