Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1961, Blaðsíða 16

Æskan - 01.01.1961, Blaðsíða 16
ÆSKAN Vítmr prestwr. FRÁ BARNASTÚKUNNI SIÐSEMD nr. 14, Garði, Gullbringusýslu. Barnastukan Polstjarnan nr. 126 á Húsavík. Frá nnglíii FRÁ BARNASTÚKUNNI I’ÓLSTJARNAN nr. 126. Sigurður Gunnarsson, skólastj. og gæzlu- maður stúkunnar, er nú fluttur til Iteykja- víkur og er æfingakennari við Kennara- skóla íslands. — Við gæzlumannsstarfinu tók Jóhannes Guðmundsson, kennari, gam- all og góður góðtemplari. areglunni. Geta má þess, að Þorsteinn Gíslason var á síðasta sumri skipstjóri á aflahæsta skip- inu á síldarvertíðinni, Guðrúnu Þorkels- dóttur. Af því geta ungir menh séð, að það er hægt að verða aflakóngur, þótt menn séu strangir bindindismenn. Þorsteinn Gísla- son hefur verið félagi í barnastúkunni Sið- semd frá því hann var barn að aldri. I. J. Þessi saga gerðist í litlu þorpi. Þar var heiðarlegur slátrari og liann hafði þann sið á liverju kvöldi að fara með pening- ana úr búðinni heim til sín og teija þá niður í kassa. Hann taldi alltaf upphátt. Þunnt þil var á milli herbergis hans og næsta lierbergis og maðurinn, sem þar bjó heyrði alltaf, þegar slátrarinn taldi pen- ingana og öfundaði liann af þeim. Svo kom lionum ráð í liug. Hann losaði um fjöl í þilinu, fór svo til lögreglunnar og kærði það, að stolið hefði verið frá sér peningum, og nefndi þá upphæð, sem Jiann Jiafði Iieyrt, að slátrarinn taldi ofan í ltass- ann. Lögreglan Iiom á vettvang, fann Jausu fjölina í veggnum og grunaði slátr- arann. Gerði hún svo Jiúsrannsóltn Jijá lionum og fann þar einmitt þá peninga- uppliæð, sem maðurinn sagði að slolið liefði verið frá sér. Bárust þannig öll bönd nð slátraranum og það var enginn vafi á, að hann yrði dæmdur seltur. í vandræðum sínum bað hann um að fá að tala við prestinn. Þá var presturiim sóttur og er hann lieyrði alla málavöxtu, sagði hann: — Fleygið peningunum í vatn. Það var gert og um leið ltom fitubrák ofan á vatnið. — Á þessu getið þér séð, mælti prest- urinn, —• að slátrarinn á peningana. Hann er alltaf fitugur á fingrunum, þegar hann er að afgreiða og fitan hefur festst við peningana, þegar hann handlélt þá. Þér sltuluð setja liinn manninn í fangelsi, þvi að liann er svikari. Barnastúkan Siðsemd er ein elzta barna- stúka á landi liér og hefur lengi starfað og vel. Þar var ég á fundi í fyrravetur. Sá l'undur var mjög ánægjulegur. Um 100 manns voru á fundi. Gæzlumaður stúkunn- ar er Þorsteinn Gislason, skólastjóri og skipstjóri. Næst á undan lionum var Una Guðmundsdóttir gæzlumaður áratugum saman. Hún starfar enn í stúkunni mcð lifandi áhuga. Hún var æðsti templar á nefndum fundi, en að öðru leyti stjórnuðu börnin, svo sem venja er. Til skemmtunar var verðlaunaþáttur, er börnin sáu um, svo og skuggamyndasýning, er skólastjór- inn annaðist. Voru það litskuggamyndir, er liann hafði tekið sumarið 1959. Voru þær af síldveiðunum á ýmsum stöðum fyrir Norður- og Austurlandi, svo og frá Siglu- firði, Eskifirði og víðar. Var sýningin bæði fróðleg og skemmtileg. Hér með fylgir inynd af embættismönn- um stúkunnar frá í vor. Þorstemn Gísla- son er á miðri myndinni, en Una Guð- mundsdóttir lengst til hægri. Embættismenn barnastúkunnar Siðsemd nr. 14, Garði, Gullbringusýslu.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.