Nýtt kirkjublað - 01.11.1911, Blaðsíða 15

Nýtt kirkjublað - 01.11.1911, Blaðsíða 15
NÝTT EIHItJtrBLAÍ) 255 Stykkishólmskirkj a. Þegar kirkjur eru reistar í fyrsta sinu í kauptúnum, eiga þær ekkert sér til búnaðar, eu jafnan hafa þá safnaðarmenu reynst ör- látir til gjafa. Svo er um Stykkishólmskirkju. Hún er nú fullra 30 ára og er prýðilega úr garði gjörð, að áhöldum og skrúða og er alt gefið. Nú nýfarið hefir söfnuðurinn gefið vandað harmoníum. Altaristaíi- an er gefin aí versiunarstjóra Sören Hjaltalín, stórkaupmaður L. Tang heíir gefið ljósahjálminn, fimm-armaðir altarisstjakar eru gefn- ir af Helga kaupmanni Zoega í Eeykjavík og konu hans, og Þor- valdur skósmiður Jóhannsson hefir gefið stóra koparklukku. Síra Lárus á Breiðabólsstað. Títt er það að menn losi sig við annað nafnið af tveimur, og gleymist það og fer vel. Hitt er fágætara að nafni só bætt við mann og það festist, og allir taki það fyrir skírnarnafn. Svo er um síra Lárus Halldórsson á Breiðabólsstað á Skógarströnd. Rit- ar hann mór nýfarið svo: „Eg var áðan að líta á embættismannatalið i Landshagsskýrsl- unum, og er eg þar eins og víðar nefndur Lárus Soheving Hall- dórsson, en heiti þó ekki uema tómur Lárus. Stafar alt frá mis- skilningi Jóns sál. rektors, þegar hann færði mig fyrst inn i bæk- ur skólans. Yið vorum að rekja samau ættir okkar og eg mun hafa sagt honum, að eg væri heitinu eftir Lárusi Hanssyni Scheving sem dó 1741, og hann tekið það svo að eg héti Sckeving lika og skrifað það svo í prótokollinn, en skírnavottorð mitt kom ekki fyr en seinna, eftir að eg var tekinn inn í skólann, en hann hefir þá ekki borið það saman, því að þetta' Sckevings-nafn kom fyrst á stúdentsvottorð mitt, og svo rak hvað annað, en eg hirti aldrei um að leiðrétta.“ Schevings-nafnið er strax við inntökuprófið (Skólask. 1893— 94). Nafnið er á prófvottorðum beggja skóla, í veitingar og vígslu- brófum. En betra er liklega seint en aldrei að reyna að losna við það. Minnisvarðasjóður Jóns biskups Vídalíns. Árið 1889 lagði Páll sögukennari Melsteð dálitla uiiphæð i Söínunarsjóðinn, er þar skyldi ávaxtast, þangað til að fyrir íóð mætti reisa Jóni biskupi Vídalín minnisvarða, líkan minuisvarða Hallgrims Péturssonar við dómkirkjuna. Bogi Th. Melsteð hefir ráðstafað Söfnunarsjóðsbókinni til bisk- ups, og á hann að hafa hönd yfir. Eru nú í bókinni framt að því 90 krónur.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.