Vikan


Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 43

Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 43
SKOP / Tveir ölvaöir menn komu aö hótelmóttökunni. Annar mátti vart mæla svo hinn talaði fyrir þá. „Viö viljum rúm með tveimur herbergjum." „Ég held aö þiö viljið frekar her- bergi með tveimur rúmum,“ svar- aöi móttökustjórinn. Þetta var samþykkt og skömmu seinna voru þeir lagstir fyrir í sama rúminu. „Heyrðu, Jói, þaö er einhver í rúminu mínu.“ „Fyrst þú minnist á það þá er einnig einhver í mínu rúmi.“ „Hendum þeim úr rúmunum." Þessu síðasta fylgdu nokkur átök. „Heyröu, Jói,“ kallaöi annar þeirra hreykinn. „Mér tókst að henda mínum frarnúr." „Gott hjá þér. Ég réð ekki við minn. Hann henti mér á gólfið." „Það er allt í lagi, vinur. Þú get- ur bara skriðið upp í hjá mér.“ Jerry Lewis var þekktur fyrir alls konar skrípalæti við gerð mynda sinna og oft var það sem hann framkvæmdi utan myndar- innar fyndnara en það sem var í henni. Eitt sinn er verið var að taka eina af myndum Jerry [ Miami og allt liðið var statt niðri á bryggju sér Jerry að úr einum bátnum hefur nýlega verið landað gríðarlega stórum túnfiski. Hann gengur að túnfisknum, opnar á honum kjaftinn og öskrar niður í kokið. „Þið getið komið út núna, strákar, því ég, Jerry Lewis, segi að verkfallinu sé lokið.“ Ef þú lifir hvern dag eins og hann sé sá síðasti hittir þú fyrr eða síðar naglann á höfuðið. Fílarnir og maurarnir voru að keppa í fótbolta. Allt í einu náði einn maurinn boltanum og brun- aði upp völlinn í átt að marki fíl- anna. Einn fíllinn hljóp í veg fyrir maurinn og ætlaði að tækla hann en steig í staðinn ofan á maurinn og drap hann. Áhorfendur úuðu og púuðu og hentu flöskum og öðru lauslegu inn á völlinn. Dómarinn hljóp að fílnum og mundaði rauða spjaldið í leiðinni. „O, fjandinn,“ sagði fíllinn. „Ég ætlaði bara að bregða honurn." Kona hélt smáköku yfir hundi og kallaði á hann. „Talaðu, tal- aðu.“ Hundurinn svaraði: „Bjáni ertu. Ef þú vilt samræður ættirðu að fá þér páfagauk." Það hafði orðið umferðarslys. Hinn nýi sportbill stúdentsins hafði rekist á gamla Land Rover bóndans. Báðir ökumennirnir stóðu hjá og virtu fyrir sér skaðann. „Jæja,“ dæsti bóndinn. „Við getum alveg eins fengið okkur sopa.“ Hann tók flösku upp úr pússi sínu og rétti stúdentnum sem tók góðan sopa af henni. Bóndinn lét síðan flöskuna rólega í vasann. „Ætlar þú ekki að fá þér einn?“ spurði stúdentinn. „Ég held ekki fyrr en lögreglan hefur litið á þetta.“ Olíumaður frá Houston í fríi í Chicago varð brjálaður er hann var beðinn um að borga 1,25 doll- ara fyrir langlínusamtal. „Einn dalara og tuttugu og fimm sent?" öskraði hann. „[ Tex- as gæti ég hringt til Helvftis og baka fyrir hálfan dollara." „Já, herra," svaraði símadam- an, „en mundu að í Texas er það staðbundið símtal." Stjörnuspá fyrir vikuna 28. janúar - 3. febrúar Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Þetta eru góðir dagar til að rækta vinskap og ást. Þó gæti farið svo að mikið af skemmtunum og ef mikið er farið út að borða hafi óæskileg áhrif á budduna og lík- amann. Þú ættir að fresta því að taka mikilvægar ákvarðanir. Nautið 20. apríl - 20. maí Þér verður vel ágengt ef þú tekur mark á því sem vinnufélagi þinn segir og ef þú reynir að forð- ast að lenda í deilum. Samkomu- lagið heima fyrir er einnig mjög gott þessa dagana, gerðu allt sem í þínu valdi stendur til að halda því þannig. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Þó breytingar hafi orðið í vinnunni sem þér líka ekki vel, hafðu þá engar áhyggjur því ástandið mun batna. Sama gildir með heimilislífið; leiðindi sem ver- ið hafa undanfarið verða gleymd og grafin áður en langt um líður. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Þú ferð á fund á næstunni þar sem mikilvægar ákvarðanir eru teknar sem varða framtíð þína. Þú finnur frið og ánægju með því að vera samvistum við þína nánustu, en vertu ekki að flíka, um sinn, hugsunum þínum og óskum. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Það geta fylgt því vanda- mál að vilja bæði vera vinsæl(l) og gera það sem mann sjálfan langar til, farðu varlega um helgina. Þú ættir að geyma eitthvað af öllu því sem þig langar að gera þar til í næsta mánuði. Meyjan 23. ágúst-22. september Það verður léttara yfir þér á næstunni. Þér vegnar vel í pen- ingamálum eftir að hafa farið að ráðum annarra. Einhver sem þú hittir um miðjan mánuðinn kemur til með að skipta þig miklu máli í framtíðinni. Vogin 23. sept. - 23. okt. Vinátta skiptir miklu máli þessa dagana, enda auðveldari viðfangs en samskipti við ástvini. Þetta er góður tími til að lyfta sér upp og skemmta sér, vinnan og áhyggjurnar hlaupa ekki frá þér. Sporðdrekinn 24. okt. -21. nóv. Nú er rétti tíminn til að fjárfesta því það sem þú tekur þér fyrir hendur í peningamálum kem- ur til með að ganga vel. Ástamálin ganga aftur á móti ekki jafn vel; mundu að það þarf tvo til að rífast. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Á heimavettvangi er mikið að gerast og von á breytingum innan skamms. Vertu eins mikið með þínum nánustu og mögulegt er. Mikilvæg ákvörðun sem þú þarft að taka á næstunni mun vera sú eina rétta fyrir þig. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Frétt sem þú hefur átt von á varðandi fjölskyldumál berst fljótlega og leysir úr flækjum sem skapast hafa vegna óvissunnar. Erfiðleikar sem komu upp I síðasta mánuði leysast þannig að lífið verður skemmtilegra á næstunni. aóa Vatnsberinn “/ 20. janúar - 18. febrúar 1 s Hlúðu að sambandinu við persónu sem þú kynntist í jólafrí- inu, þetta gæti verið stóra ástin. Kunningi eða vinur kemur þér til hjálpar í máli sem þú átt erfitt með að leysa upp á eigin spýtur. Fiskarnir 19. febrúar - 20 mars Þú átt eftir að þurfa að svara fyrir eitthvað sem þú hefur verið að vinna að,vertu með allar staðreyndir á hreinu. Þetta er góð- ur timi til að fjárfesta eða selja. VIKAN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.