Fálkinn


Fálkinn - 31.03.1928, Blaðsíða 4

Fálkinn - 31.03.1928, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N Fallegur jaki „fgrir fullum seglum“. usí mcnn handa til þess að í'orð- ast hætturnar af ísnura, Menn smíðuðu áhöld, sera gátu með nokkurri vissu sagt til um, hvort is væri í nánd. Veðurstofurnar gerðu ísrekið að mikilvægara rannsóknarefni en fyr. Og Ame- rikumenn gerðu út sjerstök skip til að fylgjast með hreyfingum íssins og vara önnur skip við is- reki. Hin síðustu árin hafa einnig verið gerðar tilraunir til að sprengja jaka, sem hætta hefir stafað af, á aðal siglingaleiðun- um. Er notað til þessa efni, sem heitir „Thermit“ og framleiðir afar mikinn hita, svo að jakarn- ir bráðna jafnframt því að þeir springa í smátt. Þetta getur að vísu bætt nokkuð úr, þegar um fáa jaka á stangli er að ræða. En langt mun þess verða að bíða, að menn geti afstýrt ís- reki að nokkrum verulegum mun með þessari aðferð. Til þess er hún of dýr. Kvenfjelagið á Eyrarbakka fertugt. Frú Eugenie Nielsen. Frú Ásíríöur Guömundsdóttir. STAÐNÆMIST HJER! FARIÐ EKKI UT ÁN ÞESS AÐ KOMA VIÐ EDINBORG Því að þar er úr mestu að velja, ódýrastar og bestar vörur. — Nýjar vörur með hverri ferð. Stofnselt 1895, Eitt af elstu kvenfjelögunum ú land- inu er 40 ára í dag. Það var stofnað af 10 fjelagskonum 31. mars 1888, fvrir forgöngu þeirra tveggja kvenna, sem hjer birtast myndir af, og báðar eru látnar fyrir allmörgum árum, og frú Ingunnar Einarsdótlur frá Lauga- nesi, sem j)á átti heima á Eyrarbakka. Frú Níelsen var formaður fjelagsins fyrstu 28 árin og frú Ástríður gjald- keri öll hin fyrri ár. Markmið fje- lagsins er eingöngu líknarstarfsemi og liefir fjelagið látið mikið gott al' Furðuverkið. Gamall prestur í sveit hafði aðstoðarprest. Hann .var ekkju- maður og ljet aðstoðarprestinn sofa í herbergi með sjer. Snemma morguns dag einn kom sendill til prestsins og bað sjer leiða í þeim efnum, bæði með lijálp og lijúkrun sjúklinga og sæng- urkvenna og með stofnun ýmsra sjóða. Hefir fjelagið aflað sjer fjár • með tillögum fjelagskvenna, gjöfum og skemtanahöldum og hlutaveltum, og er nú allvel stætt og sjóðir þess tiltölulega miklir. Fjelagskonur eru nú um 70. Formaður fjelagsins er frú Elín Sigurðardóttir. Kvenfjelagið minnist afmælis sins í dag með fjölbreyttri skemtisamkomu. hann um að koma til deyjandi manns i sveitinni. Aðstoðar- presturinn fór þegar í fötin og flýtti sjer til mannsins. Tveim tímum síðar kom hann aftur heim og var þá gamli prestur- inn ekki enn kominn á fætur. Aðstoðarpresturinn settist á stól við rúmið og sagði í injög hátíðlegum tón: — Það kom inerkilegt atvik fyrir mig í dag, hreinasta kraftaverk! — Svo, hvað var það, spurði preslur. — Jú, sjáið til, þegar jeg gekk fram hjá kirkjunni, kom til mín gömul kona og bað um ölmusu. Jeg var viss um að jeg átti ekki einn eyri i vasanum og tjáði henni það. En til þess að sannfæra liana um að jeg segði satt, snjeri jeg buxnavas- anum við. En hvað skeður, það voru tvær krónur í vasanum! Er ekki þetta furðulegt? —r- Ja, það er eftir því hvern- ig maður tekur það, svaraði prestur hæglátlega. En eitt vil jeg biðja yður um. í næsta skifti, sem þjer ætlið að gera kraftaverk, megið þjer ekki fara í buxurnar minar! ----o--- Smákorn. FrægSarinnar sól rís venjulega ekki fyr en á kvöldin. ----o---- Það er ekki fyrsta ástin, sem er þýðingarmest, en æfinlega sú síðasta. Þú komst grátandi inn i hciminn og allir viðstaddir voru glaðir og brosandi. Lifðu lífið þannig, að þú deyir brosandi og allir viðstaddir gráti. ----o----- Sá sem kaupir það sem liann ekki þarfnast, ve'rður að lokum að selja það sem hann þarfnast mcst.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.