Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1946, Blaðsíða 10

Æskan - 01.05.1946, Blaðsíða 10
ÆSKAN. ram tiL (u Lcí GLOa. Vængir blaka, hefjast hátt, heiði taka, þrárnar seiða. Sólheit vakir sunnanátt, svanir kvaka fram til heiða. fílána fjöll og birtir nótt, brak og sköll um heiðalendur. Vatnaföllin vaxa ótt, vetur höllum fæti stendur. Langt til veggja, heiði hátt. Hugann eggja bröttu sporin. Iiefði ég tveggja manna mátt, mundi ég leggjast út á vorin. Stefán frá Hvítadal. íþróttir og áfengi. Norðmaðurinn Ivar Ballangrud er fræknasti skautakappi, sem nú er uppi. Hann hefur orðið Noregsmeistari í skautahlaupi fimm sinnum, Evr- ópumeistari fjórum sinnum, heimsmeistari fimin sinnum, sigrað í skautakeppni á Ólympíuleikjum fimm sinnum, liann hefur heimsmet í 3000, 5000 og 10000 metra ldaupi. Auk þess er hann ágætur skíðamaður. Ballangrud var einu sinni spurður, hverja skoð- un hann hefði á þvi, að íþróttamenn neyttu áfengis. Hann svaraði: „Ég lief sjálfur ævinlega verið bindindismaður, og ég hygg, að mér hefði eltki tekizt að ná þeim árangri, sem mér hefur auðnazt, ef ég hefði neytt áfengis. Það liggur í augum uppi, að íþróttamenn eiga að bannfæra áfengisnautn. Enginn getur unnið afrek í íþróttum, ef hann er áfengisneytandi. Burt með áfengið!“ Búrfellskirkja. Mig langar til að segja ykkur frá kirkjunni minni, því að liún átti aldarafmæli síðastliðið sumar. Hún er á Búrfelli i Grímsnesi. Bærinn á Búrfelli stendur sunnan undir fjalli, sem bærinn ber nafn af, og heitir Búrfell. Þaðan er fagurt útsýni austur yfir sveitina. Þaðan sjást mörg fjöll, sem rísa upp frá láglendinu, og heita þau: Hestfjall, Mosfell, Yörðufell og Ingólfsfjall í suðvestri. Búrfellskirkja var smíðuð árið 1845 og varð því 100 ára í sumar. Jón Halldórsson, þá bóndi á Búr- felii, lét smiða hana. Fyrsti prestur, sem þjónaði á Búrfelli i þeirri kirkju, sem nú stendur, var séra Þórður Árnason. Aðrir prestar, sem þjónað hafa, eru: Jón Melsteð, Eggert Sigfússon, Stefán Stephensen, Gísli Jónsson, Þorsteinn Briem, nú prófastur á Akranesi, Ingimar Jónsson, nú skólastjóri í Beykjavík, og núverandi prestur er séra Guðmundur Einarsson, prófastur á Mosfelli. Á aldarafmæli kirkjunnar var haldin veizla þar á staðnum, og kom þar hiskupinn og 3 prestar, þeir séra Guðmundur Einarsson, Ingimar Jónsson og Ól- afur Magnússon, fyrrum prófastur i Arnarbæli. Þeir löluðu allir i lcirkjunni. Við athöfnina var fjöldi fólks, hafði ekki sést jafnmargt við þá kirkju úm langan tíma. Það kom úr öllum áttum, gangandi ríðandi og alcandi, fólk á öllum aldri. Úti á túninu var stórt tjald, og voru þar veit- ingar. Þar voru margar ræður fluttar. Yeður var hið bezta, og notuðu börnin sér það og léku sér úti um víðan völl. Á afmælinu voru kirkjunni gefnar margar gjafir. Kvenfélág gaf tvo koparkertastjaka. Þeir voru keyptir í Reykjavilc af manni, sem hafði fengið þá á fornsölu í Englandi. Sigriður Guðmundsdóttir gaf þrjá muni, útsaumað teppi á gólfið í gráturnar, altarisklæði, sem Unnur Ólafsdóttir í Reykjavík hafði saumað, og altaris- dúk, fallega saumaðan með Feneyjasaum. Hina tvo munina saumaði hún sjálf. Enn fremur var kirkj- unni gefin mikil fjárhæð i peningum. Undír kvöldið fór fólkið að tínast heim. öllum hafði þótt þessi dagur unaðslegur, og eflaust hafa margir óskað, að ekki yrði langt þangað til kirkj- an ætti aftur slíkt afmæli, en sennilega verður ekk- ert af þessu fólki lifandi, þegar hún ú næsta aldar- afmæli. Ingunn Guðmundsdóttir (12 ára)' 52

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.