Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1975, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1975, Blaðsíða 5
Gunnar Bergsteinsson, forstöðumaður Sjómælinga ís- lands. ar. í þau vantar auðvitað ýmsar upplýsingar, sem nauðsynlegar eru í slíkum kortum. Þarna var beitt stjarnfræðilegum aðferðum til þess að fá breidd og lengd á stöðunum. Elstu kort í notkun frá 1820. Þessu starfi er síðan haldið áfram. Það voru gerðar strand- mælingar hér í byrjun 19. aldar, eða 1820 og það sem út úr því kom voru sjókort, þar sem ströndin var nokkurnveginn rétt. Við notum enn þann dag í dag hluta þeirrar strandlínu er í þessum kortum var teiknuð. Síð- an er bætt í þetta nýjum dýptar- mælingum sem gerðar voru á 19. og 20. öld, svo og ýmsum leiðrétt- ingum, eftir þvi sem tilefni var til. Um aldamótin síðustu komu ný sjónarmið fram. Þá byrja dönsku varðskipin að taka togara að ólöglegum veiðum. Þá voru kort- in ekki nógu fullkomin og ná- kvæm. Þá var gripið til þess að þríhyrningamæla landið allt og jafnframt voni gerðar miklar dýptarmælingar umhverfis land- ið frá því um aldamótin síðustu og frameftir fyrsta áratugnum. Þetta eru þau sjókort, sem við VÍKINGUK búum við í dag, svona í aðalatrið- um. íslendingar hefja sjómælingar 1930. — Hvenær veröa svo íslensku sjómælingarnar til? — Það er í kringum 1930. Friðrik Ólafsson, skipherra og síðar skólastjóri Stýrimannaskól- ans í Reykjavík var þá beðinn að fara utan og kynna sér sjómæl- ingar hjá dönsku sjómælinga- stofnuninni. Friðrik dvaldist ytra tvo eða þrjá vetur, en var hér að störf- um við sjómælingar ásamt dönsk- um mælingamönnum á sumrin. Eftir það, heldur Friðrik áfram sjómælingum á sumrin, mismikið þó, en það fór eftir fjárveiting- um til þessarar starfsemi hverju sinni. Það sem helst rak á eftir, var að íslendingar voru háðari ferðalögum og flutningum á sjó, en nú er. Það þurfti t. d. að mæla upp siglingaleiðir um Breiða- fjörð og Húnaflóa, svo eitthvað sé nefnt. Voru veittar sérstakar fjárveitingar í þessu skyni og þá oftast fyrir frumkvæði þing- manna í viðkomandi kjördæmum. Nú er slíkt að mestu úr sögunni og þingmenn hugsa meira um flugvelli og vegi, ásamt hafnar- gerðum. Byrjuðu sjókorta- teikningu 1954. — Hvenær .taka .íslendingar svo alveg viö kortageröinni af hafsvæöunum hér? — Það tók eðlilega nokkurn tíma að setja Sjómælingar á lagg- imar hér. Það var ekki fyrr en 1954, sem byrjað var að teikna kortin hér heima og árið 1960 tókum við alveg við prentun og útgáfu sjókorta, sem áður höfðu verið gerð af dönsku sjómælinga- stofnuninni. — Hvað vinna margir hjá stofnuninni? — Það eru 10—12 manns sem vinna við þetta, fleiri á sumrin, færri á veturna. Þetta fólk er við mælingar, kortateiknun, útgáfu og dreifingu. — Náin samvinna er við Vita- og hafnarmálastofnunina. Þetta eru um margt skyld verkefni sem þessar stofnanir vinna að, sumsé öryggi á hafinu. Þarna koma til vita og hafnir. Við vinnum þann- ig talsvert að mælingum í höfnum fyrir Hafnarmálastofnunina, svo dæmi séu nefnd. Ennfremur er samstarf við Landhelgisgæzluna. Við höfum fengið aðstöðu til mæl- inga um borð í varðskipum en va SSWt/Uutf’&t óezt 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.