Fálkinn


Fálkinn - 16.01.1963, Blaðsíða 12

Fálkinn - 16.01.1963, Blaðsíða 12
1. Á öllum tímum birtist metnaður og stórhu'gur ungra manna skírastur, þeg- ar þeir á þroskaárum vinna sér ríki. En svipmestur er metnaður þeirra, þegar meira er um að tefla en ríki eitt. Á stundum verða stórhuga og gáfaðir menn að fá frama og sanna mannkosti sina og getu til forustu, svo að þeir nái ástum ungrar konu. Ef til vill konunn- ar sem þeir unnu hugástum þegar í æsku, og er þeim allt. Þegar svo er, er oft teflt djarft, sótt til ríkis, sem ekki er laust fyrir, og þeir vinna einir, sem eru afburðamenn. Á öllum tímum hafa verið uppi á ís- landi stórbrotnir menn, mótandi verð- andi sögunnar af sterkum persónuleik og fastmótaðri skapgerð. í sögu liðinna alda er oft hægt að sjá slík skapgerðar- einkenni, litrík og áhrifamikil í fram- kvæmd mála og verkefna í þjóðlífinu. Fyrr á öldum fór það oft saman, að voldugustu höfðingjarnir, voru jafn- framt miklir athafna- og framkvæmda- menn. Fyrir siðskipti voru þetta glögg einkenni flestra norrænna samfélaga. En eftir siðskipti snérist að nokkru til annarrar áttar. Konungar fóru að skipta sér meira af ýmsum málum og stjórn- uðu gegnum ráðgjafa og umboðsmenn, misvitra og lítt sjálfstæða. Oft varð dugnaður og framtakssemi að víkja fyrir yfirgangi og þroskaleysi umboðs- manna. Hér á landi kemur þetta greini- lega fram í heimildum. En á stundum voru uppi menn, sem voru ósmeykir að leggja út í tvísýnt tafl um völd og auð. Þeir sóttu fram og unnu oft sigur. Hér verður sagt frá slíkum manni. Margar íslenzkar ættir eiga rík og stórbrotin skapgerðareinkenni. Þessi einkenni endurnýjast oft kynslóð frá kynslóð og eru tíðum gerandinn í fram- vindu og þróun mála á vettvangi þjóð- félagsins. Á stundum er hægt að rekja þessi einkenni í nokkra ættliði. Oft verða þau einstökum mönnum til hamingju,, en í annan tíma að því gagnstæða. Sagan geymir þessi minni og rýnandi hennar skynjar þau og skilur, ef hann leggur heimildir í dóm vitundar sinn- ar og kryfur þau til mergjar. Á öndverðri 16. öld, tók að skipta mjög til skapa í afstöðu einstakra höfð- ingja og auðmanna til valda og áhrifa í landinu. Hinar fornu höfðingjaættir voru að líða undir lok. Kaþólska kirkj- an var að veita þeim nábjargirnar með yfirgangi sínum og valdagræðgi. En nýir stofnar veraldlegs höfðingjavalds hófust til sóknar, en fyrst og fremst í skjóli gróða af verzlun og útvegi. Á nokkrum stöðum hér á landi, stunduðu höfðingjar mjög verzlun við erlendar þjóðir, sérstaklega Englendinga og Þjóð- verja. Oft urðu menn, sem höfðu að- stöðu til, ríkir á fáum árum af útvegi, ef þeir höfðu jafnframt verzlun við kaupmenn utan Danaveldis, og kunnu jafnframt að ávaxta arð sinn í jarðeign- um og kúgildum. En það var eina leiðin til þess að ná festu til auðs. En á hinu leitinu reis einnig upp höfðingjavald, 12 FÁLKINN sem treysti fyrst og fremst á traust hjá konungi og umboðsmönnum hans til valda og auðs. Og oft kennir þess í heimildum, að þessi tvö andstæðu skaut toguðust á um völdin í landinu, og varð baráttan stundum hörð. Við Eyjafjörð voru oft voldugir og ágætir höfðingjar fyrir siðskipti. Þeir héldu lengi sjálfstæði og reisn. Sumir þeirra urðu þó að lúta biskupsvaldinu á Hólum og gjalda því þungar búsifjar. Við austanverðan Eyjafjörð, var um 1500 að hefjast ný ætt, sem átti eftir að bera mikið lauf og styrka stofna. Svalbarðsmenn áttu góðar útvegsjarðir við Eyjafjörð og hófust af afrakstri út- gerðar og verzlun. Þeir hófust fyrst og fremst af áfrakstri ríks héraðs. Synir Jóns Magnússonar lögréttumanns á Svalbarði, urðu volduugir og ríkir höfðingjar, og á stundum stóðu þeir í fullu tré gegn biskupum landsins og umboðsmönnum konungs. Þeir leituðu mennta og frægðar á erlendum vett- vangi og stundum unnu þeir fulla hylli konungs. Svalbarðsmenn áttu rík einkenni í skapgerð. Þeir voru skapstórir, stór- brotnir og brotagjarnir, en um leið sér- vitrir og fóru sínar eigin leiðir, höfð- ingjar miklir og létu seint hlut sinn, þó að við ofurefli væri að etja. Þeir voru fengsælir fjárgæzlumenn og urðu miklir auðmenn. Einkenni þeirra eru skír frá upphafi og endurnýjuðust hrein og óbrotgjörn hjá afkomendum, enda kynbættu þeir sjálfa sig mjög af kvonföngum og giftingum við hinar beztu ættir landsins, jafnt fornar sem nýjar. Frægð þeirra í sögunni er merl- uð töfrum sagna og munnmæla, sem alþýðan varðveitti í munnlegri geymd kynslóð frá kynslóð. Einn þeirra manna af Svalbarðsætt, sem ber hátt á sviði sögunnar, er Páll Jónsson frá Svalbarði. Hann er þekkt- astur undir nafninu Staðarhóls Páll, kenndur af Staðarhóli í Saurbæ vestra, en hann vann Staðarhólinn með mála- rekstri úr höndum Skálholtsbiskups, eins og brátt verður sagt. 2. Páll Jónsson er talinn fæddur árið 1535, en mun þó hafa fæðst nokkru fyrr. Hann er sonur Jóns lögréttumanns á Svalbarði Magnússonar og konu hans Ragnheiðar á rauðum sokkum Péturs- dóttur iögréttumanns í Djúpadal, af ætt Lofts ríka Guttormssonar. Páll lærði skólalærdóm í Munkaþverár- klaustri naut hann þar hinnar beztu menntunar. Klausturskólanámið hafði djúp áhrif á hann í ýmsum efnum, nema trúarlegum, þar gætti annarra áhrifa. Páll varð snemma efnilegur maður, gáfaður vel og unni menntum og fögrum listum. Hann varð í æsku þegar ágætt skáld og beitti skáldíþrótt- inni sér til frama og brautargengis. Hann lagði mjög stund á lögfræði og stjórnfræði og varð snemma mjög vel að sér í þeim greinum. Hann naut mikils álits og þroskaðist af lestri — en fyrst * Asta- og örlagasaga frá 16. öld lón Gíslason tók saman og fremst af kynnum við göfugt fólk í næsta nágrenni, stóbrotið og djarft í skoðunum, sem heillaði hann ungan og mótaði hug'sjónir hans og framavonir. Þegar Páll Jónsson dvaldist í klaust- urskólanum á Munkaþverá, bjó á Grund í Eyjafirði Þórunn Jónsdóttir biskups Arasonar. Hún var stói'gerð kona, rausnarmikil og héraðsrík. Hún varð biturlynd eftir aftöku föður síns og bræðra, og lagði á ráð, sem dugðu til hefnda eftir þá. En hún vildi ná meiri áhrifum, sérstaklega á Marteini biskupi Einarssyni, Pétri bróður hans og Daða Guðmundssyni í Snóksdal. En erfitt var að sækja. Þórunn giftist þrisvar, en var barnlaus með öllum mönnum sínum. Eitt sinn var mælt að hún hafi kveðið við bónda sinn: í Eyjafirði uppi á Grund á þeim garði fríða, hefur búið bóndi um stund, sem barn kann ekki að smíða. Eftir aftöku Ara lögmanns Jónsson-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.