Fálkinn


Fálkinn - 19.06.1953, Blaðsíða 3

Fálkinn - 19.06.1953, Blaðsíða 3
FÁLKINN 3 ýmsir staddir, sem œtluöu aö taka á móti ættingjum og venslamönnum sem l)eir höfðu aldrei augum litið, en þótt þeir yrðu að kynna sig fyrir viðkomandi urðu kveðjurnar innilegar eins og ástvina, sem liittast eftir langa fjarveru. Þarna hittist líka aldrað fólk, sem ekki hafði sést frá því á bernskudög- unum, og það var sem fullorðins árin væru öll sett innan sviga, en leitað á fund minninganna frá æskuárunum. Elsti þátttakandi ferðarinnar er 82 ára kona, Rosbjörg Jónasson að nafni, og hefir hún ekki komið til íslands í 70 ár eða frá því hún fluttist vestur um haf 12 ára gömul, en yngsti þátt- takandinn er 19 ára stúlka. Annars er megin þorri fólksins aldrað fólk, og er talið að meðalaldur þess sé 00 ára. Fólkið safnaðist saman í New York í síðustu viku, áður en Hekla kom þangað og skoðaði borgina meðan það beið eftir flugvélinni. Þótti því vænt um að hafa þessa ferð með ís- lenskri flugvél, en þegar það steig upp í flugvélina var liverjum og ein- um færður íslenskur blómvöndur, en blómin höfðu verið send liéðan vestur um haf og var blómailmurinn i flug- vélinni uppliaf ])ess íslenska andrúms- lofts, sem þetta fólk hefir svo lengi þráð að komast í snertingu við, og hefir nú loksins öðlast. Yestur-íslending- arnir við komuna til Reykjavíkur. Ljósm.: Ól. K. M. 31 Vestir-ísleidiifar i heimsikn í vikunni sem leið, konm góðir gcst- ir í heimsókn til íslands. Það eru 37 Vestur-íslendingar, sem iflestir hafa ekki séð ættland sitt áratugum sam- an, en ætla nú að dvelja hér í nokkrar vikur og treysta kynni sín við ætt- fólk og vini heima á Fróni, finna á ný angan íslenzks vors og minnast við blóm í brekku og hlið, þar sem barnsskónum var slitið forðum. Þessi ferðamannahópur kom til Reykjavíkur frá New York á fimmtu- daginn með flugvélinni Heklu, en um helgina ferðaðist fólkið um Suður- landsundirlendið, með viðkomu hjá Gullfossi, Geysi, Þingvöllum og fleiri stöðum. Á Þingvöllum hélt Þjóðrækn- isfélagið þeim samsæti. Á mánudaginn sátu þeir svo boð forseta íslands að Bessastöðum. Fararstjóri Vestur-íslendinganna er dr. Finnbogi Guðmundsson prófessor, en hann var aðal frumkvöðull þess og hvatamaður að þessi ferð var farin, en vera má að þetta sé upphaf skipu- lagsbundinna heimsókna Vestur-ís- lendinga hingað til lands. Þegar Hekla lenti á Reykjavíkur- flugvelli, var þar saman kominn múg- ur og margmenni til þess að fagna Vestur-íslendingunum. Þarna voru (Ljósm.: Sveinn Ásgeirsson, Hafnarfirði). VíísIii suDdhflllnr Hdfnnfjnrðflr Sundhöll Hafnarfjarðar var vígð með hátíðlegri athöfn síðastliðinn laugardag, og um helgina fór fram fyrsta sundmótið í höllinni, en það var háð milli Reykvíkinga og utan- bæjarmanna. í hrauninu vestan við Hafnarfjörð liefir verið óyfirbyggð sundlaug frá því 1943, en hún var byggð að tilhlut- an nokkurra félagasamtaka í bænum og bæjarstjórn 'Hafnarfjarðar. Var þetta sjólaug og var hún fyrst upp- liituð með kolum, en við endurbygg- inguna hefir lauginni verið breytt í vatnslaug, sem hituð er upp með raf- magni. Eftir að sundlaugin hafði ver- ið rekin um skeið fóru að heyrast raddir um það, að æskilegt væri að sundlaugin yrði yfirbyggð, og árið 1947 var ákveðið að láta til skarar skríða með byggingu sundhallarinn- ar og sótt um fjárfestingarleyfi í því tilefni) en fjárfestingarleyfi fékkst ekki fyrr en árið 1951 og var þá þeg- ar hafist handa um byggingarfram- kvæmdir. Byggingarfélagið „Þór“ tók að sér að gera sundhöllina fokhelda og var þvi verki lokið í ársbyrjun 1952. í sambandi við byggingu sundhallar- innar voru gerðar nokkrar endurbæt- ur á lauginni t. d. komið fyrir raf- magnshitun, og er hin nýja sundhöll því bæði hituð upp með rafmagni og olíu. Þá voru og gerðar endurbætur á böðum laugarinnar, búningsher- bergjum og miðasölu. Einnig var reist viðbygging við sundhölldna að norð- anverðu yfir þrjá stóra vatnsgeyma fyrir loftræstingarkerfið, böðin og miðstöðina. Stærð laugarsalarins að innanmáli er 12.60x30 m. en öll er byggingin 655 fermetrar. Stærð sjálfr- ar sundlaugarinnar cru 25x8.40 m. og cr hún rúmlega þriggja metra djúp, þar sein hún er dýpst. 'Hæð laugar- salarins eru 6.50 m. Búningsklefar eru fyrir 85 baðgesti, þar af eru 20 einmenningsklefar. í fordyri er miðasala, sem gengið er úr i búningsklefann, þaðan í böðin og úr þeim í Iaugarsalinn. Eftir er að byggja sólskýli, sem á að vera suð- austan við sundhöllina. Byggingarkostnaður sundhallarinn- ar nemur um 850 þúsund krónum. — Forstjóri sundhallarinnar er Yngvi R. Baldvinsson, og hafði lvann einnig yfirumsjón með öllum byggingar- framkvæmdum. Við vígslu sundhallarinnar á laug- ardaginn fluttu ávörp og ræður þeir Stefán Gunnlaugsson, formaður íþróttanefndar Hafnarfjarðar, Helgi Hannesson bæjarstjóri, Jón Egilsson, form. íþróttabandalags Hafnarfjarðar og Þorsteinn Einarsson íþró.ttfulltrúi rikisins. VERÐLAUNAÞRAUT: «Kinverska d(egradvölín« Verðlaun Jcr. 500.00 og kr. 200.00 Sjá 13. tölublað Fálkans. KRÝNINGARFRÍMERKI. — í tilefni af krýningu Elizabethar II. drottning- ar voru þessi hátíðarfrímerki gefin út. Hér komum við með áframhaldandi númer af Kinversku dægradvölinni sem eru ekki af lakari endanum. Takið nú til óspilltra málanna við ráðninguna. Það er alveg óhætt fyrir þá eldri, að reyna líka. Þið skuluð, svona rétt til gamans, lita á klukkuna, þegar þið byrjið og skrifa niður hvað þið eruð lengi með hvora mynd. Hver veit nema kunningi þinn, eða kunn- ingjakona komi i heimsókn, svo þú get- ir sagt: „Þetta réði ég á 5 minútum, getur þú gert betur?“ Og svo er ég viss um að kunninginn fer beint út í búð og kaupir sér eina dægradvöl, það er að segja ef hann hefir ekki þegar verið búinn að ná sér í eina. Og svo að lokum, munið að taka með ykkur einn kassa af dægradvölinni í sumar- fríið eða útileguna, það fer ekki mikið fyrir honum í vasanum eða bakpokan- um og ánægjan er örugg.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.