Fálkinn


Fálkinn - 31.03.1928, Blaðsíða 6

Fálkinn - 31.03.1928, Blaðsíða 6
6 F Á L K I N N Haraldur Níelsson, prófessor, dáinn. íslensk þjóð hefir nýlega orðið að sjá á bak einum sinna glæsileg- ustu kennimanna og fræðimanna. Síra Haraldur Níelsson, sem and- aðist hinn 11. þ. m. eftir uppskurð við gallsteinum á sjúkrahús- inu í Hafnarfirði, varð þegar á unga aldri þjóðkunnur maður fyrir vísindastarfsemi sína og hið mikla þrekvirki er hann leysti af hendi með þýðingu sinni á gamla testamentnu. Yngri kynslóð presta vorra þekkir hann sem hinn ágætasta kennara og þjóðin öll sem hinn ágætasta kennimann, sumpart af eigin heyrn og suin- part af hinu ágæta prjedikanasafni hans „Árin og eilífðin“. Þá var hann frægur um land alt og eigi siður með öðrum þjóðum fyrir starf sitt i þágu sálnarannsóknanna og hefir aðalrit hans um það mál „Kirkjan og ódauðleikasannanirnar“ verið þýtt á erlend tungumál. Yoru sálnarannsóknirnar honum hið hjartfólgnasta mál, enda að hans áliti besta leiðin til að glæða trúarlíf og auka trúarvissu manna. Nafn síra Haraldar mun lengi lifa með þjóðinni. Dr.med. Helgi Tómasson er nýlega kominn hingað til lands og sestur að í Reykjavík. Er hann ráðinn geðveikralæknir hjer, enda hefir geðveiki verið sjerfræðigrein hans í mörg ár. Hefir hann starfað við erlend sjúkrahús í allmörg ár síðan hann lauk prófi og hlotið meira lof fyrir dugnað sinn, en títt er um svo unga menn. Á síðast- liðnu hausti ávann hann sjer doklorsnafnbót í læknisfræði og hafa sjerfræðingar farið aðdá- unarorðuin um ritgerð hans. Er gott til þess að vita að hann skuli nú vera sestur hjer að, svo ættjörðin megi njóta hinna ágætu hæfileika hans. — í fyrra- vetur vakti dr. Helgi mikla at- hygli og umtal fyrir tilraunir sín- ar i þá átt að nota dáleiðslu í stað svæfingar við sjúklinga, sem holskurðir voru gerðir á. Var afar mikið rætt um þessa nýju aðferð, og var ekki laust við að hrollur færi um sumt gamla fólkið, sein álítur dáleiðslu litið betri en galdra. Tækifærisgjafir í stærsta úrvali. Leðurvörudeild Mjóðfærahússins. R E Y N I Ð Svo framarlega sem þjer getiö ekki lesiö þessar smástöfuöu línur, í um 30 cm. fjar- Íægö, hafiö þjer lengi haft þörf fyrir gler- augu. Snúiö yöur þessvegna sem fyrst beint til gleraugna-sjerfræöingsins, Laugaveg 2. Hann er elsti og þektasti á Islandi á þessu sviöi. Meö fullu trausti getiö þjer látið hann máta og slípa gleraugu yöar. Laugaveg 2-gleraugu skýra mest, hvíla best og vernda sjönina fyrir skaölegum geislum. Gleraugnabúðin Laugaveg 2. Sími 2222. Ólafur F. Davíðsson, kaupmaöur, varö sjötugur 25. þ. m. 'ÉÆ Magnús Matthíasson, stórkaupmaður, veröur fertugur 3. apríl. 100 ára minning. í dag eru 100 ár liðin frá fæð- ingu Magnúsar Jónssonar prests í Laufási. Gegndi hann prests- embætti i 44 ár, þaraf síðuslu 18 árin í Laufási og dó þar 1901. Hann var kunnur uin land all fyr- ir starf sitt fyrir bindindismálið og hjelt út riti þvi til eflingar. Meðal barna hans voru Jón heit- inn forsætisráðherra, Ingibjörg kona síra Björns heitins i Lauf- ási og Sigurður læknir á Vifils- stöðum. HINN viðfrægi landi vor, Pjetur Á. Jónsson söngvari, hefir í vetur bætt ýmsum nýjum hlutverkum á hina löngu og margbreyttu verkefnaskrá sína. M. a. hefir hann sungið „Samson" í leiknum „Samspn og Dalila", og lilotið afar lofsamlega dóma. Pjetur var ráð- inn til að syngja „Ot- hello“ á kgl. leikhúsinu i Khöfn i fehrúar, en vegna anna hans dregst þetta þangað til í apríl eða maí. Er þetta í fyrsta sinni sem Pjetur syngur á þessu leik- húsi, en í Þýskalandi og Sviss hefir hann sungið á um nærfelt 20 söngleikhúsum. Pjetur hefir náð sjer að fullu eftir sjúkdóminn i fyrra og eftir þýskum blöð- um að dæina hefir list hans aldrei verið full- komnari en nú. Pjctur Jónsson sem Wnlter von Stolzini} i „Meistarasöngvnrarnir frá Niirnberg“.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.