Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1940, Blaðsíða 9

Samvinnan - 01.02.1940, Blaðsíða 9
2. HEFTI SAMVINNAN geymd eða notuð í ávaxtamauk og saft. Ræktun broddberja hefur gengið frekar illa á íslandi, að því er sagt er, en það er lítill vafi á því, að ef réttir stofnar eru ræktaðir rétti- lega hér, hlýtur ræktun broddberja að takast vel, því að þau þrífast prýðilega í nyrztu og rökustu hér- uðum nágrannalanda vorra. Hettuber og brumber. Hettuber (Hindbær, hallon, Ru- bus idæus o. fl.) og brumber (Brom- bær, björnbár, Rubus fruticosus o. fl.) eru til villt víða um lönd. Þau heyra til rósaættar grasafræðinnar og eru oftast skriðulir runnar, al- settir hvössum göddum, og ná- skyldir íslenzka hrútaberinu. Blöð- in eru fingruð og tennt, og litur hettuberjanna rauður og brum- berjanna svartur. Og í raun og veru eru þau engin ber, grasafræði- lega séð, heldur samaldin margra lítilla steinaldina, sem fest eru á keilulaga blómbotn. Ræktun hettuberja og brum- berja er ung, og tæplega eldri en frá miðbiki 18. aldarinnar, þótt auðvitað hafi menn löngu áður reynt að flytja heim til sín villta runna viða í Evrópu. Og þeim er mest fjölgað með rótarbitum, rót- arsprotum eða afkvistum úrvals stofna, því að þótt ræktun þeirra sé ung, eru tegundir þeirra og stofnar margir og misgóðir. Hettuber og brumber þrífast bezt á bersvæði, þar sem sól og loft geta leikið um plönturnar. Þó er bezt að skýla þeim gegn sterkum vind- um, sérstaklega ef þau eru rækt- uð í stormasömum héruðum, því að annars er hætta á, að runnarnir brotni eða kali í toppinn. Nætur- frost eru frekar til skaða á vorin, og kaldir, snjólausir vetur geta skemmt runnana mjög. Hinir ýmsu stofnar þurfa flestir ólíkan jarðveg, en yfirleitt þarf jörðin að vera súr. Bezt er, að jarðvegurinn sé myldinn og rakur og laus við allt fjölært illgresi, því að slíkt getur valdið miklu um magn uppsker- unnar. Hettuberin eru rauð eða gul að lit, en brumberin svört. Ræktuðu stofnarnir bera flestir stór ber og safarík. Þau eru ýmist etin hrá og ný eða soðin nið- ur, fryst, notuð í Brumber ávaxtamauk, saft, aldindrykki o. fl. Hettuberjarækt hefur verið reynd lítið eitt á íslandi síðan um síðustu aldamót, og sagt er, að þau geti borið 'fullþroskuð ber, þar sem skil- yrði eru góð. Og þar eð skilyrði eru vafalaust góð til ræktunar á ýmsum stofnum af bæði hettuberjum og brumberjum víðsvegar um landið, væri ekki úr vegi að hefja sem fyrst víðtækar tilraunir með rækt- un þeirra og útbreiðslu, því að hvor tveggja berin eru sannarlega verð þess. Jarðarber. Sú berjategund, sem aðallega er átt við, þegar rætt er um jarðarber, er í raun og veru árangur fjölda víxlfrjóvgana milli ýmissa tegunda jarðarberjaættkvíslarinnar, en til hennar heyrir aðeins ein íslenzk villijurt, villijarðarberið, Fragaria vesca. Hið svonefnda jarðarber er í rauninni ekkert ber, heldur eins- konar samaldin margra hnota, sem eru sokknar í kjötkenndan blómbotninn. Ræktuðu jarðarberin eru flest fengin fram við víxlfrjóvgun milli villtra tegunda frá Evrópu og Am- eríku. Og ræktun þeirra hófst raunverulega varla fyrr en við upphaf síðustu aldar, þótt áður hefðu ýmsir flutt heim til sín villtar jarðarberjaplöntur og rækt- að þær þar í smáum stíl. Bezt er að fjölga jarðarberjun- um með þeim smáplöntum, sem vaxa í renglum móðurplöntunnar, og auðvitað er ráðlegast að hafa móðurplöntuna af einhverri þekktri og góðri tegund, ef vel á að vera. Jarðarberjaplönturnar þrífast bezt í léttri, sandblandaðri mold, og helzt svo, að sýrustigið sé milli 5,7 og 6,0 pH. Og heppilegast er að rækta þær í röðum á skjólgóðu svæði, þar sem auðvelt er að reyta burt allt illgresi, jafnóðum og það stingur upp kollinum. Reynsla ým- issa landa sýnir, að yfirleitt þríf- ast jarðarberin því betur, sem þau eru ræktuð norðar, ef vetrarkuldar eru ekki úr hófi fram. Ræktun jarðarberja er yfirleitt einföld mjög, en þó yrði of langt mál að ræða hana nokkuð nánar hér nú. Jarðarberin, sem eru stór og mörg á hverri plöntu, eru í ná- gtrannalöndum vorum fullþroská í júnílok og júlíbyrjun, fyrst allra berja. Og mest eru þau etin ný, en auk þess eru þau soðin niður og gert úr þeim ávaxtamauk og fleira, sem síðan er notað til bús- haldsins, er þurfa þykir. Mér er ekki kunnugt um, að margar tilraunir hafi verið gerðar með ræktun jarðarberja á íslandi, þótt vafalaust hafi margir flutt Jarðarber 25

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.